Gagnrýna harðlega skipun Svanhildar Hólm í starfshóp um samkeppni og neytendamál

Neytenda­samtökin segja það óásættanlegt að fulltrúi atvinnu­lífsins fái sæti í starfs­hópi um samkeppnis- og neytendamál en horft sé framhjá neytendum. Menningar- og viðskipta­ráðherra skipaði meðal annars framkvæmda­stjóra Viðskipta­ráðs í hópinn.

Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, og Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands.
Breki Karlsson, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna, Lilja D. Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, og Svan­hildur Hólm Vals­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs Íslands. Mynd: Samsett

Stjórn Neytenda­samtakanna hefur sent frá sér ályktun þar sem hún gagnrýnir harðlega hvernig staðið var að skipun starfs­hóps sem skoðar breytingu á stofnana­umgjörð samkeppnis- og neytenda­mála á Íslandi. „Óásættanlegt er að fulltrúi atvinnu­lífs fái sæti í nefndinni, en horft sé fram hjá neytendum líkt og samkeppnis- og neytendamál komi þeim ekki við. Stjórn Neytenda­samtakanna gerir kröfu um sæti við borðið til að tryggja að raddir og sjónarmið neytenda komi fram.“

Starfs­hópurinn sem um ræðir var skipaður 24. ágúst síðastliðinn af Lilju D. Alfreðs­dóttur, menningar- og viðskipta­ráðherra. Í hann voru skipaðir þrír einstaklingar: Þorgeir Örlygsson, fyrr­verandi forseti Hæstaréttar, formaður, Angantýr Einarsson, framkvæmda­stjóri stjórn­sýslu- og fjármála­sviðs Vestmanna­eyja, og Svanhildur Hólm Vals­dóttir, framkvæmda­stjóri Viðskipta­ráðs Íslands.

Megin­markmið hópsins, sem á að skila tillögum til ráðherra fyrir 1. febrúar 2023, er að finna leiðir til að styrkja samkeppni innanlands, tryggja stöðu neytenda betur í nýju umhverfi viðskipta og efla alþjóð­lega samkeppnis­hæfni íslensks atvinnu­lífs.

Vakið undrun víðar

Kjarninn hefur rætt við ýmsa fleiri, meðal annars innan verkalýðs­hreyfingarinnar, sem undra sig sérstak­lega á skipan Svanhildar í hópinn. Bæði vegna þess að fulltrúar neytenda eða launþega eiga þar engan fulltrúa og þess að Viðskiptaráð hefur verið afar gagnrýnið á starfsemi og umfang Samkeppnis­eftirlitsins á undan­förnum árum.

Í október í fyrra sendi Samkeppnis­eftirlitið frá sér tilkynningu þar sem það brýndi fyrir forsvars­fólki hagsmuna­samtaka í atvinnu­lífinu að taka ekki þátt í umfjöllun um verð­lagningu og markaðs­hegðun fyrir­tækja. Þar sagði meðal annars: „Ákvæði samkeppnis­laga setja hagsmuna­samtökum skorður í hagsmuna­gæslu sinni og verða samtök fyrir­tækja því að fara afar gætilega þegar kemur að umræðu og fræðslu sem getur haft áhrif á markaðs­hegðun félags­manna. Öll þátttaka í umræðu um verð og verð­lagningu er sérstak­lega varhuga­verð og ætti ekki að eiga sér stað á vettvangi hagsmuna­samtaka.“

Sögðu athugasemdir „aðför að upplýstri umræðu“

Hagsmuna­samtökin brugðust illa við þessari tilkynningu. Samtök atvinnu­lífsins og Viðskiptaráð sendu í kjölfarið frá sér sameiginlega yfir­lýsingu þar sem þau sögðu athuga­semdir Samkeppnis­eftirlitsins vera „aðför að upplýstri umræðu“.

Í umræðu út á við væri eðlilegt að þau ræði ýmis mál er tengjast félags­mönnum sínum og íslensku atvinnu­lífi í heild. „Þar má til dæmis nefna umræðu sem snýr að launa­kjörum, kvöðum stjórn­valda á borð við gjöld og leyfis­veitingar, hrávöru­verði og fleiri atriðum sem öll geta haft áhrif á almennt verðlag. Að benda á þá staðreynd að þróun varðandi fyrr­greind atriði geti leitt til verð­hækkana felur hvorki í sér brot á samkeppnis­lögum né hvetur það til þeirra. Í raun er óumflýjanlegt að hagsmuna­samtök fyrir­tækja láti sig verðlag í landinu varða þegar ýmsar kvaðir sem stjórn­völd setja hafa áhrif á verðlag á þeim vörum og þjónustu sem félags­menn þeirra bjóða upp á.“

Engin ákvæði samkeppnis­laga banni samtökum fyrir­tækja þátttöku í opinberri umræðu. „Það er mat SA og VÍ að með aðfinnslum sínum sé Samkeppnis­eftirlitið komið langt út fyrir lögbundið hlutverk sitt. Hversu langt má ganga? Hverjir mega tjá sig? Verða settar skorður á Seðla­bankann að tjá sig um verðlag í landinu? Eða greiningar­aðila, t.d. innan viðskipta­bankanna? Mega hagsmuna­samtök fyrir­tækja tjá sig um vaxta­hækkanir?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár