„Þetta er bara eins og að fara með rangt barn heim af róló“

Guðmundur Björgvin Helgason ríkis­endur­skoðandi skaut föstum skotum að forsvars­mönnum Banka­sýslunnar á fundi stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar og sakaði Lárus Blöndal um að hafa talað gegn betri vitund er hann sjálfur kom fyrir nefndina.

Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Guð­mundur Björgvin Helgason rík­is­end­ur­skoð­andi á fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar. Mynd: Alþingi/Skjáskot

„Þetta er bara eins og að fara með rangt barn heim af róló og halda svo áfram að kynna það fyrir fjöl­skyldu og vinum sem sitt eigið,“ sagði Guðmundur Björgvin Helgason ríkis­endur­skoðandi á fundi stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar um viðbrögð Banka­sýslu ríkisins við umfjöllun Ríkis­endur­skoðunar um villur í Excel-skjali, sem Banka­sýslan sjálf sendi inn til Ríkis­endur­skoðunar í vor undir heitinu „Staða til­boðs­bókar þegar leið­bein­andi verð og magn voru ákvörðuð 22 mars 2022“.

Guðmundur Björgvin kom fyrir stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd í morgun og gagnrýndi þar orð Lárusar Blöndal stjórnar­formanns Banka­sýslunnar um áðurnefnt Excel-skjal á fundi nefndarinnar í lok síðustu viku, og fullyrti að Lárus hefði á fundinum með nefndinni „talað gegn betri vitund“.

Í máli Lárusar á fundinum á föstudag kom meðal annars fram að á fundi með ríkis­endur­skoðanda hefðu fulltrúar Banka­sýslunnar gengið eftir og fengið stað­festingu á því að Ríkis­endurskoðun gerði engan ágreining um að Banka­sýslan hefði haft rétt og villu­laust skjal í höndunum er leið­beinandi lokaverð var ákvarðað í útboðinu í mars.

„Þetta er bara alvarlegt mál, ég veit ekki hvað vakir fyrir Banka­sýslunni þegar hún gerir þetta, en ég segi bara hér sem trúnaðar­maður Alþingis og sem ríkis­endur­skoðandi að málflutningur Banka­sýslunnar um þetta atriði er bara alls ekki við hæfi og eingöngu til þess fallinn að skapa upplýsinga­óreiðu og afvega­leiða umræðu þings og almennings um það hvað þetta mál snerist um,“ sagði ríkis­endur­skoðandi á fundi nefndarinnar í morgun.

Í máli hans kom fram að hann liti svo á hann legði starfs­heiður sinn að veði í hvert sinn sem hann skilaði skýrslu til Alþingis, og ítrekaði að enginn misskilningur væri hjá Ríkis­endurskoðun hvað þetta atriði varðaði, full­yrðingar Banka­sýslunnar um það væru að hans mati „eftirá­skýringar og yfirklór“.

„Það sem við báðum Banka­sýsluna um var staða tilboða­bókar þegar ákvörðun um leið­beinandi lokaverð var tekin. Þetta erum við að biðja um sirka 20. maí, ef ég man rétt. Við fáum frá Banka­sýslunni skjal og hún í svörum sínum til okkar, svarar út frá þessu skjali,“ sagði Guðmundur Björgvin.

Samráðið „með ólíkindum, algjörlega fordæmalaust“

Ríkis­endur­skoðandi sagði einnig að samráð við Banka­sýsluna í umsagnar­ferlinu hefði að hans mati verið verið „með ólíkindum, algjör­lega fordæma­laust“.

„Þeir voru boðaðir á fund, Banka­sýslan, sem er ekki alvanalegt þegar skýrslur eru í umsagnar­ferli, en þar lögðu þeir fyrir Ríki­endurskoðun meðal annars hvernig við ættum að afmarka okkar vinnu og hvernig við hefðum átt að vinna þessa skýrslu,“ sagði Guðmundur Björgvin.

Ríkis­endur­skoðandi bætti við að strax í upphafi úttektar­vinnu Ríkis­endur­skoðunar hefði komið fram í máli fjármála­ráðuneytis að menning Banka­sýslunnar „einkenndist meira af fjármála­markaði heldur en opinberrar stjórn­sýslu“ og að hann teldi „að í rauninni allt sem hefur gerst og átt sér stað í málflutningi Banka­sýslunnar síðan þessi skýrsla var gefin út sem og í umsagnar­ferli staðfesti þetta“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár