Alls 34 prósent vilja sjá Dag áfram sem borgarstjóra – 16 prósent nefna Hildi

Þeim fjölgar milli kannana sem vilja sjá núverandi borgar­stjóra áfram í embættinu, en fækkar sem vilja sjá oddvita stærsta minnihluta­flokksins taka við því.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Mynd: Bára Huld Beck

Flestir Reyk­víkingar sem taka afstöðu til þess hver eigi að vera næsti borgar­stjóri nefnd Dag B. Eggertsson, núverandi borgar­stjóra og oddvita Samfylkingarinnar. Alls telja 34 prósent að hann eigi áfram að sitja í embættinu.

Þetta kemur fram í könnun Prósents fyrir Frétta­blaðið sem gerð var 5. til 9. maí en niður­stöður hennar voru birtar í dag. Það er hærra hlutfall en nefndi Dag í könnun fyrir­tækisins sem birt var 28. apríl, en þá naut Dagur stuðnings 30 prósent aðspurðra í borgar­stjóra­stólinn.

Dagur nýtur mest stuðnings í miðborginni, þar sem 59 prósent aðspurðra vilja hann áfram sem borgar­stjóra, en hann leiðir í flestum hverfum borgarinnar. Frávikin eru að Kolbrún Baldurs­dóttir, oddviti Flokks fólksins, leiðir í Breið­holtinu með 25 prósenta fylgi og Hildur Björns­dóttir, oddviti Sjálfstæðis­flokks, í Grafar­vogi með 24 prósent. Fleiri vilja sjá Dag sem borgar­stjóra en ætla sér að kjósa Samfylkinguna.

Færri nefna Hildi þó heilt yfir sem æskilegan næsta borgar­stjóra nú en í lok apríl. Þá sögðu 19 prósent að þeir vilji fá hana í embættið en nú nefna 16 prósent Hildi. Það er svipað hlutfall og vill sjá Einar Þorsteinsson, oddvita Framsóknar­flokksins, sem borgar­stjóra en hann nýtur stuðnings 15 prósent aðspurðra sem taka afstöðu. Aðrir sem mælast með yfir tíu prósent stuðning í starf borgar­stjóra eru Dóra Björt Guðjóns­dóttir, oddviti Pírata (ellefu prósent), og Sanna Magdalena Mörtudöttir (tíu prósent).

Könnunin var netkönnun gerð 5. til 9. maí. Úr­tak var 1.750 ein­staklingar og svar­hlut­fallið 50,4 prósent.

Meirihlutinn bætir við sig samkvæmt nýjustu kosningaspá

Samkvæmt nýjustu kosningaspá Kjarnans og Dr. Baldurs Héðins­sonar stærð­fræðings heldur meirihlutinn í Reykjavík velli og Samfylkingin verður stærsti flokkurinn í Reykjavík á ný eftir kosningarnar sem fara fram næst­komandi laugardag. Fylgi hennar mælist 24,8 prósent sem myndi skila sex borgar­fulltrúum.

Píratar mælast með 16,3 prósent fylgi sem myndi skila þeim fjórum borgar­fulltrúum. Viðreisn fengi 7,4 prósent fylgi og héldi sínum tveimur fulltrúum og Vinstri græn 6,1 prósent, sem skilar Líf Magneu­dóttur, oddvita flokksins, að óbreyttu einni í borgar­stjórn. Meirihlutinn virðist því, samkvæmt gerðum könnunum, ætla að bæta við sig fylgi frá kosningunum 2018 og fá 13 borgar­fulltrúa, sem er einum fleiri en hann fékk í síðustu kosningum.

Sjálfstæðis­flokkurinn, sem fékk 30,8 prósent atkvæða fyrir fjórum árum, stefnir í afhroð en fylgi hans mælist 18,8 prósent. Það myndi skila fimm borgar­fulltrúum í stað þeirra átta sem flokkurinn hefur í dag. Verði þetta niður­staðan mun Sjálfstæðis­flokkurinn fá sína verstu niður­stöðu í höfuð­borginni í sögu flokksins.

Framsóknar­flokkurinn er sá flokkur sem bætir mestu við sig. Hann mælist með 12,4 prósent fylgi og næði inn þremur borgar­fulltrúum að óbreyttu, en flokkurinn hefur engan sem stendur. Sósíalista­flokkurinn og Flokkur fólksins myndu halda sitthvorum borgar­fulltrúanum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kosningar 2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár