Rafmyntir hrynja í verði

Rafmyntirnar Bitcoin og Ether hafa hrunið í verði á undan­förnum mánuðum, en fjár­festar eru óvissir um framtíð gjald­miðlanna og tækninnar sem liggur að baki henni.

Fjárfestar eru óvissir um framtíðarvirði Bitcoin og Ether.
Fjár­festar eru óvissir um fram­tíð­ar­virði Bitcoin og Ether. Mynd: Pexels

Virði rafmyntanna Bitcoin og Ether hefur fallið hratt í verði á þessu ári eftir mikinn vöxt í fyrra. Fjár­festar eru tvístígandi um framtíðar­virði myntanna og blockchain tækninnar sem hún hvílir á, en margir þeirra trúa enn að það muni vaxa í náinni framtíð. Þetta kemur fram í frétt á vef Bloomberg.

Fjár­festar hafa selt hlut sinn í Bitcoin og öðrum rafmyntum í stórum stíl það sem af er mánuði. Á síðustu tveimur vikum hefur virði rafmyntarinnar lækkað úr rúmum átta þúsund Bandaríkja­dölum niður í tæpar sex þúsund. Þetta jafn­gildir rúmri fjórðungs­lækkun á einungis fjórtán dögum, en virði Bitcoin er nú einungis tæp 30 prósent af virði hennar í fjár­festinga­bólunni í fyrra.

Skiptar skoðanir eru þó enn meðal verðbréfa­miðlara, þar sem margir þeirra telja gríðarlegar lækkanir rafmyntarinnar undan­farna mánuði einungis vera leið­rétting á hjarð­hegðun fjárfesta í fyrra og að virði blockchain tækninnar muni stíga í náinni framtíð.

Kjarninn hefur áður fjallað um áhuga fjárfesta á blockchain tækninni á þessu ári, en fyrr í sumar tilkynnti fjár­festinga­bankinn BlackRock að fyrir­tækið hafi sett saman starfshóp til að meta virði tækninnar og kosti, þrátt fyrir lítinn áhuga fjárfesta. Í síðasta mánuði tilkynnti svo Kodak að fyrir­tækið hafi hætt við verkefni sitt sem sneri að útleigu á bitcoin-námum eftir að hafa tilkynnt það í fyrra. Þess í stað muni myndavéla­fyrirtækið einbeita sér að vinnslu rafmynta á Íslandi.

Bloomberg fjallaði einnig um minnkandi virði rafmyntarinnar Ether í gær, en samkvæmt fréttinni bjuggust margir við að hún myndi taka við af Bitcoin sem verð­mætasta rafmyntin eftir að hafa náð 32 prósentum af rafmyntar­markaðnum í fyrra. Ether hefur hins vegar hrunið í verði líkt og Bitcoin, en virði myntarinnar í dag er einungis tæp 40% af virði hennar í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár