Fjöldi sýktra utan Kína mögulega „toppurinn á ísjakanum“

Nýja kóróna­veiran er lúmsk. Hún getur leynst í líkamanum lengi án þess að greinast. Í því felst hættan á mikilli útbreiðslu. Ef ekki næst að hemja hana gætu jafnvel 60% jarðarbúa sýkst.

Maður stendur í lestí Taívan. Þangað hefur veiran nú breiðst og áhrif á samfélagið þegar orðin nokkur.
Maður stendur í lestí Taívan. Þangað hefur veiran nú breiðst og áhrif á sam­fé­lagið þegar orðin nokkur. Mynd: EPA

Hausar eru farnir að fjúka vegna viðbragða við nýju kóróna­veirunni í Kína. Í dag var tilkynnt að yfir þúsund hefðu dáið vegna hennar. Langflestir hafa látist í Hubei-héraði þar sem veiran uppgötvaðist í desember. Staðfest er að yfir 42 þúsund hafa veikst. Borgin Wuhan er enn í sóttkví en spurningar hafa vaknað um hvort þær aðgerðir séu að virka sem skyldi. Yfirvöld eru nú harðlega gagnrýnd fyrir viðbrögð sín, ekki síst eftir að ungur læknir, sá sem átti þátt í að uppgötva veiruna, sýktist af henni og lést.

Það er óhætt að segja að áhrif nýju kóróna­veirunnar séu marg­vísleg og finnist víða um heim. Þau eru auðvitað fyrst og fremst heilsufarsleg en einnig efnahagsleg. Langmest eru þau enn sem komið er í Kína. Fasteigna­viðskipti í landinu eru til að mynda aðeins brot af því sem þau voru í fyrra. Fólk hefur um annað að hugsa í augna­blikinu en að skipta um húsnæði. Vélar margra verksmiðja hafa hljóðnað. Bændur eru hikandi við að fara með vörur sínar á markað. Skólar eru sumir hverjir lokaðir. Samfélagið er í biðstöðu.

Stjórn­völd hafa miklar áhyggjur af þessari stöðnun. Þau hafa hvatt fólk og fyrirtæki á svæðum þar sem veiran hefur haft takmörkuð áhrif að auka við fram­leiðslu sína. Reyna að vega upp á móti svæðum sem hafa stöðvað fram­leiðslu eða dregið verulega úr henni. Xi Jinping forseti hefur sagt að aðgerðir yfirvalda til að reyna að hefta útbreiðslu veirunnar hafi gengið of langt og ógni efnahags­kerfi Kína. Þessi orð lét hann falla á lokuðum fundi.

Fleiri en Kínverjar eiga erfitt. Skemmtiferða­skipi með 2.257 manns innanborðs hefur verið bannað að koma að höfn í fjórum löndum. Skipið, Westdam, hefur nú verið í tvær vikur á sjó, án viðkomu í landi. Enginn treystir sér til að að taka við því af ótta við að farþegar og áhöfn kunni að vera sýkt af nýju kóróna­veirunni.

Og sitt hvað undarlegt hefur komið upp. Tveir karlmenn frá Japan, sem voru fluttir frá Wuhan eftir að faraldurinn braust út, hafa nú verið greindir með veiruna. Mánuði fyrr fundust engin merki um hana í líkama þeirra. Þeir eru í hópi 28 sem greinst hafa í Japan. Auk þess eru 135 farþegar skemmtiferða­skips, sem er í sóttkví við bryggju í Yokohama, sýktir.

Á mánudag gaf kínverska landbúnaðar­ráðuneytið út yfir­lýsingu og ráðlagði bændum í landinu að þvo sér vel um hendur, bera andlits­grímur, en halda áfram að undirbúa næstu uppskeru. Ráðuneytið bað einnig fólk í þorpum á lands­byggðinni að hætta að setja upp vegatálma svo að hægt yrði að koma fræjum, skor­dýraeitri og öðru til bændanna.

Merkilegt þykir að ekkert tilfelli hafi greinst í Indónesíu, stærsta hagkerfi Suðaustur-Asíu. Kína er helsta viðskipta­land Indónesíu og því óttast stjórn­völd þar um efnahagsleg áhrif faraldursins.

Kínverska iðnaðar­ráðuneytið hvetur stjórn­endur verksmiðja til að ræsa vélar sínar að nýju en margar þeirra hafa ekki hreyfst vikum saman. Að sögn ráðuneytisins mun faraldurinn ekki hafa áhrif á efnahag Kína til langframa en mikil til styttri tíma litið. Óttast er að til fjölda­uppsagna komi en forsetinn Xi Jinping segist ætla að gera sitt til að koma í veg fyrir það.

Stjórn­völd í Suður-Kóreu hafa ráðlagt borgurum sínum að draga úr ferða­lögum sínum til þeirra landa þar sem veiran hefur greinst, m.a. til Singapúr, Japan, Malasíu, Víetnam og Taílands. Þetta mun hafa áhrif á efnahag þessara landa. Viðbúið er að ferða­mönnum til Singapúr fækki um 25-30% á þessu ári. Þar eru áhrif á ferða­þjónustuna þegar orðin mikil og ferðamála­ráðherrann segir nauðsynlegt að undirbúa sig fyrir að þau verði sambærileg við það sem gerðist í SARS-faraldrinum árið 2003.

Kínverska sjónvarps­stöðin CCTV segir að tveimur yfir­mönnum heilbrigðis­mála í Hubei-héraði hafi verið skipað að taka pokann sinn. Er það gert í kjölfar mikillar gagnrýni á viðbrögð yfirvalda við útbreiðslu faraldursins. Ekki eru allir sann­færðir um að þetta hafi verið rétt ákvörðun heldur að hún sé til marks um það að Xi Jinping forseti vilji miðstýra sem mestu. Uppsagnirnar séu táknrænar, verið sé að reka blóra­böggla stjórn­valda.

Kínverjar urðu harmi slegnir og reiðir er fréttir um dauða hins 34 ára gamla læknis, Li Wenliang, bárust í síðustu viku. Hann hafði varað kollega sína í öðrum löndum við faraldri og var í kjölfarið skammaður af stjórn­völdum í heima­landinu.

103 dauðsföll á einum degi

Á einum sólar­hring voru 108 dauðsföll staðfest í Kína, þar af 103 í Hubei-héraði. Ekki hafa fleiri dauðsföll orðið vegna veiru­sýkingarinnar á einum degi.

Hins vegar virðist vera að hægja á stað­festum tilfellum smitaðra, ef marka má opinberar tölur. Á einum sólar­hring greindust 2.097 í Kína, 20% færri en daginn áður, og hafa ekki færri greinst frá 1. febrúar.

Ekki eru allir sammála um hvað þetta í raun og veru þýðir. Einn helsti faralds­sérfræðingur heims, Gabriel Leung, segir í einka­viðtali viðbreska blaðið Guardian að veiran gæti smitað 60% jarðarbúa ef ekki takist að hefta útbreiðslu hennar enn frekar.

Varnaðarorð hans koma í kjölfar orða framkvæmda­stjóra Alþjóða heilbrigðis­mála­stofnunarinnar sem sagði að fjöldi smitaðra, sem aldrei hefðu komið til Kína, gæti verið „toppurinn á ísjakanum“.

Stórum spurningum þarf að svara

Gabriel Leung, prófessor við Hong Kong-háskóla, sagði að nú væri brýnt að komast að því hversu stór ísjakinn væri og hvernig hann væri í laginu. Ef rétt reyndist, sem margir vísinda­menn hafa haldið fram, að hver sá sem smitast smiti að meðaltali 2,5 til viðbótar, gæti það þýtt að um 60-80% jarðarbúa gætu að lokum smitast af veirunni.

„Sextíu prósent af íbúum jarðar er mjög há tala,“ segir Leung í ítarlegu viðtali við Guardian. Hann segir að jafnvel þótt að dánar­tíðnin sé aðeins um 1% þýði svo umfangs­mikið smit að gríðar­lega margir myndu deyja.

Leung er nú kominn til Genfar til fundar við sérfræðinga Alþjóða heilbrigðis­mála­stofnunarinnar og fleiri. Hann segir að þar verði að ræða hvort að þær aðgerðir sem gripið hefur verið til í Kína séu í raun og veru að virka. Ef þær hafa virkað ættu önnur lönd mögulega að taka þær upp.

Leung þekkir vel til faralds­fræðinnar. Hann var einn helsti sérfræðingurinn sem kom að greiningu SARS-faraldursins árin 2002-2003. Hann starfar náið með fjölda vísinda­manna um heim allan, m.a. frá London.

Getur leynst svo lengi

Í janúar skrifaði hann grein í lækna­tímaritið Lancet þar sem hann varaði við því að faraldrar gætu blossað upp í öðrum borgum en Wuhan vegna þess að fólk sem smitast getur borið veiruna í allt að tvær vikur án þess að sýna nokkur einkenni.

Hann segir að kannski muni veiran ekki sýkja 60-80% jarðarbúa. Kannski munu faraldrar koma upp í bylgjum. Kannski mun veiran sjálf veikjast, hætta að vera jafn banvæn og nú. Enn sé margt á huldu.

Hvað aðgerðir kínverskra yfirvalda varðar, sem hafa sett borgir, hverfi og hús í sóttkví, veltir Leung því fyrir sér hvort að fleiri ríki ættu að grípa til sambærilegra aðgerða. Ef þær virka. „En hversu lengi er hægt að hafa skóla lokaða? Hversu lengi getur þú lokað heila borg af? Hversu lengi er hægt að halda fólki frá verslunar­miðstöðvum? Og þegar þessum takmörkunum verður aflétt, mun veiran blossa upp aftur? Þetta eru stóru spurningarnar.“

Er hægt að hefta útbreiðsluna?

Hafi aðgerðir í Kína hins vegar ekki virkað standi stjórn­völd frammi fyrir enn stærri spurningum. Er kannski ekki hægt að hefta útbreiðsluna? Sé það raunin verða stjórn­völd að sögn Leung að breyta um stefnu, reyna aðra nálgun: Milda áhrifin.

Ein helsta áskorunin er sú hversu lengi fólk getur verið smitað án þess að sýna þess nokkur merki. Og reynslan sýnir nú að þeir sem fóru frá Wuhan, m.a. til margra annarra landa, þurfa að láta rannsaka sig á nokkurra daga fresti. Veiran er lúmsk, hún getur leynst í líkamanum án þess að það takist að greina hana strax. Því er að sögn Leung nauðsynlegt að setja alla sem mögulega hafa komist í snertingu við hana í einangrun í fjórtán daga.

Í frétt BBC, sem skrifuð er af frétta­ritara í Kína, segir að mörg hundruð manns hafi verið rekin, ekki aðeins tveir yfirmenn í Hubei-héraði. Og líklega muni uppsagnir halda áfram. Margir reyna að verja sig. Borgar­stjóri Wuhan segist ekki hafa getað varað almenning við er hann frétti af veirunni því hann hafi ekki haft heimild til þess „að ofan“.

Frétta­ritari BBC segir að mögulega eigi borgar­stjórinn við forystu­menn Kommúnista­flokksins, að með orða­laginu „að ofan“ eigi hann við stjórn­völd í Peking. Það kann að vera rétt en hann gæti einnig verið að reyna að hvítþvo sjálfan sig, framkvæmda­stjóra borgarinnar þar sem veiran uppgötvaðist fyrst.

Á heimasíðu embættis land­læknis má finna leið­beiningar fyrir Íslendinga varðandi kóróna­veiruna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár