Obama varar við því að styrjaldartíminn geti komið aftur

Forsetinn fyrr­verandi segir að fólk megi ekki búast við því að hlutirnir verði alltaf eins og þeir hafa verið. Allt í einu geti glundroði myndast í heiminum.

Barack Obama, fyrr­verandi forseti Banda­ríkjanna, segir að fólk geti ekki gengið að því vísu að hlutirnir muni ekki breytast til hins verra og jafnvel stríðs­tímar, líkir þeim sem sáust á tímum heim­styrjald­anna, brjótist út á nýjan leik.

Á ráðstefnu í Chicago sagði hann að fólk ætti að hugsa til þess að þróuð samfélög geti breyst skyndi­lega, ef aðstæður til þess skapast.

Hann brýndi fyrir gestum að það þyrfti að vernda lýðræðið, og fólk yrði að muna að taka þátt og kjósa. Þegar kæruleysi gerði vart um sig í samfélögum þá geti það leitt til óstöðug­leika sem grafi hratt undan samfélögum, jafnvel þeim sem teljast sterk fyrir.

Hann bað fólk um að hugsa til þess sem hefði gerst í Þýska­landi þar sem uppgangur nasismans hefði endað með skelfingu, og 60 milljónir manna hefðu látið lífið, í glundroða átökum víða um heiminn. Allt hefði þetta gerst á tiltölu­lega skömmum tíma, og sprottið upp í samfélögum sem voru þróuð og framfarir augljósar.

Aðstæður eins og þessar geti komið upp, og að hlutirnir geti breyst hratt til hins verra ef fólk hugsaði ekki um að vernda lýðræðið og taka þátt í því að bæta samfélagið.

Obama hefur að mestu haldið sig til hlés eftir að hann hætti sem forseti og Trump tók við, en hefur þó gagnrýnt áherslur hans í innflytjenda­málum og einnig fleiri stefnumál, meðal annars áherslur í utan­ríkismálum og einkum áherslu hans á að slíta Banda­ríkin frá alþjóð­samstarfi eins og Parísar­samkomu­laginu. Hann hefur lagt mesta áherslu á að virkja fólk til þátttöku í stjórn­málum, og sagt því að taka lýðræðið alvarlega. Ekkert komi af sjálfu sér og kæruleysi geti leitt til mikilla erfið­leika.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár