Skýrsla Ríkisendurskoðunar kynnt í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd á mánudag

Næstum átta mánuðum eftir að íslenska ríkið seldi 22,5 prósent hlut í Íslands­banka í lokuðu útboði til 207 fjárfesta á verði sem var lægra en markaðs­verð bankans mun Ríkis­endurskoðun loks birta skýrslu sína um sölu­ferlið.

Þórunn Sveinbjarnardóttir er formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir er for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar. Mynd: Eyþór Árnason

Næst­komandi mánudag, 14, nóvember, mun Ríkis­endurskoðun kynna skýrslu sína um stjórnsýslu­úttekt á söluferli Íslands­banka í mars síðastliðnum fyrir stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd Alþingis. Samkvæmt heimildum Kjarnans er ríkis­endur­skoðandi búinn að tilkynna að skýrslan muni berast nefndar­mönnum í tæka tíð til þess að þeir geti kynnt sér efni hennar áður en fundurinn fer fram. Það verði þó ekki á morgun föstudag og því fá nefndar­menn skýrsluna annað hvort á laugardag eða sunnudag.

Ef haldið verður í venjur mun skýrslan svo verða birt almenningi í kjölfar kynningar fyrir nefndinni. Landsmenn geta því búist við að geta lesið hana á heimasíðu Ríkis­endur­skoðunar seinni part mánudags.

Þá verða næstum átta mán­uðir verða frá því að salan átti sér stað og sjö mán­uðir og sjö dagar verða liðnir frá því að beðið var um hana. Skilin hafa frest­ast um fjóra og hálfan mán­uð.

Skoðað hvort ráðuneyti og Bankasýsla hafi farið að lögum

Stjórn­­­sýslu­út­­­tekt Rík­­is­end­­ur­­skoð­unar snýst í meg­in­at­riðum um hvort fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neyt­ið, sem stýrt er af Bjarna Bene­dikts­­syni, og Banka­­sýsla rík­­is­ins, undir­stofnun þess, hafi staðið til­­hlýð­i­­lega að fram­­kvæmd söl­unnar á áður­­­nefndum 22,5 pró­­­sent hlut rík­­­is­ins í Íslands­­­­­banka til 207 fjár­­­­­festa í lok­uðu útboði fyrir 52,65 millj­­­arða króna í mars síð­­­ast­liðn­­­um.

Hóp­­­ur­inn sem fékk að kaupa inn­­­i­hélt meðal ann­­­­ars starfs­­­­menn og eig­endur sölu­ráð­gjafa, litla fjár­­­­­­­festa sem rök­studdur grunur er um að upp­­­­­­­fylli ekki skil­yrði þess að telj­­­­ast fag­fjár­­­­­­­fest­­­­ar, erlenda skamm­­­­tíma­­­­sjóði sem höfðu sýnt það áður í verki að þeir hafi engan áhuga á að vera lang­­­­tíma­fjár­­­­­­­festar í Íslands­­­­­­­banka, fólk í virkri lög­­­­­­­reglu­rann­­­­sókn, aðila sem áttu stóra hluti í bönkum fyrir hrun og föður fjár­­­­­­­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Þá rann­sakar Fjár­­­­­­­mála­eft­ir­lit Seðla­­­­banka Íslands (FME) ýmsa þætti söl­unn­­­ar, sér­­­­stak­­­­lega við­­­­skipti sem áttu sér stað í aðdrag­anda söl­unnar og atferli hluta þeirra sölu­ráð­gjafa sem ráðnir voru til að selja hluti í bank­an­­­­um. Ekk­ert hefur verið gert opin­bert um stöðu þeirrar rann­­sóknar en allir fimm inn­­­­­lendu sölu­ráð­gjaf­­­arnir hafa fengið fyr­ir­­­spurnir frá Fjár­­­­­mála­eft­ir­liti Seðla­­­banka Íslands vegna rann­­­sóknar þess.

Að minnsta kosti þrír ráðherrar búnir að sjá drög að skýrslunni

Úttekt Ríkis­endur­skoðunar er gerð að beiðni Bjarna Bene­dikts­son­ar, en hann bað for­m­­­­­­lega um gerð hennar 7. apríl síð­­­­­­ast­lið­inn og Rík­­­­­­is­end­­­­­­ur­­­­­­skoðun sam­­­­­­þykkti að taka að sér verk­ið. Það gerð­ist í kjöl­far þess að sölu­­­­ferlið var harð­­­­lega gagn­rýnt víða í sam­­­­fé­lag­inu. Í bréfi ráðu­­­­­­­neyt­is­ins kom fram að umræða hafi skap­­­­­­­ast um hvort fram­­­­­­­kvæmd söl­unnar hafi verið í sam­ræmi við áskilnað laga og upp­­­­­­­­­­­­­legg stjórn­­­­­­­­­­­­­valda sem borið var undir fjár­­­­­­­laga­­­­­­­nefnd og efna­hags- og við­­­­­­­skipta­­­­­­­nefnd Alþingis til umsagn­­­­­­­ar.

Það var gert þrátt fyrir háværar kröfur um að skipuð yrði rann­­­­sókn­­­­ar­­­­nefnd Alþing­is, sem hefur mun víð­tæk­­­­ari rann­­­­sókn­­­­ar­heim­ild­ir, til að fara yfir söl­una. Í könnun Gallup frá því í apríl kom fram að næstum þrír af hverjum fjórum aðspurðum vildi að rann­­­­sókn­­­­ar­­­­nefnd yrði skipuð og taldi að ekki væri nægj­an­­­­legt að Rík­­­­is­end­­­­ur­­­­skoðun skoð­aði mál­ið. Meiri­hluti kjós­­­­enda allra flokka utan eins, Sjálf­­­­stæð­is­­­­flokks, voru á þeirri skoð­un.

Ýmsir stjórn­ar­þing­menn tóku til máls í umræðum á Alþingi á þessum tíma og sögðu að ef nið­ur­staða þings­ins yrði að úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar dugði ekki til að lægja öld­urnar myndu þeir styðja að komið yrði á fót sjálf­stæðri rann­sókn­ar­nefnd.

Drög að skýrslunni hafa legið fyrir frá 12. október síðastliðnum þegar Rík­is­end­ur­skoðun sendi fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, Banka­sýslu rík­is­ins og stjórn hennar þau til umsagnar. Á sama tíma fékk ráðherra­nefnd um efnahagsmál og endur­skipulagningu fjármála­kerfisins að sjá drögin. Í þeirri nefnd sitja Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags­ráðherra, og Lilja D. Alfreðs­dóttir, menningar- og viðskipta­ráðherra.

Uppruna­lega átti frestur ráðuneytisins og Banka­sýslunnar til að skila athuga­semdum að renna út 19. október en hann var fram­lengdur til 25. október.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár