Húsnæðisátak meðal þess sem finna má í samstarfssáttmála nýs meirihluta

Samstarfs­sáttmáli nýs meirihluta í Reykjavík svarar kröfu Fram­sóknar um breytingar í borginni að öllu leyti að sögn oddvita flokksins. Húsnæðisátak er meðal þess sem finna má í sátt­málanum, sem er 33 síður.

Oddvitar flokkanna fjögurra sem mynda nýjan meirihluta í borgarstjórn kynntu samstarfssáttmála flokkanna í Elliðaárdal í dag.
Oddvitar flokk­anna fjög­urra sem mynda nýjan meiri­hluta í borg­ar­stjórn kynntu sam­starfs­sátt­mála flokk­anna í Elliða­ár­dal í dag. Mynd: Skjáskot: RÚV

Húsnæðismál, samgöngumál og lofts­lagsmál eru meðal helstu mála í samstarfs­sáttmála nýs meirihluta Framsóknar­flokksins, Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar sem kynntur var á blaðamanna­fundi oddvita flokkanna í Elliða­árdal í dag.

Í sátt­málanum, sem er alls 33 blaðsíður, er fyrst fjallað um þau verkefni sem falla undir fyrstu breytingar.

Meðal þeirra verkefna er húsnæðisátak og úthlutun lóða í Úlfars­árdal, Gufunesi, á Kjalarnesi, Hlíðar­enda og Ártúns­höfða, auk samkeppni um skipulag Keldna­lands og Keldna­holts.

Þá verður frístunda­styrkur hækkaður í 75 þúsund krónur 1. janúar 2023 og börn á grunn­skólaaldri frá ókeypis í sund og strætó. Einnig verður viðhalds­átak sett í forgang í leik-, grunn- og frístunda­húsnæði borgarinnar og verkefnum flýtt eins og kostur er.

Meðal fyrstu verkefna verður einnig að koma nætur­strætó aftur í umferð og gerð verður tilraun með að hafa eina sundlaug borgarinnar opna til miðnættis.

Sáttmálinn svari kröfu Framsóknar um breytingar að öllu leyti

„Ég er ákaflega ánægður með þennan sáttmála. Hann svarar að öllu leyti kröfu Fram­sóknar um breytingar í Reykjavík á næsta kjör­tímabili,“ sagði Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar­flokksins, í Reykjavík, á sameiginlegum blaðamanna­fundi nýs meirihluta í Elliða­árdal í dag.

Dóra Björt Guðjóns­dóttir, oddviti Pírata, sagði áherslur Pírata í samstarfs­sáttmálanum endur­speglast í loftslags­málum „sem er leiðar­ljós í gegnum þennan sáttmála“, auk „lýðræðis, gagnsæis og réttláts samfélags fyrir öll og alla hópa“. Umhverfis- og lofts­lagsmál fara inn í Skipulagsráð sem verður leitt af Dóru Björt.

Þórdís Lóa Þórhalls­dóttir, oddviti Viðreisnar, sagði að áhersla verði lögð á atvinnu- og nýsköpunarmál, auk loftslags­mála. Þórdís Lóa verður forseti borgar­stjórnar og þar mun samtal við atvinnu­lífið fara fram.

Dagur Eggertsson, formaður Samfylkingarinnar, verður áfram borgar­stjóri út næsta ár þegar Einar tekur við. Dagur sagði mikinn fersk­leika yfir nýja meirihlutanum. Að hans mati felst meirihluta­samstarfið í að þróa samstarfið áfram og í græna átt og að fram undan sé mesta uppbyggingar­skeið í sögu borgarinnar. „Ekki síst í húsnæðis­málum en líka í samgöngu­málum, borgar­línu, Sunda­braut og fleiri verkefni sem við höfum náð saman um.“

Einar sagði kosninga­baráttuna hafa leitt í ljós kröfu um breytingar í húsnæðis- og samgöngu­málum og ýmsum velferðar­málum og segir hann flokkana hafa náð vel saman utan um þessi mál í meirihluta­viðræðunum. Samstarfs­sáttmálinn er að hans mati gott veganesti inn í næstu fjögur ár.

Fyrsti fundur nýrrar borgarstjórnar á morgun

Málefna­samningurinn verður kynntur innan flokkanna í kvöld. Framsóknar­flokkur hefur boðað til fundar innan borgarmála­ráðs flokksins. Þá hefur fulltrúaráð Samfylkingar­félaganna í Reykjavík boðað til allsherjar­fundar í húsnæði flokksins í Sóltúni. Reykja­víkurráð Viðreisnar hefur sömuleiðis boðað til fundar og Píratar í Reykjavík hafa einnig boðað til kynningar­fundar.

Fyrsti borgar­stjórnar­fundur nýs meirihluta verður á morgun, þriðjudag, og hefst klukkan 14 þar sem verður meðal annars kosið í ráð og nefndir innan borgar­stjórnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kosningar 2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár