Sjálfstæðisflokkur stefnir í sögulegt afhroð en Samfylking og Píratar með pálmann í höndunum

Baráttan um borg­ina virð­ist ekki ætla að verða sér­stak­lega spenn­andi. Núver­andi meiri­hluti mælist með þrettán borg­ar­full­trúa og um 55 pró­sent fylgi. Stærstu flokk­arnir í meiri­hlut­anum eiga aðra kosti kjósi þeir að mynda ann­ars­konar meiri­hluta.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stefnir í mesta afhroð í sögu sinni í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum sem fram fara um næstu helgi. Nú, fjórum dögum áður en borg­ar­búar ganga að kjör­köss­unum, mælist fylgi flokks­ins í höf­uð­borg­inni 18,8 pró­sent í nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Dr. Baldurs Héð­ins­sonar.

Verði það nið­ur­staða kosn­ing­anna á laug­ar­dag mun það verða versta nið­ur­staða Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum frá upp­hafi slíkra. Flokk­ur­inn, sem fékk 30,8 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2018, mun tapa næstum 40 pró­sent kjós­enda sinna milli kosn­inga sam­kvæmt nið­ur­stöð­unni og þremur borg­ar­full­trúum. Miðað við orð sumra fram­bjóð­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kjöl­far próf­kjörs hans fyrr á árinu var stefnan sett á að minnsta kosti átta borg­ar­full­trúa. Nú stefnir allt í að hann nái inn fimm, og sá síð­asti er nokkuð tæpur inni.

Flokk­arnir sem eru í lyk­il­stöðu fyrir loka­sprett kosn­inga­bar­átt­unnar eru Sam­fylk­ingin og Píratar. Stefnur þeirra eru það svip­aðar, og styrkur þeirra að mæl­ast það mik­ill, að borð­leggj­andi er að þeir muni mynda öxul í næsta meiri­hluta ef fram fer sem horfir.

Báðir flokkar bæta við sig fylgi milli kosn­inga­spáa og mæl­ast sam­an­lagt nú með 41,1 pró­sent fylgi, en þeir fengu sam­an­lagt 33,6 pró­sent árið 2018. Að óbreyttu verður Sam­fylk­ingin, undir for­ystu Dags B. Egg­erts­sonar, stærsti flokk­ur­inn í borg­inni með 24,8 pró­sent fylgi og sex borg­ar­full­trúa og Píratar þriðji stærsti flokk­ur­inn með 16,3 pró­sent og fjóra menn inni. Saman ná flokk­arnir tveir því tíu borg­ar­full­trúa eins og staðan er nú og þurfa ein­ungis tvo til við­bótar til að mynda meiri­hluta.

Þessi staða felur í sér að lang­mestar líkur eru á því eins og er að Dagur, sem hefur verið borg­ar­stjóri síð­ast­lið­inn átta ár og setið í borg­ar­stjórn í tvo ára­tugi, verði áfram borg­ar­stjóri Reykja­víkur.

Framsókn stefnir í endurupprisu

Sá flokkur sem mun bæta mestu við sig frá síð­ustu kosn­ingum er óum­flýj­an­lega Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn. Hann hefur, undir for­ystu Einars Þor­steins­sonar, mælst nokkuð stöðugt með yfir tólf pró­sent fylgi síð­ustu vikur og er nú með 12,4 pró­sent.

Það myndi skila þremur borg­ar­full­trúum og áfram­hald­andi upp­risu Fram­sóknar á möl­inni eftir ágætt gengi þar í þing­kosn­ing­unum í fyrra­haust, en Framsókn fékk ein­ungis 1.870 atkvæði í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum fyrir fjórum árum, eða 3,2 pró­sent greiddra atkvæða.

Viðreisn, sem setið hefur í meiri­hluta í borg­ar­stjórn á kjör­tíma­bil­inu, er sá meiri­hluta­flokk­anna sem gengur senni­lega einna síst kátur frá borði að óbreyttu. Flokk­ur­inn fékk 8,2 pró­sent atkvæða árið 2018 en mælist nú með 7,4 pró­sent og hefur ekki farið yfir átta pró­sent í kosn­inga­spá síðan um miðjan mars. Sem stendur myndi nið­ur­staðan duga til að halda báðum borg­ar­full­trúum Við­reisnar inni en Pawel Bartoszek er síð­asti maður inn sem stendur, og sára­litlu munar á honum og öðrum manni Sós­í­alista­flokks Íslands.

Vinstri græn eru líka í miklum vanda í Reykja­vík. Í þing­kosn­ing­unum í haust fékk flokk­ur­inn 14,7 og 15,9 pró­sent atkvæða í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur. Þegar kemur að borg­ar­stjórn­ar­málum mælist fylgi flokks­ins, sem leiddur er af Líf Magneu­dóttur, með 6,1 pró­sent fylgi og er langt frá því að ná öðrum manni á lista inn. Það er vissu­lega skárri nið­ur­staða en Vinstri græn fengu 2018, þegar ein­ungis 4.6 pró­sent kjós­enda kusu flokk­inn, en langt frá því sem stefnt var að.

Annar maður Sósíalistaflokksins næstur inn

Af smærri flokk­unum í minni­hluta borg­ar­stjórnar getur Sós­í­alista­flokkur Íslands best við unað. Samkvæmt nýj­ustu kosn­inga­spánni fengi hann 7,2 pró­sent atkvæða sem yrði bæt­ing frá þeim 6,4 pró­sent sem hann fékk fyrir fjórum árum. Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir er örugg inni og Trausti Breið­fjörð Magn­ús­son, annar maður á lista, er næsti maður inn sam­kvæmt spánni. Hann er far­inn að anda all­veru­lega ofan í háls­málið á öðrum manni Við­reisnar og fimmta manni Sjálf­stæð­is­flokks.

Flokkur fólks­ins siglir nokkuð lygnan sjó með 4,9 pró­sent fylgi. Það er aðeins meira en hann fékk 2018, þegar 4,3 pró­sent kusu flokk­inn, og myndi að óbreyttu tryggja Kolbrúnu Bald­urs­dóttur áfram­hald­andi veru í borg­ar­stjórn. Mið­flokk­ur­inn virð­ist hins vegar heillum horf­inn og með 1,9 pró­sent fylgi fjórum dögum fyrir kosn­ingar virð­ast líkur hans á að ná inn manni nán­ast engar.

Alls segj­ast 0,2 pró­sent kjósa önnur fram­boð en ofan­greind. Þau tvö sem eru óupp­talin en verða á kjör­seðl­inum heita Reykja­vík, besta borgin og Ábyrg fram­tíð.

Góðar líkur á þriggja flokka meirihluta

Kosn­inga­spáin reiknar líka út lík­urnar á meiri­hlutum í borg­inni. Lík­­­urnar eru fengnar með því að fram­­kvæma 100 þús­und sýnd­­ar­­kosn­­ing­­ar. Í hverri sýnd­­ar­­kosn­­ingu er vegið með­­al­­tal þeirra skoð­ana­kann­ana sem kosn­­inga­­spáin nær yfir hverju sinni lík­­­leg­asta nið­­ur­­staðan en sýnd­­ar­n­ið­­ur­­staðan getur verið hærri eða lægri en þetta með­­al­­tal og hversu mikið byggir á sög­u­­legu frá­­viki skoð­ana­kann­ana frá úrslitum kosn­­inga.

Endar Einar Þorsteinsson í meirihluta með einhverjum þeirra flokka sem nú stýra Reykjavík?
Endar Einar Þor­steins­son í meiri­hluta með ein­hverjum þeirra flokka sem nú stýra Reykja­vík?

Líkurnar á því að sitj­andi meiri­hluti haldi mæl­ast nú 83 pró­sent og hafa ekki mælst meiri í kosn­inga­spám í aðdrag­anda kom­andi kosn­inga. Til sam­an­burðar voru lík­urnar á því að meiri­hlut­inn héldi 47 pró­sent um miðjan mars.

Ef vilji er til þess að fá meiri vinstri­á­hrif á meiri­hlut­ann væri hægt að skipta út Viðreisn fyrir Sós­í­alista­flokk Íslands án þess að lík­urnar á því að hægt yrði að mynda meiri­hluta breytt­ust neitt. Þær yrðu áfram 83 pró­sent.

Ef Vinstri grænum yrði skipt út fyrir Framsókn fara lík­urnar hins vegar upp í 97 pró­sent. Athygl­is­vert er að sá mögu­leiki er orð­inn afar raun­hæfur að hægt verði að mynda þriggja flokka stjórn Sam­fylk­ingar, Pírata og Fram­sókn­ar­flokks sem hefði þrettán borg­ar­full­trúa á móti tíu full­trúum hinna flokk­anna. Líkurnar á því að hægt veðri að mynda þann meiri­hluta eru nú 85 pró­sent. Litlar líkur, 17 pró­sent, eru á því að Sam­fylk­ingin og Píratar nái nægj­an­legu fylgi til að mynda tveggja flokka meiri­hluta.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn batt mestar vonir við að hann gæti myndað meiri­hluta með Fram­sókn­ar­flokki og einum til eftir kosn­ing­arnar. Líkurnar á því að þessir tveir flokkar gætu tekið Mið­flokk­inn með sér í meiri­hluta­sam­starf mæl­ast nú núll pró­sent og lík­urnar á því að þeir næðu meiri­hluta með Flokki fólks­ins mæl­ast eitt pró­sent. Ef Viðreisn færi með þeim í stað­inn fara lík­urnar upp í fjögur pró­sent.

Vert er að taka fram að odd­vita­kapp­ræður í Reykja­vík fara fram næst­kom­andi föstu­dag á RÚV. Þar fá odd­vit­arnir loka tæki­færi til að breyta stöð­unni.

Kann­­anir í nýj­­ustu kosn­­inga­­spá fyrir borg­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ingar 14. maí:

  • Þjóð­­ar­púls Gallup 14. mars. – 10. apríl (11,0 pró­­sent)
  • Skoð­ana­könnun Pró­sents 13. - 26. apríl (21,0 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Mask­ínu 8. apríl – 2. maí (21,6 pró­­sent)
  • Skoð­ana­könnun Pró­sents 4. - 9. maí (46,4 pró­sent)

Hvað er kosn­­­­inga­­­­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­­­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­­­ar­­­legt magn af upp­­­lýs­ing­­­um. Þessar upp­­­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræð­i­­­leg­­­ar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­­­lifir stjórn­­­­­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­­­­­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­­­ast svo við að túlka nið­­­ur­­­stöð­­­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­­­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­­­­­mál­anna.

Allar þessar kann­­anir og allar mög­u­­legar túlk­­anir á nið­­ur­­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferð­­um. Hvor könn­unin er nákvæm­­ari? Hverri skal treysta bet­­ur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­­andi hefur ekki for­­sendur til að meta áreið­an­­leika hverrar könn­un­­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið undanfarið ár