Faraldurinn stórjók áfengiskaup hjá ÁTVR en neftóbakssalan hrundi

ÁTVR stendur í stór­ræðum. Síðasta rekstr­arár reynd­ist langt um betra en reiknað var með þar sem lands­menn keyptu nær allt áfengi sem þeir neyttu í vín­búðum fyr­ir­tæk­is­ins. Það ástand mun ekki vera til lengdar og nef­tó­baks­sala ÁTVR hefur hrunið. A

Tilvera ÁTVR hefur verið umdeild lengi. Mikil póli­tísk hug­mynda­fræði­leg átök hafa verið um hvort hið opin­bera eigi yfir höfuð að reka vín­búðir. Þar fer hluti Sjálf­stæð­is­flokks­ins fremstur í flokki og hefur gert lengi, án þess að það hafi þó skilað miklu.

Fyr­ir­komu­lag ÁTVR sem fyr­ir­tækis er líka um margt óvenju­legt. Yfir fyr­ir­tæk­inu er ekki stjórn líkt og er yfir mörgum öðrum rík­is­fyr­ir­tækjum sem veita þjón­ustu, eins og Lands­virkjun, Isavia eða RÚV sem dæmi, heldur sitja helstu stjórn­endur ÁTVR í svoköll­uðu fram­kvæmda­ráði. Það heyrir svo beint undir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið.

ÁTVR er risa­stórt fyr­ir­tæki. Í fyrra rak það 17 stærri vín­búðir og 35 minni um allt land, alls 52 versl­anir. Á 35 ára tíma­bili hefur versl­unum ÁTVR fjölgað um 39 tals­ins. Samhliða hefur þjón­ustu­stigið auk­ist veru­lega. Vöru­fram­boðið er nú marg­falt það sem það var á síð­ustu öld. Árið 1986 seldi ÁTVR 550 teg­undir. Í lok árs 2013 voru þær 2.037. Í fyrra voru þær 4.407 tals­ins.

Opn­un­ar­tími hefur líka verið lengur þannig að sumar versl­anir eru nú opnar til klukkan 20:00 á virkum dögum og til klukkan 18:00 á laug­ar­dögum og opn­un­ar­dögum hefur fjölgað veru­lega.

Sprenging í fyrra

Neyt­endur hafa tekið þess­ari útþenslu fagn­andi. Vínbúðir ÁTVR eru með fjórðu hæstu ein­kunn allra fyr­ir­tækja í mæl­ingum Íslensku ánægju­vog­ar­innar á ánægju við­skipta­vina og næst hæstu ein­kunn í flokki fyr­ir­tækja á smá­sölu­mark­aði. Gagn­rýnendur rekstrar ÁTVR hafa á móti bent á að þessi auknu umsvif séu í and­stöðu við skil­greind mark­mið laga um verslun með áfengi og tóbak, sem sett voru árið 2011. Í þeim segir að eitt þriggja mark­miða lag­anna sé að „tak­marka og stýra aðgengi að áfengi og tóbaki og draga þannig úr skað­legum áhrifum áfengis- og tóbaksneyslu“.

Þá hefur ÁTVR verið gagn­rýnt fyrir að aug­lýsa starf­semi sína þrátt fyrir að bann við áfeng­is­aug­lýs­ingum sé í gildi í land­inu. Vínbúðin má nefni­lega aug­lýsa sig svo lengi sem að að áhersla sé lögð á sam­fé­lags­lega ábyrgð í aug­lýs­ing­unum. Á und­an­förnum árum hafa slíkar aug­lýs­ingar, þar sem fólk er minnt á að muna eftir skil­ríkjum sínum(bannað er sam­kvæmt lögum að selja fólki undir 20 ára áfengi), birst ítrekað í völdum fjöl­miðlum.

Sala ÁTVR á áfengi hefur stór­auk­ist á und­an­förnum rúmum tveimur ára­tugum. Árið 1999 seldi fyr­ir­tækið alls 12,4 millj­ónir lítra af áfengi. Í árs­lok 2019 hafði lítra­magnið næstum tvö­fald­ast og var 22,7 millj­ónir lítra. Rekstr­ar­tekjur ÁTVR voru í heild 11,8 millj­arðar króna árið 1999 og þar af komu um sjö millj­arðar króna af áfeng­is­sölu. Árið 2019 voru rekstr­ar­tekj­urnar orðnar 37 millj­arðar króna, rúm­lega þrisvar sinnum það sem þær voru í krónum talið 20 árum áður, og tekj­urnar af áfeng­is­sölu voru 27,3 millj­arðar króna, eða fjórum sinnum það sem þær voru árið 1999.

Í fyrra varð svo spreng­ing í rekstri ÁTVR. Sala á áfengi jókst um heil 18,3 pró­sent á milli ára. Seldir lítrar urðu 26,8 millj­ónir alls. Þorri söl­unnar er á bjór,eða 77 pró­sent seldra lítra. Ástæðan: heims­far­aldur kór­ónu­veiru.

Heimadrykkja þegar annað er ekki í boði

Þrátt fyrir að fjöldi ferða­manna sem heim­sóttu landið á síð­asta ári hafi farið úr um tveimur millj­ónum í færri en hálfa milljón þá jókst eft­ir­spurn eftir vörum Vín­búð­anna mikið.

Ívar J. Arndal, for­stjóri ÁTVR, fjall­aði um þetta ástand í for­mála nýj­ustu árs­skýrslu fyr­ir­tæk­is­ins. „Veit­inga­hús og barir meira og minna lok­aðir, Frí­höfnin á Kefla­vík­ur­flug­velli óstarf­hæf vegna þess hversu fáir voru á ferða­lagi og margir sem alla jafna eyða vetr­inum í útlöndum komnir heim. Fljót­lega jókst álagið í Vín­búð­unum og ljóst að beita þurfti öllum ráðum til þess að ráða við ástandið. Sölu­aukn­ingin fór langt fram úr öllum áætl­unum.“

Fyrir vikið ruku tekjur ÁTVR upp. Rekstr­ar­tekjur fyr­ir­tæk­is­ins í fyrra voru 44,9 millj­arðar króna, sem er um átta millj­örðum krónum meira en árið áður. Sala á tóbaki stóð nán­ast í stað sem þýðir að aukið sala á áfengi orsak­aði þessa miklu aukn­ingu að nán­ast öllu leyti.

Allt þetta skil­aði því að hagn­aður árs­ins 2020 var rúm­lega 1,8 millj­arðar króna, eða 72,4 pró­sentum meiri en árið áður.

Ekki viðvarandi ástand

Viðbúið er að þessi staða hafi haldið sér inn á árið 2021, á meðan að miklar tak­mark­anir voru enn í gildi vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Fólk drakk sitt áfengi aðal­lega í heima­húsum eða bústöðum í smærri hópum eftir að hafa keypt það í versl­unum ÁTVR.

En nú er þessi staða að breyt­ast. Með bólu­setn­ingum og losun tak­mark­ana – sem fela meðal ann­ars í sér að barir og veit­inga­staðir eru að opna að fullu á ný og ferða­lög milli landa verða auð­veld­ari nán­ast dag frá degi – þá má ætla að ásókn í áfengi í versl­unum ÁTVR drag­ist saman á ný á seinni hluta árs­ins.

Þá mun vægi tóbaks­sölu í rekstri ÁTVR skipta meira máli á ný. Á und­an­förnum árum hefur verið umtals­vert fjallað um hversu mikið það er, eða allt frá því að fyr­ir­tækið Clever Data vann skýrslu fyrir hag­að­ila og var gerð opin­ber árið 2015. Helsta nið­ur­staða hennar var sú að það hefði ekki verið eig­in­legur hagn­aður af starf­semi ÁTVR á árinu 2014. Rekstr­ar­hagn­aður af sölu tóbaks væri langtum meiri en af sölu áfengis, enda sé tóbak­inu ein­ungis dreift í heild­sölu á meðan að áfengið er selt í versl­unum sem ÁTVR á og rekur út um allt land. Nið­ur­staðan var sú að tóbaks­salan byggi til allan hagnað ÁTVR. Eða, með öðrum orðum, nið­ur­greiddi hina umfangs­miklu áfeng­is­sölu.

Ekki fært sérstaklega í bókhaldi

ÁTVR hefur ætið hafnað þess­ari nið­ur­stöðu en ekki lagt fram frek­ari gögn máli sínu til stuðn­ings. Kjarninn óskaði á sínum tíma eftir því að fá sund­ur­liðun á rekstr­ar­kostn­aði vegna sölu tóbaks ann­ars vegar og sölu á áfengi hins­vegar, en var hafnað. Í svari ÁTVR sagði að kostn­aður vegna tóbaks­sölu væri ekki færður sér­stak­lega í bók­haldi ÁTVR.

Ívar J. Arndal, forstjóri ÁTVR.
Ívar J. Arndal, for­stjóri ÁTVR.

Í árs­skýrslu ÁTVR fyrir árið 2018 kom hins vegar fram að alls hefðu sjö manns verið við störf í nef­tó­baks­fram­leiðslu fyr­ir­tæk­is­ins og tólf við heild­sölu og dreif­ingu tóbaks. Alls var kostn­aður ÁTVR vegna launa og launa­tengdra gjalda á árinu 2018 um 2,8 millj­arðar króna og árs­verk voru 354. Það þýðir að árlegur með­al­kostn­aður við hvert árs­verk var um 7,9 millj­ónir króna. Þau 19 árs­verk sem voru í tóbaks­hluta fram­leiðsl­unnar ættu því að hafa kostað um 150 millj­ónir króna á ári.

Það myndi þýða að um 1,5 millj­arða króna hagn­aður stæði eftir af tóbaks­söl­unni eftir að búið væri að gera ráð fyrir tóbaks­gjaldi og launa­kostn­aði þeirra sem störf­uðu beint við tóbaks­dreif­ingu, eða -fram­leiðslu. Það er upp­hæð sem var tæp­lega 400 millj­ónum krónum yfir heild­ar­hagn­aði ÁTVR á árinu 2018.

Þó verður að gera ráð fyrir því tóbaks­salan sé ábyrgð fyrir ein­hverjum við­bót­ar­kostn­aði vegna skrif­stofu­halds og ann­arra sam­eig­in­legra kostn­að­ar­þátta í rekstri ÁTVR en sá kostn­aður nær lík­ast til ekki 400 millj­ónum króna.

Engin áform um sundurliðun

Á grund­velli þess­ara upp­lýs­inga lagði Þor­steinn Víglunds­son, þáver­andi þing­maður Við­reisnar, fram fyr­ir­spurn á Alþingi til Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í fyrra þar sem hann kall­aði eftir því að fá upp­lýs­ingum um afkomu ÁTVR af sölu áfengis ann­ars vegar og tóbaks hins vegar. Þegar svar barst við fyr­ir­spurn­inni var Þor­steinn hættur á Alþingi.

Þorsteinn Víglundsson spurði um sundurliðun á afkomu ÁTVR af sölu áfengis og tóbaks.
Þor­steinn Víglunds­son spurði um sund­ur­liðun á afkomu ÁTVR af sölu áfengis og tóbaks.

Í svar­inu, sem var birt í ágúst 2020, kom fram að engin áform væru uppi um það af hálfu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins að skylda ÁTVR til að leggja fram árs­reikn­inga sína með öðrum hætti. ÁTVR greini ekki í sundur rekstr­ar­kostnað eftir áfengi ann­ars vegar og tóbaki hins vegar. „Árið 1961 voru Áfeng­is­verslun rík­is­ins og Tóbaks­verslun rík­is­ins sam­ein­aðar í eina stofnun Áfengis- og tóbaks­verslun rík­is­ins, ÁTVR. Nú er versl­unin rekin sem ein heild og rekstr­ar­kostn­aði ekki haldið aðskildum enda ekki gerð krafa um slíkt, hvorki í lögum né af hálfu eig­anda,“ sagði í svari Bjarna.

Skömmu áður en að svar barst við fyr­ir­spurn hans greindi Frétta­blaðið frá því að Rík­is­end­ur­skoðun hefði óskað eftir því við for­svars­menn ÁTVR að þeir sund­ur­lið­uðu kostnað sinn vegna sölu á tóbaki ann­ars vegar og sölu á áfengi hins vegar. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá emb­ætt­inu var sú frétt hins vegar röng. Rík­is­end­ur­skoðun seg­ist ekki hafa óskað eftir þess­ari sund­ur­liðun, enda ekki laga­legar for­sendur fyrir því að krefj­ast slíks aðskiln­aðar í bók­haldi fyr­ir­tæk­is­ins.

Arðbær tóbakssala

Líkt og áður sagði voru rekstr­ar­tekjur ÁTVR 44,9 millj­arðar króna í fyrra. Af þeim runnu 30,8 millj­arðar króna til rík­is­sjóðs vegna tóbaks­gjalds (sex millj­arðar króna), áfeng­is­gjalds (17,6 millj­arðar króna), virð­is­auka­skatts (6,3 millj­arðar króna) og arð­greiðslu (einn millj­arður króna).

Það þýðir að um 69 pró­sent allra tekna ÁTVR renna í rík­is­sjóð. Allar þessar tekjur myndu skila sér þangað óháð því hver það væri sem seldi áfengi og tóbak, utan arð­greiðsl­unnar, enda eru álögur á áfengi á Íslandi þær hæstu í Evrópu að Noregi und­an­skildum.

77 pró­sent allra rekstr­ar­tekna ÁTVR, alls 34,6 millj­arðar króna, koma til vegna sölu áfengis. Tekjur vegna tóbaks­sölu voru 10,1 millj­arðar króna og hafa meira og minna staðið í stað árum saman.

Vöru­notkun tóbaks var 8,4 millj­arðar króna í fyrra. Þegar búið er að draga hana frá tekjum ÁTVR þá stendur eftir 1,6 millj­arður króna. Tóbaks­salan fer fram í gegnum mjög hag­kvæma mið­læga tóbaks­sölu þar sem vörur eru að mestu pant­aðar raf­rænt og sóttar á sama stað. Engin tóbaks­smá­sölu­verslun er rekin heldur er ein­ungis um heild­sölu að ræða. Því má ætla að arð­greiðslan sem greidd var til rík­is­ins í fyrra – einn millj­arður króna— sé að uppi­stöðu vegna hagn­aðar í tóbaks­hluta starf­sem­innar.

Þannig hefur það verið ár eftir ár og oft­ast munað mun meiru en á hinu sér­kenni­lega ári 2020, þegar nær öll áfeng­is­sala í land­inu flutt­ist í versl­anir ÁTVR.

Laun hækkuðu umfram launavísitölu

Rekstr­ar­gjöld ÁTVR juk­ust einnig umtals­vert í fyrra og voru 43 millj­arðar króna. Þar skipti þó mestu aukin vöru­notkun vegna auk­innar eft­ir­spurnar.

Laun og launa­tengd gjöld juk­ust um 8,1 pró­sent þrátt fyrir að reiknuð árs­verk – alls 356 – hafi ein­ungis verið tveimur fleiri en á árinu 2019. Launa­kostn­aður hjá ÁTVR var umfram hækkun launa­vísi­tölu í fyrra, sem var 7,2 pró­sent.

Árslaun for­stjóra ÁTVR, að með­töldum launa­tengdum gjöldum, hækk­uðu um hálfa milljón króna árið 2020 í 22,3 millj­ónir króna. Það þýðir að hann hafi verið með tæp­lega 1,9 millj­ónir króna á mán­uði.

Stjórn­unar- og skrif­stofu­kostn­aður ÁTVR jókst um 8,4 millj­ónir króna í 381 milljón króna í fyrra. Á ​meðal þess sem fallið hefur undir þann lið er ferða­kostn­aður, aðkeypt sér­fræði­þjón­usta, rekstur tölvu­kerfa og hug­bún­aðar, gjafir og risna og ýmis starfs­manna­kostn­aður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið undanfarið ár