Stökk í dauðsföllum af völdum nýju veirunnar

565 hafa látist, þar af 73 í gær. Yfir 28 þúsund manns hafa smitast síðan í desember, þar af er ástand 3.800 alvarlegt. Ungbarn er meðal smitaðra.

Kínverjar reistu sjúkrahús fyrir hundruð sjúklinga á aðeins tíu dögum. Hvert rúm er nú upptekið.
Kín­verjar reistu sjúkra­hús fyrir hund­ruð sjúk­linga á aðeins tíu dögum. Hvert rúm er nú upp­tekið. Mynd: EPA

565 hafa látist, þar af 73 í gær. Yfir 28 þúsund manns hafa smitast síðan í desember, þar af er ástand 3.800 alvarlegt. Hin nýja kóróna­veira, sem fyrst var greind í kínversku borginni Wuhan, á margt sameiginlegt með hinni skæðu SARS-veiru sem dró 774 af þeim rúmlega átta þúsund sem smituðust til dauða á árunum 2002-2003. Þó að mun fleiri hafi smitast af nýju veirunni er hún þó ekki talin eins lífs­hættuleg.

Nýja veiru­sýkingin hefur þegar greinst í að minnsta kosti 25 löndum. Langflest dauðsföllin hafa verið í Kína, aðeins tvö utan þess; annað í Hong Kong og hitt á Filippseyjum.

SARS-faraldurinn, kallaður HABL á íslensku, hefur verið kallaður fyrsti heims­faraldur 21. aldarinnar enda breiddist hann út til 29 landa. SARS-veiran greindist fyrst í Guangdong í Kína og er líkt og sú nýja rakin til markaðar þar sem seld voru lifandi og dauð dýr. Á átta mánuðum veiktust 8.098 af völdum hennar og af þeim létust 774. Nýja kóróna­veiran sýkti jafn marga á aðeins einum mánuði og á þeim tíma tíma höfðu fleiri látist í Kína en í SARS-faraldrinum.

„Kjarninn er sá að þetta er tilbrigði af SARS sem dreifist auðveldar en veldur minni skaða,“ var haft eftir Ian Jones, veiru­fræðingi við Háskólann í Reading á Bretlands­eyjum, í nýrri samanburðar­rannsókn á veirunum tveimur og áhrifum þeirra.

Veikjast seinna eftir smit

Veirurnar haga sér sem sagt ekki með sambærilegum hætti. Til að mynda getur fólk smitast af nýju veirunni og ekki fundið nokkur einkenni fyrr en að tveimur vikum liðnum. Þeir sem sýktust af SARS fóru að finna einkenni á innan við viku.

Fyrstu rann­sóknir á alvarleika nýju veirunnar benda til að dánar­tíðni þeirra sem veikjast sé um 2%. Það hlutfall var mun hærra í SARS-faraldrinum fyrir sautján árum. Af þeim sem sýktust þá létust 9,6%. Þetta kann að vera vanmat á nýju veirunni. Ný rannsókn sem birtist í lækna­blaðinu Lancet, þar sem könnuð voru afdrif 99 sjúklinga, sýndi að 11% þeirra létust.

Er SARS-faraldurinn hafði geisað í mánuð höfðu fimm manns látist. Á þeim mánuði sem leið frá því að nýja kóróna­veiran uppgötvaðist létust hins vegar að minnsta kosti 213 þeirra sem höfðu sýkst.

Ungbarn sýkt

Alþjóða heilbrigðis­mála­stofnunin segir að 50% þeirra sem sýktust af SARS-veirunni hafi verið 65 ára eða eldri. Rann­sóknir nú benda til að meðal­aldur þeirra sem látast af völdum nýju veirunnar sé enn hærri.

Á því eru þó undan­tekningar.Í dag var sagt frá því að ungbarn, aðeins 30 klukku­stunda gamalt, hefði greinst með veiruna. Barnið var fætt á sjúkra­húsi í Wuhan. Móðirin hafði áður en barnið fæddist smitast af veirunni. Ekki er enn ljóst hvort að barnið smitaðist í móður­kviði eða eftir fæðingu.

Vísinda­menn hafa reynt að leggja mat á hversu smitandi nýja veiran er. Ein rannsókn sem gerð var af kínverskum vísinda­mönnum leiddi í ljós að hver sá sem sýkist geti smitað 3-5 til viðbótar. Alþjóða heilbrigðis­mála­stofnunin telur að það sé ofmat, stuðullinn sé 1,4-2,5.

Ein ástæða þess að SARS-veiran breiddist út til svo margra landa á sínum tíma var sú að kínversk yfirvöld héldu upplýsingum um faraldurinn vísvitandi frá Alþjóða heilbrigðis­mála­stofnuninni. Stofnunin fékk ekki veður af málinu fyrr en 88 dögum eftir að fyrsta tilfellið greindist í Kína. Heilbrigðis­yfirvöld voru ekki þau einu sem vissu ekki hvað var í gangi, almenningur fékk heldur engar upplýsingar.

Kínversk yfirvöld segjast hafa brugðist strax við í þetta skiptið. Þau vildu ekki verða uppvís að banvænum feluleik í þetta skiptið. Það er ekki síst vísinda­mönnum í Kína að þakka. Þeir dreifðu upplýsingum um sýkinguna strax til kollega sinna um allan heim.

Borg í sóttkví

Til að hefta útbreiðslu veirunnar var gripið til ýmissa ráðstafanna í borginni Wuhan. Miðbænum var lokað fyrir allri umferð og ferðalög til og frá henni voru mjög takmörkuð. Borgin hefur í raun verið í einangrun í rúmlega tvær vikur. Aðrar kínverskar borgir hafa brugðist við með sama hætti.

Margir læknar telja að fleiri hafi sýkst en gefið hefur verið upp. Þeir segja öngþveitið á sjúkra­húsum í Wuhan og víðar í sama héraði það mikið að ómögulegt sé að leggja nákvæmt mat á stöðuna. Fjölmörg dæmi eru um að fólk leiti ekki til sjúkra­húsa, þeim sé vísað frá vegna álags.

Bráðabrigðabúðir fyrir fólk með mild einkenni veiru­sýkingarinnar hafa verið settar upp um allt, m.a. á íþrótta­leikvöngum, sýningar­sölum og víðar.

Nú stendur til, að því er fram kemur í frétta­skýringu New York Times, að safna sýktum saman í einangrunar­búðir þar sem hægt verði að veita þeim aðstoð og koma í veg fyrir enn frekara smit.

Wuhan er eins og draugabær. Þar sjást flækings­hundar hlaupa um götur sem áður voru troðfullar af bílum og fólki. Heyra má fuglasöng á fjöl­förnum stöðum sem áður drukknaði í skvaldri og umferðarnið.

Í gluggum apóteka stendur stórum stöfum að andlits­grímur, hitamælar og fleira sé uppselt.

Frá dýrum í menn

Talið er líklegast á þessari stundu að veiran hafi borist í menn úr leður­blökum. Það er sambærileg smitleið og SARS-veiran fór árið 2002. Ekki er þó hægt að fullyrða að smitið hafi beint borist á milli leður­blöku og manns. Leður­blökur geta sýkt önnur dýr með munnvatni og skít og því er mögulegt að menn hafi smitast af öðrum dýrum, mögulega svínum.

Ekkert bóluefni er til við nýju kóróna­veirunni og ólíklegt er að það verði fáanlegt á næstunni, mögulega ekki áður en faraldurinn fjarar út.

Sóttvarna­læknir í samráði við stjórn­völd hefur vald til að beita ýmsum harka­legum ráðum til að sporna við útbreiðslu farsótta, samkvæmt sóttvarna­lögum. Á heimasíðu embættis landlæknis um kóróna­veiruna segir að afar mikilvægt sé að sóttvarna­viðbrögð séu í samræmi við alvarleika ógnar og vega þarf áhrif viðbragða á móti áhrifum farsóttarinnar.

Viðbragðs­áætlanir sóttvarna­læknis lýsa þessu samhengi ágætlega en þar er möguleg lokun eða takmörkun samgangna tekin fyrir á hættu- og neyðar­stigum. Eins og staðan er núna er unnið á óvissu­stigi og hafa sóttvarna­læknir, almanna­varnir og heilbrigðis­ráðherra ákveðið að ekki sé ástæða til að loka landinu nú. Mögulegt er að smit berist hingað með ferða­mönnum en mikill meirihluti ferða­manna sem hingað kemur hefur ekki verið á sýktum svæðum, segir í leið­beiningunum.

Ef landinu er lokað komast Íslendingar sem staddir eru erlendis ekki heim og öll aðföng og útflutningur stöðvast. „Ef tekin væri ákvörðun um lokun landsins núna er útilokað að segja til um hversu lengi slíkar ráðstafanir yrðu í gildi. Mögu­leikinn á þessu úrræði er í stöðugri endur­skoðun í samræmi við áhættumat á hverjum tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár