Útgáfufélag Viðskiptablaðsins hagnaðist í fyrra eftir mikið tap á árinu 2020

Eftir að hafa tapað 55,2 milljónum króna árið 2020 hagnaðist Myllu­setur, fjórða stærsta fjölmiðla­fyrirtæki landsins, um 7,5 milljónir króna í fyrra.

Trausti Hafliðason er ritstjóri Viðskiptablaðsins.
Trausti Haf­liða­son er rit­stjóri Við­skipta­blaðs­ins. Mynd: RÚV/Skjáskot

Myllu­setur, sem gefur meðal annars út Viðskipta­blaðið, hagnaðist um 7,5 milljónir króna í fyrra. Það er mikill viðsnúningur frá árinu 2020 þegar útgáfu­félagið tapaði 55,2 milljónum króna og setti 15 af 18 starfs­mönnum sínum á hluta­bótaleiðina svokölluðu, þar sem ríkið greiddi stóran hluta af launum þeirra um skeið.

Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins sem birtur var nýverið í fyrirtækja­skrá.

Rekstrar­tekjur Myllu­seturs jukust umtals­vert milli ára og voru 303 milljónir króna á árinu 2021. Það eru 13,4 prósent meiri tekjur en félagið hafði árið 2020. Inni í rekstrar­tekjum er 26,8 milljóna króna rekstrar­styrkur sem Myllu­setur fékk úr ríkis­sjóði. Félagið fékk líka styrk í ár, en hann var 25 milljónir króna, og því lægri en í fyrra, þrátt fyrir að launa­kostnaður Myllu­seturs hefði aukist um næstum 23 milljónir króna á milli ára og hafi verið 178,8 milljónir króna á síðasta ári. Meðal­fjöldi starfs­manna var hins vegar áfram 16, líkt og hann hafði verið ári áður.

Eigið fé 22,5 milljónir

Rekstrar­gjöld jukust í heild um rúmlega ellefu milljónir króna milli ára. Þá lækkaði vaxta­kostnaður Myllu­seturs umtals­vert frá árinu 2020 þegar hann var 23,5 milljónir króna. Í fyrra fór hann niður í 8,1 milljónir króna, eða rúmlega þriðjung þess sem hann var ári áður.

Eigið fé Myllu­seturs var 22,5 milljónir króna um síðustu áramót. Félagið skuldaði á sama tíma 135,8 milljónir króna en átt eignir upp á 158,3 milljónir króna. Verð­mætasta eign Myllu­seturs eru verðbréf, metin á tæplega 86 milljónir króna,en ekki er greint frá því í ársreikningi um hvaða verðbréf sé að ræða.

Eig­endur Myllu­set­urs eru tveir, félagið PÁJ Invest í eigu Pét­urs Árna Jóns­sonar sem á 67 pró­sent hlut, og SBJ Invest í eigu Sveins Biering Jónssonar sem á 33 pró­sent hlut. Félagið hafði skilað smá­vægi­legum hagn­aði, undir tveimur millj­ónum króna, á árunum 2018 og 2019.

Lesturinn minni en fyrir ári

Við­­skipta­­blaðið kemur út á fimmt­u­­dögum og er selt í áskrift. Alls lesa 4,7 pró­­sent lands­­manna það blað og hjá ald­­ur­s­hópnum 18 til 49 ára mælist lest­­ur­inn 3,8 pró­­sent.

Lest­ur­inn hefur dalað við síð­ustu mán­uði en í ágúst 2021 var hann 6,1 prósent og hefur því dregist saman um 23 prósent á einu ári. Hjá lesendum undir fimmtugu hefur hann dregist saman um 39 prósent á einu ári.

Auk blaða­út­gáfu heldur Myllu­setur úti fréttavefunum vb.is, sem var að mestu lokað fyrir öðrum en áskrifendum fyrr á þessu ári, og fiskifrettir.is auk þess sem útgáfu­fé­lagið stendur að útgáfu Íslenska sjó­manna­alm­an­aks­ins. Þá á Myllu­setur, og gefur út, Frjálsa verslun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár