Ísland leggst gegn aukinni samábyrgð Evrópuríkja í flóttamannamálum

Sigríður Andersen, dómsmála­ráðherra nýrrar ríkis­stjórnar, fór til Möltu og beitti sér gegn breytingum á Dyflinnar­reglu­gerðinni og aukinni samábyrgð Evrópu­ríkja vegna afgreiðslu hælis­umsókna. Þingmaður Sjálfstæðis­flokksins vill mæta ákveðnum hópi hælis­leitenda „með hörðum stálhnefa“.

Sigríður Andersen dómsmála­ráðherra lýsti efasemdum fyrir Íslands hönd gagnvart fyrir­huguðum breytingum á Dyflinnar­reglu­gerðinni og áformum um aukna samábyrgð Evrópu­ríkja vegna flóttamanna­vandans á fundi dómsmála­ráðherra og innan­ríkis­ráðherra í Valetta á Möltu í síðustu viku.

Þetta kemur fram á vef innan­ríkis­ráðuneytisins en á fundinum voru Schengen-samstarfið og málefni hælis­leitenda til umræðu. 

„Ráðherra greindi þar frá áherslum nýrrar ríkis­stjórnar Íslands í hælis­málum ásamt efasemdum Íslands gagnvart fyrir­huguðum breytingum á Dyflinnar­reglu­gerðinni, þ.e. aukinni samábyrgð vegna afgreiðslu hælis­umsókna og áfram­flutningi hælis­leitenda frá þeim ríkjum Evrópu sem taka á móti flestum hælis­umsóknum til ríkja sem ekki sæta sambærilegri ásókn hælis­leitenda,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins. 

„Eigum að mæta þeim með hörðum stálhnefa“

Aukinnar hörku hefur gætt í málflutningi íslenskra stjórn­málamanna í umræðum um útlendingamál undan­farnar vikur.

„Við ætlum ekki að láta það átölu­laust ef menn ætla að misnota þá velvild sem við viljum sýna og ég held að öll þjóðin vilji sýna stríðs­hrjáðu fólki, ef menn vilja misnota hana með tilhæfu­lausum umsóknum um hæli,“ sagði nýr dómsmála­ráðherra í viðtali við RÚV á dögunum.

Eins og Stundin greindi frá í gær kallaði Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, eftir því að hópi hælis­leitenda sem hann telur að leiti hingað til lands til að „misnota velferðar­kerfið“ yrði sýnd harka. Íslendingar hafi „villst töluvert mikið af leið“ í málefnum útlendinga. Þetta kom fram í viðtali við hann á Útvarpi Sögu á dögunum.

„Þegar kemur að útlendinga­málum þá held ég að við höfum villst töluvert mikið af leið. Ég vil orða þetta þannig: Við eigum að opna faðminn mjúkan, gagnvart því fólki sem þarf tíma­bundið eða jafnvel til langframa að leita sér raun­verulegs skjóls. En við eigum að mæta öllum þeim með hörðum stálhnefa sem ætla að koma hingað til Íslands sem, í rauninni ja eigum við að segja, misnota velferðar­kerfið okkar,“ sagði Óli Björn.

Eins og tilkynningin á vef innan­ríkis­ráðuneytisins sýnir er þessum málflutningi fylgt eftir á alþjóða­vettvangi þar sem Ísland beitir sér gegn aukinni samábyrgð Evrópu­ríkja vegna afgreiðslu hælis­umsókna. 

Sjá einnig:

Nýr mann­réttinda­ráðherra ritstýrði vefriti sem
hæddist að flótta­fólki og mann­réttinda­umræðu

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár