Var Ríkisendurskoðun að misskilja eða veitti Bankasýslan ráðherra ekki réttar upplýsingar?

Skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar um sölu­ferli Íslands­banka hefur verið mikið til umfjöll­unar und­an­farnar vikur. Þar hefur meðal ann­ars verið tek­ist á um hvort Banka­sýsla rík­is­ins hafi verið að fullu með­vituð um hver eft­ir­spurn eftir bréfum í bank­anum.

Voru þær upp­lýs­ingar sem lagðar voru fyrir Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, til að ákveða hversu stóran hlut í Íslands­banka átti að selja, og á hvaða verði, réttar?

Um þetta hefur verið tek­ist síð­ustu vikur í kjöl­far þess að Rík­is­end­ur­skoðun birti skýrslu sína um söl­una á 22,5 pró­sent hlut rík­is­ins í Íslands­banka 14. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Í skýrsl­unni er kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Banka­sýsla rík­is­ins, sem bar ábyrgð á fram­kvæmd sölu­fer­ils­ins, hefði ekki verið að fullu með­vituð um rauneft­ir­spurn fjár­festa þegar hún tók lagði fram til­lögu um loka­verð fyrir Bjarna að kvöld 22. mars síð­ast­lið­ins.

Þessu hefur Banka­sýslan hafnað og hefur meðal ann­ars sagt skýrsl­una í heild „afhjúpa tak­mark­aða þekk­ingu“ Rík­is­end­ur­skoð­unar á við­fangs­efn­inu.

Það vakti athygli þegar Rík­is­end­ur­skoðun sendi frá sér til­kynn­ingu fyrr í þessum mán­uði þar sem hún sagð­ist hafna „aðdrótt­unum ákveð­inna fjöl­miðla síð­ustu daga um að ann­ar­leg sjón­ar­mið hafi ráðið för við úttekt­ar­vinnu emb­ætt­is­ins“.

Þar var verið, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, meðal ann­ars verið að vísa í umfjöllun Morg­un­blaðs­ins og Við­skipta­blað­sins þar sem gert var tor­tryggi­legt að Rík­is­end­ur­skoðun hafi ráðið Jón Þór Sturlu­son, for­seta við­skipta­fræði­deildar Háskóla Íslands, sem ráð­gjafa við úttekt stofn­un­ar­innar á sölu­ferl­inu með því að benda á að Jón Þór hafi starfað fyrir Sam­fylk­ing­una, meðal ann­ars sem aðstoð­ar­maður ráð­herra, fyrir mörgum árum síð­an. Jón Þór sagði sig úr Sam­fylk­ing­unni árið 2010, í kjöl­far þess að Geir H. Haarde, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var ákærður og dreg­inn fyrir Landsdóm.

Í til­kynn­ingu Rík­is­end­ur­skoð­unar var því einnig hafnað að umfjöllun stofn­un­ar­innar um til­boðs­bók sölu­ferl­is­ins byggði á mis­skiln­ingi.

Það hefur meðal ann­ars verið gert í nýlegum pistli Harðar Ægis­sonar, rit­stjóra Inn­herja, und­ir­vefs Vísis sem fjallar um efna­hags­mál og við­skipti. Sá pist­ill var svo tek­inn upp í fjöl­miðlapistli sem Örn Arnarson skrif­aði í Við­skipta­blaðið. Þar er því haldið fram að ætl­aður mis­skiln­ingur sér­fræð­inga Rík­is­end­ur­skoð­unar sé stað­reynd, ekki mat.

Bankasýslan skilaði sjálf inn gallaða Excel-skjalinu

Ágrein­ingur um til­boðs­bók­ina snýst um að á fundi Banka­sýsl­unnar, fjár­mála­ráð­gjafa hennar og umsjón­ar­að­il­anna, sem stóð yfir frá klukkan 19:40 til 20:38 á sölu­degi, var ákveðið að til­kynna að leið­bein­andi loka­verð söl­unnar yrði 117 krónur á hlut, sem var 4,1 pró­sent lægra en dagsloka­verð á mark­aði þennan sama dag.

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar segir: „Samkvæmt Íslands­banka var fund­ar­mönnum til­kynnt um upp­fært vinnu­skjal klukkan 20:36 þar sem ýmsar villur í inn­lendu til­boða­bók­inni höfðu verið leið­réttar. Milli kl. 20:41 og 20:53 áttu stjórn­ar­for­maður og for­stjóri Banka­sýsl­unnar sím­tal við fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra til að upp­lýsa hann um að stofn­unin teldi rétt að birta leið­bein­andi loka­verð og magn á grund­velli ráð­gjafar umsjón­ar­að­ila og fjár­mála­ráð­gjafa. Ráðherra gerði engar athuga­semdir við áform stofn­un­ar­innar.“

Banka­sýslan hélt í kjöl­farið stjórn­ar­fund sem stóð yfir frá klukkan 21:00 til 21:30 þar sem ákvörðun um leið­bein­andi loka­verð og magn sölu­ferl­is­ins voru form­lega ákveðin.

Þann 20. maí 2022, tæp­lega einum og hálfum mán­uði eftir qð Rík­is­end­ur­skoðun var falið að rann­saka sölu­ferlið á Íslands­banka, óskaði Rík­is­end­ur­skoðun eftir að Banka­sýsla rík­is­ins myndi útvega afrit af til­boða­bók sölu­ferl­is­ins eins og hún leit út þegar ákvörðun var tekin um leið­bein­andi loka­verð.

Banka­sýslan skil­aði sjálf inn Excel-skjali til Rík­is­end­ur­skoð­unar, sem var upp­haf­lega frá Íslands­banka sjálfum, með töflu sem sýndi umfram­eft­ir­spurn við gengi frá 110 til 125 krónur á hlut. „Við grein­ingu Rík­is­end­ur­skoð­unar á umræddu skjali komu í ljós ann­markar í útreikn­ingum þar sem fjöldi færslna í skjal­inu, þ.e. reitir sem inni­héldu fjár­hæð til­boða fjár­festa, var ekki færður inn á réttu formi, heldur ýmist með erlendri kommu­setn­ingu eða fjár­hæðum skil­greindum sem texta. Það leiddi til þess að Excel–töflu­reikn­ir­inn nam þau ekki sem tölu­legar upp­lýs­ingar. Umrædd til­boð birt­ust því ekki í fyrr­nefndri töflu í skjal­inu sem sent var Rík­is­end­ur­skoðun og sýndi heild­ar­eft­ir­spurn við mis­mun­andi gengi né þeirri mynd sem teiknuð var upp af eft­ir­spurn­inni.“

Alls voru villur í 105 af 303 færslum í skjal­inu.

Nýtt skjal kemur til skjalanna

Þegar skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar fór í umsagn­ar­ferli í októ­ber komu fram athuga­semdir þess efnis að skjalið sem Banka­sýslan hefði sent inn í maí, og sagt hafa byggt ákvörðun sína um leið­bein­andi loka­verð á, hafi ekki verið hið rétta. Þessa athuga­semd kom frá Íslands­banka, ekki Banka­sýsl­unni.

Í henni sagði að skjalið sem Banka­sýslan hefði sent Rík­is­end­ur­skoðun hafi byggt á stöð­unni eins og hún var 19:37 á sölu­degi, en ákvörðun um leið­bein­andi loka­verð hafi verið tekið á grund­velli ann­ars og mun hreinna skjals sem lá fyrir klukkan 20:36. Þær villur sem voru í upp­runa­lega skjal­inu hefðu nefni­lega verið fjar­lægðar klukkan 20:10.

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar segir að þrátt fyrir þetta hafi heiti skjals­ins sem Banka­sýslan sendi Rík­is­end­ur­skoðun í maí verið „Staða til­boðs­bókar þegar leið­bein­andi verð og magn voru ákvörðuð 22 mars 2022“. Alveg fram að því að umsagn­ar­ferli úttekt­ar­innar hófst í októ­ber, hálfu ári eftir að úttektin hófst og fimm mán­uðum eftir að Banka­sýslan skil­aði sjálf gall­aða Excel-skjal­inu til Rík­is­end­ur­skoð­unar, byggðu öll svör Banka­sýsl­unnar um gall­aða skjal­inu.

„Ákvörðun ráðherra byggði því á ónákvæmum upplýsingum“

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar segir að stofn­unin vilji vekja sér­staka athygli á að fram að umsagn­ar­ferli þess­arar úttektar í októ­ber 2022 hafði emb­ættið ekki fengið neinar upp­lýs­ingar frá Banka­sýsl­unni þess efnis að fundur þar sem ákvörðun um leið­bein­andi loka­verð var tekin hafi staðið yfir lengur en til kl. 20:30. „Í umsagn­ar­ferl­inu kom fram hjá Íslands­banka og síðar Banka­sýsl­unni að verð­á­kvörð­unin hafi byggt á upp­færðu skjali kl. 20:36 og að fund­inum hafi lokið kl. 20:38.“

Tillaga Banka­sýslu rík­is­ins um hvernig ætti að hátta söl­unni, ásamt rök­studdu mati hennar, var send til Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, með tölvu­pósti kl. 21:40 þann 22. mars. Þar kom fram að á milli 150 og 200 hæfir fjár­festar, inn­lendir og erlendir, hefðu skráð sig fyrir hlutum fyrir sam­tals meira en 100 millj­örðum króna. „Í ljósi þess að tekið var við til­boðum til klukkan 21:30 bjó stjórn Banka­sýsl­unnar ekki yfir end­an­legum upp­lýs­ingum um eft­ir­spurn fjár­festa þegar hún sam­þykkti umrætt orða­lag. Heild­ar­eft­ir­spurn fjár­festa miðað við gengið 117 kr. á hlut var í reynd 148,4 ma. kr. við lok sölu­ferl­is­ins.“ Fjöldi til­boði var líka umfram það bil sem gefið var upp til ráð­herra, eða alls 209.

Það var því nið­ur­staða Rík­is­end­ur­skoð­unar að upp­lýs­ing­arnar sem Banka­sýslan veitti Bjarna Bene­dikts­syni um fjölda fjár­festa og heild­ar­fjár­hæð til­boð hafi verið óná­kvæmar. „Ákvörðun ráð­herra byggði því á óná­kvæmum upp­lýs­ingum.“

Söfnuðu áskriftum eftir stjórnarfund

Þessu mót­mælti Banka­sýsla rík­is­ins harð­lega í athuga­semdum við úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar sem hún birti á heima­síðu sinni um miðjan þennan mánuð.

Þar segja for­svars­menn hennar að rök­stutt mat stofn­un­ar­innar á því hvert verðið ætti að vera og hversu mikið ætti að selja hafi ekki „ aðeins á upp­lýs­ingum um eft­ir­spurn frá fjár­festum eins og þær lágu þá fyrir heldur einnig á þeirri vit­neskju um afstöðu leið­andi fjár­festa til verðs og magns sem byggst hafði upp allt frá upp­hafi mark­aðs­þreif­inga mánu­dag­inn 21. mars sl. Þá var litið til til­lagna umsjón­ar­að­ila útboðs­ins og afdrátt­ar­lausrar og rök­studdrar ráð­gjafar fjár­mála­ráð­gjafa. Þótt áskrifta hafi áfram verið safnað eftir að fundur stjórnar Banka­sýslu rík­is­ins hófst voru for­sendur á þeim tíma nægar til að setja fram gagn­vart ráð­herra til­lögu um loka­verð og magn.“

Eftir að áður­nefndir við­skipta­miðlar höfðu gert mikið úr þess­ari skýr­ingu Banka­sýsl­unnar og full­yrt að umfjöllun um til­boðs­bók sölu­ferl­is­ins byggð­ist á mis­skiln­ingi sendi Rík­is­end­ur­skoðun frá sér til­kynn­ingu þar sem því var alfarið hafnað. Þar stóð að skýrslan stæði óhögguð. „Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar kemur fram að svör Banka­sýslu rík­is­ins til bæði emb­ætt­is­ins og Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands í maí sl. byggðu á umræddu Excel-skjali sem inni­hélt marga ann­marka en ekki upp­færðri og villu­lausri útgáfu þess. Banka­sýslan átt­aði sig ekki á þeirri stað­reynd fyrr en í umsagn­ar­ferli úttekt­ar­innar í októ­ber sl. Gögn máls­ins sýna svo ekki verður um villst að Banka­sýslan var, líkt og kemur fram í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar, ekki að fullu með­vituð um rauneft­ir­spurn fjár­festa þegar ákvörðun um leið­bein­andi loka­verð var tekin að kvöldi 22. mars sl. Ekki er um neinn mis­skiln­ing af hálfu Rík­is­end­ur­skoð­unar að ræða.“

Verra fyrir Bankasýsluna að styðjast við seinna skjalið

Við lestur skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar virð­ist líka liggja fyrir að sér­fræð­ingar stofn­un­ar­innar telji að það líta enn verr út fyrir Banka­sýsl­una ef hún hafi miðað við loka­skjalið við upp­lýs­inga­gjöf til ráð­herra um leið­bein­andi loka­verð en ef hún hefði stuðst við gall­aða Excel-skjalið, líkt og hún sagð­ist hafa gert þar til í októ­ber.

Það er rök­stutt með því að loka­skjalið sýnir mun meiri eft­ir­spurn og að hægt hefði verið að selja á mun hærra verði en þær upp­lýs­ingar sem fram komu í gall­aða Excel-skjal­inu.

Það var því nið­ur­staða Rík­is­end­ur­skoð­unar að betri fram­kvæmd söl­unnar og áreið­an­legri grein­ing á eft­ir­spurn þegar leið­bein­andi loka­verð var ákvarðað hefði mögu­lega getað skilað meiri tekjum í rík­is­sjóð.

Í skýrsl­unni segir að íslenska ríkið hafi ekki þurft að gefa 2,25 millj­arða króna afslátt af hluta­bréfum í Íslands­banka þegar það seldi 22,5 pró­sent hlut­inn í honum. Seinna skjalið sýni að umfram eft­ir­spurn var eftir því að kaupa allan eign­ar­hlut­inn á dagsloka­gengi Íslands­banka þann dag, 122 krónur á hlut, eða á hærra verð­i.

Sam­kvæmt skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar voru skýr merki um að end­an­legt sölu­verð hafi „fyrst og síð­ast ráð­ist af eft­ir­spurn erlendra fjár­festa“ og að frek­ari hækkun gæti haft nei­kvæð áhrif á þróun hluta­bréfa­verðs bank­ans að sölu lok­inni. „Stofn­unin [Banka­sýsla rík­is­ins] tók þá ákvörð­un, að ráði ráð­gjafa sinna, að leggja til við ráð­herra að eign­ar­hlut­ur­inn skyldi seldur á lægra verði að því er virð­ist til að ná fram öðrum mark­miðum en for­gangs­mark­miði sínu og meg­in­reglu laga nr. 155/2012 um hag­kvæmni eða hæsta verð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár