Öllum kröfum ÁTVR gegn Sante og Bjórlandi vegna sölu áfengis í vefverslunum vísað frá

ÁTVR höfðaði mál á hendur tveimur vefverslunum sem selja íslenskum neytendum áfengi, taldi þær hafa brotið á einka­rétti sínum til áfengis­sölu og vildi fá bóta­skyldu viðurkennda. Dómurinn hafnaði öllum mála­tilbúnaði ríkis­fyrir­tækisins.

Ívar J. Arndal er forstjóri ÁTVR.
Ívar J. Arndal er for­stjóri ÁTVR. Mynd: ÁTVR

Málum Áfengis- og tóbaks­verslunar ríkisins (ÁTVR) gegn vefverslunum sem selja áfengi til íslenskra neytenda, Sante og Bjórlandi, var í dag vísað frá dómi. Dómarinn í málunum féllst á allan mála­tilbúnað lögmanna Sante og Bjórlands en hafnaði öllum mála­tilbúnaði ÁTVR.

Í öðru málinu var Arnari Sigurðs­syni, eiganda Sante, stefnt ásamt fyrir­tækjunum Sante ehf. og Santewines SAS. Í hinu var fyrir­tækinu Bjórlandi einu stefnt.

ÁTVR, sem er ríkis­fyrirtæki, taldi að fyrir­tækin hafi brotið gegn áfengis­lögum með starfsemi sinni og brotið á einka­rétti sínum til smásölu á áfengi. Ríkis­fyrirtækið vildi að Sante og Bjórland myndu láta af viðskiptum með áfengi og að bóta­skylda fyrir­tækjanna gagnvart sér yrði viðurkennd.

Sante og Bjórland fóru bæði fram á að málum gegn sér yrði vísað frá dómi meðal annars á þeim grund­velli að ÁTVR ætti ekki lögvarða hagsmuni af úrlausn þess. Þá töldu lögmenn þeirra að greinar­gerð ÁTVR hefði ekki uppfyllt kröfur réttarfars­laga um skýrleika. Auk þess hafði ÁTVR ekki sýnt fram á tengsl meintrar háttsemi stefndu fyrir­tækjanna tveggja við „ætlað skaðaverk eða leitt nokkrar líkur að tjóni sínu.“

Ekki hlutverk ÁTVR að hafa eftirlit með einkarétti

Í niður­stöðu Héraðs­dóms Reykja­víkur í dag í málunum tveimur kemur fram samhljóma niður­staða. Þar er tekið undir sjónarmið Sante og Bjórlands um að ÁTVR hafi ekkert með svona mála­rekstur að gera.

Lög feli ÁTVR það markmið að vinna gegn misnotkun áfengis og takmarka í því skyni aðgengi að og framboð á áfengi. „En þó að stefnanda sé að lögum falinn einka­réttur eða einka­leyfi til smásölu á áfengi telst það ekki meðal verkefna hans að viðhalda einka­réttinum eða vernda hann með málsóknum fyrir dómstólum. Allt eftirlit samkvæmt lögum er falið öðrum stjórn­völdum. Löggjafinn hefur þannig ákveðið í hvaða farveg brot gegn einka­rétti stefnanda eigi að fara og sú eftir­fylgni eða eftirlit er ekki í höndum stefnanda.“

ÁTVR sýndi ekki fram á tjón

Varðandi viðurkenningu á skaða­bótakröfu þá kemst dómurinn að þeirri niður­stöðu að ÁTVR hafi ekki í mála­tilbúnaði sínum „freistað þess að upplýsa nánar eða leggja fram gögn um það tjón sem hann kveðst hafa orðið fyrir vegna háttsemi stefnda […] Að mati dómsins skorti því verulega á að fullnægt sé þeim skilyrðum sem gerð eru til sönnunar á tilvist tjóns í málum sem höfðuð eru til viðurkenningar á bóta­skyldu“.

Til viðbótar tekur dómurinn fram að samkvæmt lögum um starfsemi ÁTVR eigi hún að vera sem hagkvæmust og afla tekna sem nægi til að greiða rekstrar­kostnaði og skila hæfilegum arði til ríkis­sjóðs. „Fjár­mögnun stofnunarinnar er þannig á grund­velli almennrar tekju­öflunar og arðurinn er íslenska ríkisins, en ekki stefnanda. Er því ekki unnt að líta svo á að stefnandi, sem er ríkis­stofnun, hafi af því fjárhags­lega hagsmuni að viðhalda einka­rétti á sölu áfengis í smásölu enda er það löggjafans að ákveða fyrir­komulag á sölu áfengis í smásölu í landinu.“

Að endingu segir í dómunum að annmarkar og vankantar á mála­tilbúnaði ÁTVR leiði til að leiði „hver og einn og allir í senn, til þess að óhjákvæmilegt er að vísa máli þessu frá í heild sinni frá dómi“.

ÁTVR er gert að greiða Arnari Sigurðs­syni, Sante ehf. og Sante SAS samtals 1.650 þúsund krónur í máls­kostnað og Bjórlandi 950 þúsund krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár