LÍN semur við lögmannsstofur án útboðs og heldur ekki utan um kostnað af málarekstri

Lána­sjóður íslenskra námsmanna telur að útboð henti ekki vel til að ná hagstæðum samningum í lögfræði­þjónustu og löginnheimtu. Sjóðurinn heldur ekki utan um aðkeypta lögfræði­þjónustu vegna mála­reksturs í bókhaldi sínu.

Lána­sjóður íslenskra námsmanna hefur gert samninga við þrjár lögmanns­stofur um innheimtu­þjónustu undan­farin ár án útboðs. Upplýsingar um kostnað LÍN af mála­rekstri sjóðsins fyrir dómstólum eru ófáanlegar, enda hefur sjóðurinn ekki haldið utan um slíka aðkeypta lögfræði­þjónustu í bókhaldi sínu. 

Þetta kemur fram í svörum Kristjáns Þórs Júlíussonar, mennta- og menningar­mála­ráðherra, við fyrir­spurnum Ástu Guðrúnar Helga­dóttur, þingkonu Pírata, um málefni lána­sjóðsins.

Löginnheimta LÍN hefur undan­farin ár verið í umsjá Gjald­skila, TCM og Löginnheimtunnar. Gjaldskil er sameiginlegt innheimtu­félag lögmanns­stofanna Juris og Lex. Báðar stofurnar hafa nýlega verið í kast­ljósinu í tengslum við embættis­færslur ráðherra Sjálfstæðis­flokksins, meðal annars eftir að Ríkis­endurskoðun gerði athuga­semdir við 107 milljóna þjónustu­kaup fjármála­ráðuneytisins af Juris í ráðherratíð Bjarna Benedikts­sonar. Annar af tveimur stjórnar­mönnum Gjald­skila er fyrr­verandi framkvæmda­stjóri þing­flokks Sjálfstæðis­flokksins og faðir núverandi formanns allsherjar- og menntamála­nefndar Alþingis. 

Í svari Kristjáns Þórs Júlíussonar við fyrir­spurn Ástu Guðrúnar kemur fram að Lána­sjóðurinn hafi endur­skoðað samninga sína við löginnheimtu­aðila árið 2016 og fækkað þeim lögmanns­stofum sem sjá um innheimtu fyrir hönd sjóðsins úr þremur í tvær. Bent er á að löginnheimta er undan­skilin útboð­skyldu, sbr. 11. gr. laga nr. 120/2016, og því sé lána­sjóðnum ekki skylt að bjóða út slíka þjónustu. Það sé jafnframt „mat Lánasjóðs íslenskra námsmanna að almennt útboð henti ekki vel til að ná hagstæðum samningum í lögfræði­þjónustu og löginnheimtu“. 

Ásta Guðrún spurði einnig um kostnað Lánasjóðs íslenskra námsmanna við mála­rekstur fyrir íslenskum dómstólum frá árinu 2000. „Fyrir­spurnin var send til Lánasjóðs íslenskra námsmanna en þaðan fengust þau svör að ekki væri haldið sérstak­lega utan um lögfræði­kostnað í bókhaldi sem væri tilkominn vegna mála­reksturs sjóðsins,“ segir í svari ráðherra. „Aðkeypt lögfræði­þjónusta væri marg­vísleg, t.d. vegna almennrar innheimtu­þjónustu, mála­reksturs fyrir dómstólum, gerðar minnis­blaða o.s.frv.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár