Trump náðaði „harðasta“ lögreglustjórann

Donald J. Trump forseti Band­arikj­anna náðaði í gær vinn sinn og félaga, Joe Arpaio.

Donald Trump Bandaríkja­forseti náðaði í gær vin sinn og stuðnings­mann úr forseta­framboði hans, lögreglu­stjórann fyrr­verandi Joe Arpaio. Hann er 85 ára gamall og var lengi vel lögreglu­stjóri í Maricopa í Arizona ríki. 

Arpaio hundsaði ítrekað tilskipun dómara um að hætta að láta þjóð­vega­lögregluna undir hans boðvaldi eltast sérstak­lega við meinta, ólöglega innflytjendur. Til stóð að ákvarða honum refsingu í október næst­komandi, en ekki verður af því eftir náðun forsetans.

Arpaio kynnti sig oft sem „harðasta“ lögreglu­stjóra Banda­ríkjanna, og rak hann sérstak­lega harða stefnu gegn meintum ólöglegum innflytjendum, einkum frá Suður-Ameríku. Arpaio var staðinn að lögbrotum og misbeitingu valds, eins og áður sagði, og hlaut dóm fyrir en ákvörðun um refsingu átti að taka fyrir í október. Af því verður ekki eftir náðun forsetans.

Trump talaði fyrir náðun hans á stuðnings­manna­samkomu í Arizona á dögunum, og lét síðan verða að því í gær. Í yfir­lýsingu frá Hvíta húsinu segir að Arpaio hafi alla sína lögreglustjóratíð lagt áherslu á að verja almenning fyrir glæpa­hyski og ólöglegum innflytjendum. Hann sé nú 85 ára gamall og verðs­kuldi náðun forsetans, eftir 50 ára aðdáunar­verða þjónustu við land og þjóð.

Arpaio er einnig þekktur fyrir að halda því fram að fæðingar­vottorð Baracks Obama sé falsað og léta hann framkvæma sérstaka rannsókn á því, án niður­stöðu. Hann heldur því ennþá fram að Obama sé með falsað fæðingar­vottorð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár