Lætur ekki undan „öllu garginu“ um Guðmundar- og Geirfinnsmál

Brynjar Níelsson, formaður stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, telur að grein sín frá 2011, þar sem hann kemur rann­sóknar­aðilum og dómstólum til varnar, eldist vel.

Brynjar Níelsson, formaður stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, telur að grein sín um Guðmundar- og Geirfinnsmál frá 2011, þar sem hann kemur rann­sóknar­aðilum og dómstólum til varnar, eldist vel. Frá þessu greinir hann í umræðum á Facebook þar sem hæðst er að greininni. „Þetta eldist nefnilega mjög vel,“ skrifar Brynjar og bætir við: „Sumir láta ekki undan öllu garginu.“

Á föstu­daginn féllst endur­upptöku­nefnd á endur­upptöku á dómum sem þeir Kristján Viðar Júlíusson, Sævar Marinó Ciesielski, Tryggvi Rúnar Leifsson, Guðjón Skarp­héðinsson og Albert Klahn Skaftason hlutu í Guðmundar og Geirfinns­málunum á áttunda áratug síðustu aldar. Í úrskurði nefndarinnar er því lýst með ítarlegum hætti hvernig lögregla beitti sakborningana harðræði og aðferðum sem ekki voru til þess fallnar að leiða sann­leikann í ljós. Fram kemur að lögregla hafi ítrekað brotið gegn réttindum sakborninga, meðal annars gegn laga­ákvæðum um lengd yfirheyrslna og laga­fyrirmælum um að svör manna við spurnum væru skilmerki­lega og orðrétt færð í letur. Þá er því lýst hvernig staðið var að einangrunar­vist sakborninga, en nefndin telur að harðræðið hafi haft áhrif á andlega og líkamlega heilsu þeirra. „Endur­upptöku­nefnd telur að ónákvæm skráning og skortur á skráningu fjölmargra yfirheyrsla, viðtala og annarra samskipta rann­sóknarmanna og annarra við dómfelldu á löngum tímabilum varpi mikilli rýrð á trúverðug­leika rann­sóknarinnar í heild,“ segir í úrskurðinum. 

Niður­stöður endur­upptöku­nefndar eru að miklu leyti í takt við niður­stöður starfs­hóps innan­ríkis­ráðuneytisins sem kynntar voru árið 2013. Í skýrslu starfs­hópsins var því t.d. lýst hvernig Sævar Ciesielski sætti gæslu­v­arðhaldi í 1533 daga, þar af 615 daga í ein­angr­un í Síðu­múlafang­elsi og var yfir­heyrður í samtals 320 klukku­stundir. Var höfði Sævars dýpt í kalt vatn, hann sleginn af fanga­verði og honum haldið vakandi svo sólar­hringum skipti auk þess sem hann fékk ótæpilega lyfjagjöf.

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins og formaður stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, skrifaði pistil um Guðmundar- og Geirfinnsmál á Pressuna árið 2011. Þar tekur hann upp hanskann fyrir rann­sakendur og gerir lítið úr ásökunum um að sakborningar hafi verið beittir verulega harðræði. Þá fullyrðir hann að „allt tal um dómsmorð, illvirki dómara, þvinganir og harðræði lögreglu í því skyni að fá fram játningar í Guðmundar-og Geirfinns­málinu“ sé „ekkert annað en aðdróttanir sem ekki verður séð að fái stuðning í gögnum málsins.“ Telur Brynjar „óskiljanlegt hvernig vegið hefur verið að þeim mönnum sem stýrðu rannsókn málanna og dæmdu þau í héraði og Hæstarétti“.

Sem fyrr segir telur Brynjar að skrif sín eldist vel þrátt fyrir að bæði starfs­hópur innan­ríkis­ráðuneytisins og endur­upptöku­nefnd hafi gert grein fyrir harðræði og óvönduðum vinnu­brögðum rann­sóknaraðila með ítarlegum hætti síðan greinin var skrifuð. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár