„Alfarið ákvörðun ríkisins“ að svipta hælisleitendur jólapeningnum

Útlendinga­stofnun sviptir hælis­leitendur desember­uppbótinni með vitund og vilja dómsmála­ráðuneytisins. Sjálfstæðis­flokkurinn fer áfram með málefni útlendinga í ríkis­stjórn Katrínar Jakobs­dóttur og reglugerð Sigríðar Andersen er enn í gildi.

Hælis­leitendur fá ekki jóla­uppbót í ár eins og áður hefur tíðkast. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Útlendinga­stofnun sendi Reykja­nesbæ, Hafnar­fjarðarbæ og Reykja­víkurborg í lok nóvember. 

Fréttin hefur verið uppfærð, sjá neðst í greininni.

RÚV fjallaði um málið á dögunum og greindi frá því að Útlendinga­stofnun hefði haft samráð við dómsmála­ráðuneytið um að svipta hælis­leitendur desember­uppbótinni, en ákvörðunin er tekin á grund­velli nýlegrar reglu­gerðar Sigríðar Andersen dómsmála­ráðherra um útlendinga. 

„Það er alfarið ákvörðun ríkisins að fella niður umrædda uppbót handa hælis­leitendum“

„Það er alfarið ákvörðun ríkisins að fella niður umrædda uppbót handa hælis­leitendum,“ segir Elfa Björk Ellerts­dóttir, upplýsinga­fulltrúi Reykja­víkurborgar á sviði velferðar­mála og umhverfis­mála, í svari við fyrir­spurn Stundarinnar. 

Kristín Völ­und­ar­dóttirfor­stjóri Útlend­inga­stofn­unar

Í bréfi Útlendinga­stofnunar til sveitar­félaganna kemur fram að samkvæmt 30. gr. umræddrar reglu­gerðar sé Útlendinga­stofnun heimilt að setja almennar reglur um aukna þjónustu við umsækjendur að fengnu samþykki ráðherra. „Slíkar reglur hafa ekki verið settar og að mati stofnunarinnar er ekki tilefni til þess að svo stöddu,“ segir í bréfinu sem er undir­ritað af Kristínu Völundar­dóttur, forstjóra Útlendinga­stofnunar. 

„Útlendinga­stofnun mun því ekki greiða umsækjendum um alþjóð­lega vernd aukinn fjárhags­stuðning um komandi jól og veðrur hann því með sama hætti og aðra mánuði ársins. Með hliðsjón af því markmiði reglu­gerðarinnar að samræma þjónustu og kveða skýrt á um rétt umsækjenda upplýsir Útlendinga­stofnun samnings­aðila sína um framan­greinda ákvörðun.“ 

Stundin hefur áður fjallað um reglugerð Sigríðar Andersen sem felur meðal annars í sér að útlendingar eru sviptir réttinum til framfærslu­fjár eftir að hælis­umsóknum þeirra er synjað og meðan þeir bíða eftir að vera sendir úr landi. Ef hælis­leitandi er frá ríki sem er á lista yfir örugg uppruna­ríki og umsókn er metin „bersýni­lega tilhæfu­laus“ getur Útlendinga­stofnun jafnframt fellt niður alla þjónustu við viðkomandi eftir að framkvæmdarhæf ákvörðun um synjun umsóknar liggur fyrir. Rauði krossinn gagnrýndi reglu­gerðina og benti á að vegna hennar gætu hælis­leitendur lent milli steins og sleggju, án atvinnu­réttinda og framfærslu­fjár, jafnvel vikum saman meðan þeir biðu eftir að vera sendir úr landi. 

Undir lok síðasta þings beittu þingmenn Sjálfstæðis­flokksins, með Sigríði Andersen í farar­broddi, sér af mikilli hörku gegn réttar­bótum fyrir barna­fjölskyldur sem höfðu sótt um hæli á Íslandi. Aðrir flokkar á Alþingi sameinuðust um laga­breytingarnar, en Sjálfstæðis­flokkurinn greiddi atkvæði á móti þeim. Skömmu áður hafði Bjarni Benediktsson, þá forsætis­ráðherra, talað opinskátt um að hann sæi eftir þeirri ákvörðun að veita albanskri fjöl­skyldu með lang­veikan dreng íslenskan ríkis­borgararétt.

Þrátt fyrir að Sjálfstæðis­flokkurinn hafi sýnt meiri hörku í útlendinga­málum en aðrir flokkar fer flokkurinn, og Sigríður Á. Andersen, áfram með málefni hælis­leitenda og flótta­manna í ríkis­stjórn Katrínar Jakobs­dóttur. 

Uppfært kl. 22:40:

Ríkis­stjórnin mun nota ráðstöfunarfé sitt til að greiða hælis­leitendum jóla­uppbót ef tillaga dómsmála­ráðherra, sem hún ætlar að leggja til á ríkis­stjórnar­fundi á morgun, gengur eftir. „Ég hef lagt til, í samráði við forsætis­ráðherra, og mun leggja það til á ríkis­stjórnar­fundi á morgun, að ríkis­stjórnin ráðstafi af því fé sem hún hefur til umráða fjárhæð sem kemur til móts við hælis­leitendur þessa vikuna,“ sagði hún í viðtali við RÚV í kvöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár