Styrkur til stærstu fjölmiðlanna dregst saman en styrkur til Bændasamtakanna hækkar

Alls fá 25 fyrirtæki rekstrar­styrk úr ríkis­sjóði vegna fjölmiðla­reksturs. Aukin fjöldi umsókna, hærri styrkir til sumra og minni heildar­pottur orsakar það að flestir frétta­miðlar fá lægra hlutfall af stuðnings­hæfum kostnaði endur­greiddan nú en í fyrra. .

Lilja D. Alfreðsdóttir er ráðherra fjölmiðlamála.
Lilja D. Alfreðs­dóttir er ráð­herra fjöl­miðla­mála. Mynd: Bára Huld Beck

Þrjú stærstu einka­reknu fjölmiðla­fyrirtæki landsins, Árvakur, Sýn og Torg fá hvert um sig tæplega 66,8 milljónir króna í rekstrar­stuðning úr ríkis­sjóði í ár. Alls var 381 milljón króna úthlutað af sérstakri úthlutunar­nefnd sem skipuð er af Lilju D. Alfreðs­dóttur, menningar- og viðskipta­ráðherra, og því fór tæplega 53 prósent heildar­upphæðarinnar sem úthlutað var í rekstrar­styrki til fjölmiðla til þeirra.

Upphæðin sem stóru fjölmiðla­fyrirtækin þrjú fengu samtals lækkaði um 44 milljónir króna frá því í fyrra þegar þau fengu 62 prósent úthlutaðra styrkja, eða um 14,7 milljónir króna hjá hverju þeirra. Ástæður þessa eru þær að heildar­potturinn sem úthlutað var úr lækkaði um átta milljónir króna milli ára, fleiri fjölmiðla­fyrirtæki sóttu um stuðnings­greiðslur nú en í fyrra og sumir aðilar fengu hærri greiðslur nú en áður.

Í ár bárust 28 umsóknir um styrk en þremur þeirrra var synjað þar sem þær uppfylltu ekki öll skilyrði fyrir rekstrar­stuðningi. Því fengu 25 fyrirtæki rekstrar­stuðning en í fyrra voru þau 21 talsins.

Á meðal þeirra fjölmiðla­fyrirtækja sem fá styrk nú, en fengu ekki í fyrra, eru Sóltún, sem heldur úti vefnum Mannlífi sem er ritstýrt af Reyni Trausta­syni. Það fyrirtæki fékk 10,5 milljónir króna í styrk. Þá fékk Birtingur útgáfu­félag, sem gefur meðal annars út Vikuna, styrk upp á 13,2 milljónir króna, en félagið sótti ekki um stuðnings­greiðslur fyrir lok tilgreinds umsóknar­frests í fyrra.

Bændasamtökin bæta við sig 4,4 milljónum króna

Sá aðili sem eykur rekstrar­stuðning sinn mest milli ára eru Bænda­samtök Íslands, sem eru ekki atvinnu­greina­flokkuð sem útgáfu­starfsemi heldur sem hagsmuna­samtök. Rekstrar­stuðningurinn er vegna útgáfu Bænda­blaðsins og nemur 16,8 milljónum króna nú, sem er 4,4 milljónum krónum meira en Bænda­samtökin fengu í greiðslur í fyrra.

Ritstjórn Bænda­blaðsins heyrir undir útgáfu- og kynningar­svið Bænda­samtaka Íslands. Á heimasíðu Bænda­samtakanna segir að hlutverk þeirra sé að vera „málsvari bænda og gæta hagsmuna þeirra í hvívetna“. Megin­markmið þeirra sé að „beita sér fyrir bættri afkomu bænda, betri rekstrar­skilyrðum í land­búnaði auk þess að miðla upplýsingum og sinna fræðslu til sinna félags­manna.“

Bænda­blaðið er sent endurgjalds­laust á öll lögbýli á Íslandi.

Norð­lenska fjölmiðla­fyrirtækið N4, sem er meðal annars í eigu KEA, Kaup­félags Skagfirðinga og Síldar­vinnslunnar, fær nú 20,7 milljónir króna í styrki eða 1,3 milljónum krónum meira en fyrir­tækið fékk í fyrra.

Greiðslur til ýmissa fréttamiðla lækka

Rekstrar­stuðningurinn getur að hámarki verið 25 prósent af stuðnings­hæfum rekstrar­kostnaði umsækjenda sem uppfylla ýmis skilyrði sem sett eru fyrir því að fá greitt úr pottinum. Sé sótt um hærri upphæð en búið er að gera ráð fyrir að ráðstafa skerðist hlut­fallið af rekstrar­kostnaði sem fæst greitt hjá hverjum og einum umsækjanda. Í þau skipti sem greiðslunum hefur verið úthlutað þá hefur ætið verið sótt um mun hærri upphæð en er til skiptanna.

Sá kostnaður sem er stuðnings­hæfur er kostnaður við rekstur ritstjórnar.

Kjarninn miðlar, útgáfu­félag Kjarnans, jók launa­kostnað í fyrra um 35 prósent og fjölgaði ársverkum úr 6,2 í 9,3 á árinu 2021. Nær öll þessi aukning var vegna fjölgunar á ritstjórn miðilsins. Rekstrar­stuðningurinn í ár er þó nánast nákvæmlega sá sami í ár og hann var í fyrra, eða 14,5 milljónir króna.

Önnur fjölmiðla­fyrirtæki en þau sem nefnd hafa verið hér að ofan sem fengu yfir tíu milljónir króna í rekstrar­styrk eru Myllu­setur, útgáfu­félag Viðskipta­blaðsins og tengdra miðla, sem fær 25 milljónir króna, eða 1,8 milljónum krónum minna en í fyrra, og útgáfu­félag Stundarinnar, sem fær 22,3 milljónir króna, eða þremur milljónum minna en í fyrra.

Kjarn­inn er eitt þeirra fjöl­miðla­fyr­ir­tækja sem nýtur opin­bers rekstr­ar­stuðn­ings.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár