Fær tugi milljóna fyrir Eyjuna

Samstarfs­samningur Eyjunnar og 365 um sjónvarps­þátt er til þriggja ára. Deilt um samninginn innan 365. Jón Ásgeir Jóhannesson lykil­maður.

Eign upp á 70 til 80 milljónir
Eign upp á 70 til 80 millj­ónir Samn­ing­ur­inn um sjón­varps­þátt­inn Eyjuna, sem Björn Ingi Hrafns­son, stýrir hleypur á rúm­lega tveimur millj­ónum króna á mán­uði til þriggja ára. Verðmæti hans er því á milli 70 og 80 millj­ónir króna. Mynd: PressPhotos

Fjölmiðla­fyrirtækið 365 greiðir rúmar tvær milljónir króna á mánuði fyrir sjónvarps­þáttinn Eyjuna sem sýndur er á Stöð 2 á hverjum sunnudegi. Þetta herma heimildir Stundarinnar. Samstarfs­samningurinn á milli 365 og aðstand­enda Eyjunnar er til þriggja ára en þátturinn hóf göngu sína á Stöð 2 fyrir tæpu ári síðan. Stjórn­andi þáttarins er Björn Ingi Hrafnsson, einn af eigendum Pressunnar ehf. sem er móður­félag útgáfu­félags Eyjunnar, Vefpressunnar ehf. Heildar­verðmæti þessa þriggja ára samnings hleypur því á milli 70 og 80 milljóna króna. 

Greint var frá ætluðu samstarfi Eyjunnar og 365 í lok febrúar árið 2014 og átti það upphaf­lega einnig að fela í sér mánaðarlegt blað sem fylgja átti Frétta­blaðinu en hætt var við þá hugmynd. 

Segir trúnað ríkja um samninginn

Í byrjun janúar á þessu ári hafði vefmiðillinn Kjarninn eftir Birni Inga að í gildi væri „langtíma­samningur“ um sjónvarps­þáttinn en ekki var greint því hversu langur samnings­tíminn væri.

Björn Ingi vill ekki svara spurningum um eðli samningsins og segir ákvæði hans vera trúnaðarmál: „Um samstarf Eyjunnar og 365 fer eftir viðskipta­samningi milli tveggja einka­aðila og ríkir trúnaður um hann, líkt og eðlilegt má teljast. En þetta er langtíma­samningur, það er rétt. Ég hef því ekkert um málið að segja, utan að Fjölmiðla­nefnd og Samkeppnis­eftirlitið gáfu grænt ljós á umrætt samstarf og höfðu samningana þá til grund­vallar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár