Tillerson segist enga ástæðu hafa til að efast um geðheilsu Trump

Rex Tillerson, utan­ríkis­ráðherra, segist vera að vinna í því að styrkja sambandið sem hann á við forsetann Donald Trump.

Rex Tillerson, utan­ríkis­ráðherra Banda­ríkjanna, segist ekki hafa neina ástæðu til að efast um geðheilsu Donalds Trumps, Bandaríkja­forseta. Tillerson, sem hefur átt í storma­sömum samskiptum við forsetann, og kallaði hann meðal annars „fífl“ á fundi í fyrra, segir að hann sé ekki að fara hætta og sé að vinna í því að styrkja sambandið við forsetann.

Í nýrri bók Michael Wolff, Fire and Fury, er því haldið fram að nánustu samstarfs­menn Trumps efist um hæfni hans til að gegna embættinu og að sumir þeirra hafi meðal annars rætt um áhyggjur af því að Trump sé veikur á geði.

Wolff segir bókina byggja á um 200 viðtölum, en sumir viðmælendur koma fram undir nafni, eins og fyrrum aðal­ráðgjafi forsetans, Steven Bannon, en hann segir Donald Trump jr., son forsetans, hafa framið landráð með því að funda með rússneskum erindrekum í aðdrag­anda kosningana 2016. Þá heldur Bannon því einnig fram í bókinni að fólkið í kringum forsetann treysti honum ekki.

Lögmenn Trump reyndu að fá lögbann á bókina, en útgáfunni var flýtt þegar það gerðist. Trump segir bókina fulla af lygum og ósannindum, og gefur lítið fyrir það sem fram kemur í bókinni. Hann segir að Bannon hafi farið að grenja þegar hann var rekinn úr starfi sínu, og að það sé ekki hægt að treysta honum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár