Yfirlýsingar Benedikts á skjön við raunverulega stefnu ríkisstjórnarinnar

Fjármála­ráðherra talar um að „hafna krónunni“ eða tengja við annan gjald­miðil en forsætis­ráðherra segir hvorugt standa til. Jafnframt vinnur verkefnis­stjórn um endur­skoðun peninga­stefnunnar samkvæmt þeirri forsendu að krónan verði gjald­miðill Íslendinga um fyrir­sjáanlega framtíð.

Yfir­lýsingar Benedikts Jóhannessonar fjármála­ráðherra um að „hafna krónunni“ ganga í berhögg við vinnu verkefnis­stjórnar um endur­skoðun peninga­stefnu Íslands ef marka má orð Bjarna Benedikts­sonar forsætis­ráðherra. Jafnframt stangast þær á við yfirlýsta stefnu ríkis­stjórnarinnar í gjaldmiðla­málum eins og hún hefur birst í málflutningi forsætis­ráðherra sem hefur sagt að hvorki sé á döfinni að kasta krónunni né að festa hana við annan gjald­miðil. 

Eins og fram kom í viðtali Bloomberg-frétta­stofunnar við Bjarna Benediktsson í apríl miðar vinna verkefnis­stjórnarinnar að því að íslenska krónan verði áfram gjald­miðill Íslendinga um fyrir­sjáanlega framtíð. Bjarni ítrekar þetta í viðtali við Vísi í dag og bregst þannig við aðsendri grein eftir Benedikt sem birtist í Frétta­blaðinu í morgun. 

Er þetta í annað skipti á fáeinum mánuðum sem forsætis­ráðherra stígur fram og ber til baka yfir­lýsingar fjármála­ráðherra eigin ríkis­stjórnar um gjaldmiðla­stefnu Íslands. Áður hefur Bjarni hafnað málflutningi Benedikts um að ríkis­stjórnin hafi í hyggju að tengja krónuna við annan gjald­miðil.

„Krónan leiðir til óstöðug­leika, býr til sveiflur sem leiða til óábyrgra fjár­festingar­ákvarðana og óstöðugs kaup­máttar. Vextir eru og verða mun hærri á Íslandi en í viðmiðunar­löndum vegna óstöðug­leika krónunnar,“ sagði Benedikt í grein sem birtist í Frétta­blaðinu í morgun undir yfir­skriftinni „Má fjármála­ráðherra hafna krónunni?“. Óvenjulegt er að fjármála­ráðherra tali með slíkum hætti gegn gjald­miðli eigin ríkis. 

Ríkis­stjórn Sjálfstæðis­flokksins, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar skipaði þriggja manna verkefnis­stjórn um endurmat íslenskrar peninga­stefnu í mars. Í nefndinni sitja Illugi Gunnarsson, fyrr­verandi ráðherra Sjálfstæðis­flokksins, og hagfræðingarnir Ásdís Kristjáns­dóttir og Ásgeir Jónsson. Að því er fram kom í frétta­tilkynningu er markmið endur­skoðunarinnar „að finna þann ramma peninga- og gjaldmiðils­stefnu sem til lengri tíma litið er heppilegastur til að styðja við efnahags­legan og fjármála­legan stöðug­leika með tilliti til hagvaxtar, verðbólgu, vaxta, gengis og atvinnu­stigs“. 

Bjarni Benediktsson stað­festir í dag að „í því starfi sem þegar er komið af stað er gert ráð fyrir því að við verðum áfram með íslensku krónuna en við erum að skoða leiðir til að draga úr sveiflum“. Þetta er í samræmi við orð hans frá því í apríl um að nefndin vinni samkvæmt þeirri forsendu að krónan verði gjald­miðill Íslendinga um fyrir­sjáanlega framtíð. „Eftir kosningar var myndað ríkis­stjórnar­samstarf og það var gerður stjórnar­sáttmáli þar sem við erum að starfa saman á öðrum grund­velli en hann hefði kannski kosið.“ 

Sem kunnugt er hafa Benedikt Jóhannesson og flokkur hans, Viðreisn, talað eindregið fyrir því að gengi krónunnar verði fest við annan gjald­miðil með upptöku myntráðs. Í slíku fyrir­komulagi felst að stjórn­völd skuld­binda sig til þess að skipta innlendum gjald­miðli út fyrir kjölfestugjaldmiðil, svo sem evru, á fyrirfram ákveðnu gengi. 

Haft var eftir Benedikt á vef Financial Times þann 1. apríl síðastliðinn að til skoðunar væri að tengja íslensku krónuna við annan gjald­miðil, svo sem við evru eða pund. Ríkjandi ástand í myntmálum væri óþolandi og breytinga þörf. Daginn eftir steig Bjarni Benediktsson forsætis­ráðherra fram í viðtali við Bloomberg-frétta­stofuna og hafnaði full­yrðingum Benedikts. Sagði hann að fasttenging krónunnar við evru eða pund væri ekki á döfinni, hvað sem liði full­yrðingum fjármála­ráðherra Íslands. 

Við myndun ríkis­stjórnar Sjálfstæðis­flokksins, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar var ákveðið að Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, myndi ekki fara með málefni Seðla­bankans þrátt fyrir að vera fjármála­ráðherra og hafa lagt megin­áherslu á gjaldmiðlamál í kosninga­baráttu sinni. 

Engu að síður hefur hann haldið áfram að tala fyrir upptöku myntráðs, eða því að Ísland hætti alfarið að styðjast við krónuna. Nýlega mætti hann í sjónvarps­viðtal um styrkingu krónunnar klæddur stuttermabol með mynd af evrunni. 

Samninga­viðræður við Evrópu­sambandið um að ganga í banda­lagið og taka upp evru eru þó ekki á dagskrá, enda sömdu Viðreisn og Björt framtíð við Sjálfstæðis­flokkinn um að koma í veg fyrir að boðað yrði til þjóðar­atkvæða-greiðslu um framhald aðildar­viðræðna allt fram til loka kjör­tímabilsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár