Framkvæmdarstjóri hjá Eimskip með stöðu sakbornings á Íslandi og húsleit í Danmörku

Eimskip sendi tvær til­kynn­ingar til Kaup­hallar í gær. Aðra vegna hús­leitar sam­keppn­is­yf­ir­valda í Danmörku, hina vegna saka­mála­rann­sóknar hér­aðs­sak­sókn­ara hér­lendis.

Eimskip sendi frá sér tvær til­kynn­ingar til Kaup­hallar í gær­kvöldi. Í annarri þeirra er greint frá því að í gær hafi danska sam­keppn­is­eft­ir­litið fram­kvæmt hús­leit í Álaborg hjá dönsku dótt­ur­fé­lagi Eimskip Holding B.V., sem er í eigu Eim­skipa­fé­lags Íslands hf., á grund­velli dóms­úr­skurðar.

Þar segir að hús­leitin snúi að „starf­semi Atlantic Trucking sem er hluti af Eimskip Denmark A/S og er hluti af rann­sókn á hátt­semi í land­flutn­ingum í Danmörku og tók til fleiri félaga á þeim mark­aði. Til­gangur hús­leit­ar­innar er að rann­saka hvort brotið hafi verið gegn ákvæðum danskra sam­keppn­islaga. Dótt­ur­fé­lagið vinnur að því að veita dönskum sam­keppn­is­yf­ir­völdum aðgang að umbeðnum upp­lýs­ingum. Eim­skipa­fé­lag Íslands hf. hefur ekki ástæðu til að ætla að brotið hafi verið gegn dönskum sam­keppn­is­lögum í starf­semi Atlantic Trucking sem hefur um 5% mark­aðs­hlut­deild í gáma­flutn­ingum á þessum mark­aði.“

Í hinni til­kynn­ing­unni var greint frá því að Hilm­ar Pét­ur Val­g­arðs­son, fram­kvæmda­stjóri rekstr­ar­sviðs hjá Eimskip, hafi í gær verið boð­aður til skýrslu­töku hjá hér­aðs­sak­sókn­ara vegna rann­sóknar emb­ætt­is­ins á sölu skip­anna Goðafoss og Laxfoss á árinu 2019, sem Umhverf­is­stofnun kærði til hér­aðs­sak­sókn­ara árið 2020. „Mun hann njóta rétt­ar­stöðu sak­born­ings við skýrslu­tök­una. Þá mun for­stjóri félags­ins gefa skýrslu hjá emb­ætt­inu í þágu rann­sóknar máls­ins sem fyr­ir­svars­maður félags­ins, en hann er ekki grun­aður um refsi­verða hátt­semi.“ For­stjóri Eimskip er Vilhelm Már Þor­steins­son.

Húsleit á Íslandi í desember í fyrra

Seinna málið, það sem snýr að sölu Goðafoss og Laxfoss, kom upp á yfir­borðið eftir umfjöllun Kveiks um það í sept­em­ber 2020.

Þá var sagt frá því að Eim­skip hefði selt skipin tvö til fyr­ir­tækis sem heitir GMS, og sér­­­­­hæfir sig í að vera milli­­­­­liður sem kaupir skip til að setja þau í nið­­­­­ur­rif í Asíu þar sem kröfur um aðbúnað starfs­­­­­manna og umhverf­is­á­hrif nið­­­­­ur­rifs­ins eru mun lak­­­­­ari en í Evr­­­­­ópu.

Þar eru skip oft rifin í flæð­­­­­ar­­­­­mál­inu og ýmis spilli­efni látin flæða út í umhverf­ið. Þá vinna starfs­­­­­menn þar við svo erf­iðar aðstæður að þær hafa verið kall­aðar mann­rétt­inda­brot.

Ein helsta ástæðan fyrir því að skip eru flutt á þessar slóð­ir, í umræddu til­­viki í skipa­­kirkju­­garð í Alang á Ind­landi, er sú að það er greitt fjórum sinnum meira fyrir skip á leið í nið­­ur­rif þar en í Evr­­ópu. Það útskýrist af því að í Evr­­ópu þarf að greiða laun sam­­kvæmt kjara­­samn­ing­um, við­halda öryggi starfs­­manna á vinn­u­­stöðum og mæta lög­­­gjöf frá árinu 2018 sem leggur bann við því að skip yfir 500 brúttó­­­tonnum séu rifin ann­­­ars staðar en í vott­uðum end­­­ur­vinnslu­­­stöðv­­­­­um.

Hér­aðs­sak­sókn­ari fékk heim­ild til hús­leitar á starfs­stöðvum Eimskips á grund­velli úrskurðar hér­aðs­dóms vegna máls­ins í des­em­ber 2021. Í til­kynn­ingu Eim­skips á þeim tíma sagði að emb­ættið hefði „óskað eftir afmörk­uðum gögnum vegna sölu skip­anna Goða­foss og Lax­foss á árinu 2019 sem Umhverf­is­stofnun kærði til hér­aðs­sak­sókn­ara 2020“ og að engir ein­stak­lingar hefðu rétt­ar­stöðu í mál­inu.

Það hefur nú breyst.

Stærsti eig­andi Eimskips er Samherji Holding með 32,8 pró­sent eign­ar­hlut. Þar á eftir koma stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár