Ofbeldistilburðir Trumps vekja hneykslan

Forseti Banda­ríkjanna birti myndband á Twitter svæði sínu þar sem hann sést lumbra CNN manni.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Donald J. Trump, Bandaríkja­forseti, hefur vakið marga úr fjölmiðla­stétt til reiði fyrir myndband sem hann birti á Twitter svæði sínu. Í því sést hann Trump lumbra á manni sem er tákn fyrir CNN sjónvarps­stöðina, en Trump hefur lengi átt í miklum deilum við CNN og fleiri fjölmiðla í Banda­ríkjunum, og sakað þá um falskan frétta­flutning.

Í viðtali við ABC segir álits­gjafinn Ana Navarro, sem oft er kölluð til þegar pólitísk umræða er annars vegar, að með þessu háttalagi sé Trump að ýta undir ofbeldis­fulla hegðun og það hann muni enda á því að „drepa einhvern“ úr fjölmiðla­stétt.

Í yfirlýsingu frá CNN kemur fram að dagurinn í dag sé sorgar­dagur fyrir Banda­ríkin, þar sem sjálfur forseti landsins hvetji til ofbeldis gegn frétta­mönnum stöðvarinnar. Í yfir­lýsingunni segir síðan enn fremur að CNN muni áfram sinna störfum sínum, og það ætti Trump að gera líka. Er þetta háttalag Trumps sagt vera langt fyrir neðan virðingu embættis forseta Banda­ríkjanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár