Kodak dregur úr Bitcoin-útrásinni sinni

Kodak hefur hætt við útleigu á bitcoin-námum eftir kynningu á þeim fyrr í ár. Leyfis­hafi Kodak mun þess í stað einbeita sér að vinnslu rafmynta á Íslandi.

Varan KashMiner átti að framleiða Bitcoin-rafmynt fyrir notendur sína.
Varan KashMiner átti að fram­leiða Bitcoin-raf­mynt fyrir not­endur sína. Mynd: Pexels

Kodak hefur hætt við áform sín um að leigja út bitcoin-námur til neytenda sinna, en fram­leiðandi námanna mun snúa sér að bitcoin-vinnslu á Íslandi í staðinn. Þetta kemur fram í nýrri frétt BBC.

Hætt við útrás

Síðastliðinn janúar kynnti Kodak fyrir­hugaða útrás í starfsemi sinni á rafmynta­markaðinn, annars vegar með útgáfu rafmyntar að nafni KodakCoin og hins vegar með uppsetningu rafmynta­náma til notenda sinna. Fjár­festar tóku fréttunum nokkuð vel, en í kjölfar tilkynningarinnar rauk hlutabréfa­verð Kodak upp í um 120%.

Námu­útleiga fyrir­tækisins átti að fara fram með sérstakri vöru fyrir­tækisins, KashMiner, sem Kodak kynnti á CES-tækni­ráðstefnunni í Las Vegas fyrr á þessu ári. KashMiner var í umsjá leyfis­hafa Kodak, Spotlite, en tilgangur vörunnar var að framleiða bitcoin-rafmyntina fyrir neytendur gegn um 3.400 Bandaríkja­dala greiðslu.

Framkvæmda­stjóri Spotlite, Halston Mikail, lýsti einnig yfir áformum fyrr í ár um að gangsetja hundruðir KashMiner-vara hjá höfuð­stöðvum fyrir­tækisins í New York, en samkvæmt honum voru 80 vörur nú þegar starf­ræktar.

Í umfjöllun BBC var verkefnið harðlega gagnrýnt þar sem ekki sást hvernig það myndi ná sínum yfirlýstu hagnaðar­markmiðum. Kynning Spotlite gerði ráð fyrir mánaðar­legum 375 Bandaríkja­dala tekjum í tvö ár fyrir leigu á tækinu, en gagn­rýnendur sögðu fyrir­tækið ekki hafa tekið tillit til vaxandi flækju­stigs bitcoin-náma­vinnslu, sem skili að öllum líkindum minni hagnaði í fram­tíðinni.

Talsmaður Kodak lýsti því svo yfir í viðtali við BBC að einka­leyfi á KashMiner hafi aldrei verið veitt og að engar vörur hafi verið gangsettar. Í viðtali frétta­stofunnar við Mikail segir hann fjármála­eftirlit Banda­ríkjanna hafa komið í veg fyrir það, en fyrir­tækið muni þess í stað einbeita sér á rafmyntar­vinnslu á Íslandi.

Umfangsmikil framleiðsla á Íslandi

Náma­vinnsla rafmynta er umtals­verð á Íslandi, en samkvæmt nýlegri frétt Grapevine er talið að um það bil 10% allrar rafmyntar­vinnslu heimsins fari fram hér á landi, þótt nákvæmt umfang sé ekki nákvæmlega vitað. Stærstu fyrir­tækin sem sjá um myntar­vinnsluna hérlendis eru að öllum líkindum Genesis Mining Iceland ehf. og Bitfury Iceland ehf., samkvæmt umfjöllun Kvenna­blaðsins um málið.

Vinnsla rafmynta hefur vakið athygli vegna gríðar­mikillar orku­þarfar, en öll fram­leiðsla á bitcoin-rafmyntum er talin eyða um 30,14 Terawattsstundum á ári, en það jafn­gildir meiri raforku en heildar­neysla Írlands.

Sömuleiðis greindi Stundin frá orkufreku gagnaveri Advania í Reykja­nesbæ sem notað var til bitcoin-vinnslu, en verið notaði um eitt prósent af allri orku­framleiðslu Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár