Hágæða ferðaþjónusta „sem á engan sinn líka“ þarf ekki í umhverfismat

Á jörðinni Heyklifi sunnan Stöðvar­fjarðar er áformað að reisa hótel og heilsu­lind fyrir um 250 gesti. Framkvæmda­aðili hyggst reyna að raska „sérstæðri og tilkomu­mikilli“ náttúru svæðisins sem minnst en hún einkennist af kletta­kömbum og klettóttri strönd.

Bæjarhúsin að Heyklifi.
Bæj­ar­húsin að Heyklifi. Mynd: Úr tillögu að matsáætlun

Skipulags­stofnun hefur ákveðið að fyrir­huguð uppbygging 100 herbergja hótels og heilsu­lindar á jörðinni Heyklifi á Kambanesi sunnan Stöðvar­fjarðar skuli ekki háð mati á umhverfis­áhrifum. Stofnunin setur þó ýmis skilyrði í áliti sínu, m.a. að aðgangs­takmarkanir verði settar á ákveðnum árstímum vegna fjöl­breytts fuglalífs sem þarna er að finna.

Jörðin eru í eigu CityLab ehf., og í frétt Austur­fréttar í fyrra kom fram að eigandi fyrir­tækisins væri Alexander Efanov, rússneskur arkitekt sem starfað hefur á Íslandi um árabil. Í mars í fyrra kom fram í grein í Morgun­blaðinu að fjár­festinga­félagið TP Investments, sem sagt er vera fjölskyldu­fyrirtæki frá Mónakó, hygðist reisa hótelið. Í áliti Skipulags­stofnunar, sem birt var nýverið, kemur fram að framkvæmda­aðili sé Jerome Bottari en hann er framkvæmda­stjóri hjá TP Investments.

Kambanes er ysti hluti fjall­garðsins sem skilur að Stöðvar­fjörð og Breiðdal og því í sveitar­félaginu Fjarða­byggð. Á Kambanesi er jörðin Heyklif, gömul bújörð, en búskapur hefur lagst af. Á miðju nesinu er Kamba­hnúta, kletta­borg sem rís um 81 metra yfir sjávarmál. Bæjar­húsin saman­standa af íbúðar­húsi, hlöðu og útihúsi, byggingar sem voru reistar á árunum 1940, 1953 og sú nýjasta 1999 í kjölfar þess að eldra íbúðarhús eyði­lagðist í eldsvoða. Á nesinu er viti, Kambanes­viti, sem var reistur árið 1922.

Á Kambanesi voru áður tvær bújarðir en þær hafa verið sameinaðar undir nafninu Heyklif. Þar stendur nú til að byggja upp ferða­þjónustu á 16 hektara svæði en deili­skipulags­svæðið í heild er 132 hektarar. Gert er ráð fyrir að reisa hótel með veitinga­stað, nokkur fjölskylduhús og gistihýsi með samanlagt um 100 herbergjum fyrir um 250 manns. Þá á einnig að reisa starfsmannahús.

Í deili­skipulags­tillögu framkvæmda­aðila, sem var kynnt nýverið, segir að á svæðinu sé fyrir­huguð hágæða ferða­þjónusta „sem á engan sinn líkan“. Lögð verði áhersla á að byggingar, vegir, göngu­stígar og önnur mannvirki falli vel að „sérstæðri og tilkomu­mikilli náttúru svæðisins og raski sem minnst sérstöðu þess [.]“

Í tillög­unni kemur fram að fyrir­huguð sé ýmis konar starfsemi, gert sé ráð fyrir brugghúsi með aðstöðu til að taka á móti gestum og veitinga­stað. Einnig sé gert ráð fyrir „hágæða hóteli með heilsu­lind“. Þá sé gert ráð fyrir „vönduðum og sérstæðum byggingum“ af nokkrum stærðum til útleigu fyrir ferðamenn.

Jörðin Heyklif afmarkast að mestu á þrjá vegu af sjó og til vesturs af þjóðvegi 1 og skilgreindum landa­merkjum sem samþykkt voru 20. desember 2018.

Vilja skapa einstakan staðaranda

Landslag svæðisins rímar ágætlega við nafnið Kambanes, segir í deili­skipulags­tillögunni. „Kletta­brúnir eða kletta­kambar stallast í stöllum frá Þjóðvegi 1 að klettóttri sjávar­strönd. Flatlendi er á nokkrum stöðum á milli stallanna, auk mann­gerðra túna og mann­gerðrar tjarnar.“

Megin­áherslur framkvæmd­anna verða m.a. að „skipuleggja hágæða ferðamanna­stað á Íslandi sem á sér engan líka“ og að skapa með því „einstakan staðar­anda þar sem upplifun gesta verður einstök“.

Í tillög­unni kemur einnig fram að gesta­fjöldi hafi verið áætlaður til ársins 2027. Þær áætlanir gerðu ráð fyrir að hótel­þorpið yrði opnað á næsta ári og var það ár gert ráð fyrir 5.840 gestum. Árið 2027 var gert ráð fyrir 15.700 gestum.

Í gögnum frá Alta ráðgjöf, sem Skipulags­stofnun byggir álit sitt á, kemur fram að byggingar yrðu samanlagt að hámarki tæpir 11.000 fermetrar. Hótelið yrði 7.300 fermetrar, þar af yrðu 2.050 fermetrar neðanjarðar. Byggingin yrði á tveimur hæðum og yfir tíu metra há. Veitinga­staður og starfsmanna­aðstaða yrði þúsund fermetrar að stærð. Fjögur stór fjölskylduhús eru fyrir­huguð, hvert og eitt um 180 fermetrar að meðaltali. Til viðbótar yrði eitt stórt og stakt fjölskylduhús um 700 fermetrar að stærð. Gistihýsin yrðu átta. Fimm þeirra yrðu að meðaltali um 90 fermetrar en þrjú að meðaltali um 100 fermetrar. Þá er áformað að reisa 200 fermetra þjónustuhús á jörðinni og leggja bílastæði. Einnig er gert er ráð fyrir að núverandi íbúðar- og útihús verði notuð áfram fyrir starfsemi staðarins.

Svæðið að mestu óraskað

Í áliti Skipulags­stofnunar er bent á að að uppbyggingin sé fyrir­huguð á svæði sem er að mestu leyti óraskað í dag og án mann­virkja. „Ljóst er að um er að ræða umfangs­mikla uppbyggingu fyrir ferðamenn sem samanstendur af mörgum framkvæmda­þáttum.“ Stofnunin telur hins vegar að við val á stað­setningu fyrir­hugaðra húsa og vegar hafi verið tekið tillit til gróður­fars svæðisins og fornleifa. Þannig verður ekki raskað vist­gerðum með hátt eða mjög hátt verndar­gildi eða votlendi sem njóti verndar.

Talsvert fuglalíf er á Kambanesi og telur Skipulags­stofnun ljóst að fyrir­hugaðar framkvæmdir komi til með að hafa neikvæð áhrif á fugla, bæði á framkvæmda­tíma og á rekstar­tíma vegna aukinnar umferðar ferða­fólks. Segir stofnunin því mikilvægt að framkvæmdum verði haldið í lágmarki yfir varptíma að höfðu samráði við Náttúru­fræði­stofnun Íslands. Þá tekur hún undir umsögn Umhverfis­stofnunar um að ástæða sé til þess að aðgangs­stýring sé sett á ferðir gesta um svæðið til þess að lágmarka truflun fyrir fuglalíf, einkum á varptíma.

Í góðu samræmi við landslag

Skipulags­stofnun telur að ein helstu neikvæðu áhrif fyrir­hugaðra framkvæmda verði vegna ásýndar­breytinga. En með því að leggja áhersla á að hönnun og umfang bygginga, húsagerð, form og lita­samsetning verði í góðu samræmi við landslag og sérstöðu svæðisins, eins og framkvæmda­aðili fyrir­hugar, megi draga úr þessum neikvæðu áhrifum.

Þá telur stofnunin jákvætt að sett hafi verið ákvæði um lýsingar­hönnun í deili­skipulag til að milda áhrif byggðar á ásýnd en beinir þeim tilmælum til framkvæmda­aðila að huga einnig að áhrifum lýsingar á fuglalíf. „Í ljósi ofan­greinds telur Skipulags­stofnun ólíklegt að framkvæmdin komi til með að hafa í för með sér veruleg óafturkræf umhverfis­áhrif sem ekki er hægt að fyrir­byggja eða bæta úr með mótvægis­aðgerðum.“

Það er því niður­staða stofnunarinnar að fyrir­huguð framkvæmd sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtals­verð umhverfis­áhrif og því skuli hún ekki háð mati á umhverfis­áhrifum. Samkvæmt 14. gr. laga um mat á umhverfis­áhrifum má kæra ákvörðunina til úrskurðar­nefndar umhverfis- og auðlinda­mála. Kæru­frestur er til 10. ágúst 2020.

Náttúru­stofa Austur­lands gerði að beiðni framkvæmda­aðila úttekt á gróður­fari og fuglalífi á Kambanesi sumarið 2019. Gengið var um svæðið, vist­gerðir kort­lagðar, gróðri lýst og tegundir skrá­settar. Vist­gerðir með mjög hátt eða hátt verndar­gildi þöktu um 40 prósent af athugunar­svæðinu og voru allt votlendis­vistgerðir. Innan athugunar­svæðisins voru fimm votlendis­svæði yfir 20.000 fermetrar að stærð og njóta því verndar samkvæmt lögum. Fyrir­huguð mannvirki verða einkum á svæðum þar sem er að finna vist­gerðir sem skilgreindar eru með miðlungs eða lágt verndar­gildi.

Lífríki svæðisins einkennist af nálægð við sjóinn. Fuglalíf er mest við ströndina og þá á varptíma á vorin. Sjófuglar eru algengastir en mó- og vaðfuglar ofar á nesinu. Æðarvarp er á sunnan­verðu nesinu og er það nytjað. Þá er að finna varplendi fyrir endur, gæsir, kríu, ritu og fýl.

Fugla­byggðir voru einnig kort­lagðar sem og varp­dreifing með tilliti til fyrir­hugaðrar mann­virkja­gerðar. Alls voru greindar 23 tegundir varpfugla þar af tólf á válista fugla og níu er flokkast sem ábyrgðar­tegundir.

Skipulagsmálin vel á veg komin

Breyting á aðal­skipulagi Fjarða­byggðar 2007-2027 var í kynningar­ferli nýverið sem og deili­skipulags­tillaga jarðarinnar Heyklifs. Áður en framkvæmda­leyfi verður veitt þarf að liggja fyrir staðfest breyting á aðal­skipulagi og samþykkt deili­skipulag.

Deili­skipulagið sem og aðal­skipulags­breytingin voru samþykktar í eigna-, skipulags- og umhverfis­nefnd Fjarða­byggðar í maí og vísað til bæjar­stjórnar sem staðfesti ákvörðun nefndarinnar, með stað­festingu fundar­gerðar hennar, í lok maí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár