Uppþot og útgöngubann í Washington

Borgar­stjórinn í Washington hefur sett á útgöngu­bann í borginni eftir að mótmælendur ruddust inn í þinghúsið þar sem staðfesta átti kjör Joe Bidens sem forseta landsins.

Vopnaðir verðir og lögreglumenn inni í þingsalnum, tilbúnir að skjóta.
Vopnaðir verðir og lög­reglu­menn inni í þingsalnum, til­búnir að skjóta. Mynd: Skjáskot

Mótmælendur eru komnir inn í húsið. Þannig hljómuðu skilaboð sem þingmenn í fengu í þing­húsinu í Washington í dag. „Haldið ykkur frá gluggum og dyrum,“ tilkynnti lögreglan skömmu síðar eftir að hún hafði rammlæst húsinu og hleypti fólki hvorki inn né út.

Í dag var engin venjuleg samkoma í þing­húsinu. Þar voru þingmenn beggja deilda saman komnir til að staðfesta úrslit forseta­kosninganna og þar með sigur Joe Bidens. Borgar­stjórinn hefur sett á útgöngu­bann í Washington. Ríkis­stjórinn hefur óskað eftir því að þjóð­varðliðið verið kallað til svo skakka megi leikinn.

Þúsundir stuðnings­manna Donalds Trump Bandaríkja­forseta eru saman komnir í Washington. Þeir halda því fram að kosningunum hafi verið „stolið“ af Trump. Margir þeirra telja að í dag hafi loka­orrustan hafist þar sem á fundi beggja þing­deilda átti að staðfesta kjör Joe Bidens.

Trump tapaði í kosningunum sem fram fóru í nóvember en heldur því enn fram að svik og prettir hafi verið í tafli. Ekkert bendir til þess að svo sé. Hann hefur hvatt stuðnings­menn sína til að mæta á fjölda­fundi hans í höfuð­borginni. Á slíkum fundi sem haldinn var í dag var honum fagnað gríðar­lega af viðstöddum og hélt hann því enn fram að hann væri sigurvegari kosninganna.

Fjöldi mótmælenda var saman kominn við þinghúsið í Washington í dag og áttu lögreglu­menn fullt í fangi með að halda aftur af mann­fjöldanum. Innandyra fóru fram umræður um stað­festingu á úrslitum kosninganna. Hópi mótmælenda tókst að komast inn í þinghúsið.

Muriel Bowser, borgar­stjóri Washington, ákvað að setja á útgöngu­bann í borginni eftir að ástandið við þinghúsið hafði versnað. Hann sagði að enginn ætti að vera á ferli utandyra. Útgöngu­bannið gildir í tólf tíma.

Trump, sem hafði ítrekað hvatt stuðnings­menn sína til að mótmæla í höfuð­borginni og krefjast þess að þingið snúi úrslitum kosninganna sér í vil, skrifaði í tísti nú í kvöld, eftir að uppþotið varð við þinghúsið: „Verið frið­samleg“.

Lögreglan hefur einnig tilkynningu um að röra­sprengjum hefði verið komið fyrir víðs vegar um borgina, m.a. utan við þinghúsið og voru nokkrar byggingar þess rýmdar í varúðar­skyni. Til átaka hefur komið milli lögreglu og mótmælenda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár