Trump vill bandarískt ál og stál

Donald Trump Bandaríkja­forseti heldur áfram að beita verndar­tollum til að styrkja grunn­atvinnu­vegina heima fyrir.

Donald J. Trump Bandaríkja­forseti hefur tilkynnt um tollar verði hækkaðir á innflutt ál og stál. Með þessu hyggst hann efla stál- og áliðnað í Banda­ríkjunum, með það að markmiði að örva hagkerfið og fjölga störfum. Hann vill að það sé bandarískt ál og stál sem sé notað í fram­leiðslu í Banda­ríkjunum.

Ekki hefur verið nákvæmlega útfært ennþá, hvernig staðið verður að tolla­hækkuninni, en Trump gaf í skyn að tollar á stál myndu hækka mun meira en á álið. Hækkunin yrði um allt að 25 prósent á stál og 10 prósent á áli.

Óhætt er að segja að bandarískur efnahagur sé háður stál- og álframleiðslu í öðrum ríkjum, því innflutningurinn á þessum tveimur burðar­virkjum í málm­iðnaði hefur orðið mestur um sexfallt meiri en útflutningur á árs grund­velli.

Bandarískur bíla­iðnaður hefur varað við því að gripið sé til þessara aðgerða þar sem slíkt gæti dregið úr samkeppnis­hæfni bandarísk bíla­iðnaðar og kallað á mótaðgerðir annarra ríkja, eins og Kína. Með því gætu markaðir lokast og það gæti svo leitt til þess að aðgerðirnar færu þvert gegn markmiðum sínum, þannig að störfum myndi í reynd fækka.

Trump hefur talað fyrir nauðsyn þess að beita verndar­tollum til að örva bandaríska hagkerfið, og hefur það þegar verið leitt í regluverk, að tollar á innfluttar vörur, eins og þvotta­vélar, hafa hækkað mikið, eða um meira en 30 prósent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár