Rekstrartekjur Kjarnans hafa vaxið um 80 prósent á tveimur árum

Ársverkum hjá Kjarnanum fjölgaði um rúmlega þrjú í fyrra og vöxtur var í öllum helstu tekju­stoðum miðilsins. Lesendur Kjarnans hafa aldrei verið fleiri en þeir voru á árinu 2021.

Hápunktur í starfsemi Kjarnans á árinu 2021 var þegar ritstjórn hans hlaut Blaðamannaverðlaunin fyrir umfangsmikla umfjöllun um brunann á Bræðraborgarstíg sem birtist í nóvember árið áður.
Hápunktur í starf­semi Kjarnans á árinu 2021 var þegar rit­stjórn hans hlaut Blaða­manna­verð­launin fyrir umfangs­mikla umfjöllun um brun­ann á Bræðra­borg­ar­stíg sem birt­ist í nóv­em­ber árið áður. Mynd: Kjarninn

Rekstrar­tekjur Kjarnans jukust um 37 prósent á síðasta ári og voru tæplega 107 milljónir króna. Frá árinu 2019 hafa þær vaxið um 80 prósent. Vöxturinn er fyrst og síðast vegna þess að greiðslum í Kjarna­samfélagið hefur fjölgað og meðal­upphæð þeirra hækkað. Þá hafa tekjur af áskriftum að Vísbendingu og enskra frétta­bréfa sem Kjarninn á og rekur aukist og tekjur vegna auglýsinga­sölu tvöfölduðust milli ára.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í ársreikningi Kjarnans vegna ársins 2021 sem samþykktur var á stjórnar­fundi þriðjudaginn 30. ágúst síðastliðinn.

Rekstrar­gjöld hækkuðu um 32 prósent og voru 111 milljónir króna í fyrra. Þar er fyrst og síðast um aukinn launa­kostnað að ræða vegna þess að fjöldi ársverka jókst úr 6,2 árið 2020 í 9,3 á árinu 2021 og vegna samnings­bundinna launa­hækkana sem tóku gildi á tíma­bilinu. Alls jókst launa­kostnaður Kjarnans um 35 prósent en laun og launa­tengd gjöld eru 85 prósent af öllum rekstrar­gjöldum síðasta árs. Er það í samræmi við þá stefnu Kjarnans að ráðstafa auknum tekjum í að efla starfsemi fjöl­miðilsins með því að ráða fleira starfs­fólk á ritstjórn hans.

Alls nam tap af rekstri 4,9 milljónum króna en er 1,2 milljónum króna minna tap en árið 2020.

Orðinn níu ára og lestur aldrei meiri

Kjarninn fékk fjölmiðla­styrk úr ríkis­sjóði upp á 14,4 milljónir króna á síðasta ári, en alls var 389 milljónir króna úthlutað í slíka á árinu 2021. Í hlut Kjarnans féll því 3,7 prósent af heildar­upphæðinni sem var úthlutað. Þrjú stærstu einka­reknu fjölmiðla­fyrirtæki landsins, Árvakur, Sýn og Torg, fengu samtals 244 milljónir króna eða 63 prósent af þeim styrkjum sem var úthlutað.

Eigið fé útgáfu­félags Kjarnans var 25,8 milljónir króna um síðustu áramót og langtíma­skuldir félagsins fimm milljónir króna.

Kjarninn var stofnaður árið 2013 og birtist lesendum fyrst í ágúst það ár. Fjöl­miðillinn fagnar því níu ára afmæli um þessar mundir. Kjarn­inn hefur hlotið til­nefn­ingu til Blaða­manna­verð­launa á hverju ári sem hann hefur starf­að. Alls hafa blaða­menn hans hlotið verð­launin fjórum sinnum á því tíma­bili, síð­ast í ár fyrir umfjöllun um Skæruliða­deild Samherja. Hann hlaut verð­launin einnig árið 2021 fyrir umfangs­mikla umfjöllun um brun­ann á Bræðra­borg­ar­stíg.

Lestur Kjarnans var meiri í fyrra en hann hefur nokkru sinni verið áður og var 20 prósent meiri en hann var árið 2019. Það sem af er árinu 2022 hefur lestur aukist frá því sem hann var á síðasta ári.

Eign­ar­hald Kjarn­ans miðla:

  • Hg80 ehf., eig­andi Hjálmar Gísla­son 18.39%
  • Mið­eind ehf., eig­andi Vil­hjálmur Þor­steins­son 18.02%
  • Birna Anna Björns­dótt­ir, 11.65%
  • Magnús Hall­dórs­son, 9.47%
  • Þórður Snær Júl­í­us­son, 8.04%
  • Hjalti Harð­ar­son, 6.10%
  • Fagri­skógur ehf., eig­andi Stefán Hrafn­kels­son, 3.75%
  • Milo ehf., eig­endur Guð­mundur Haf­steins­son og Edda Haf­steins­dótt­ir, 3.75%
  • Voga­bakki ehf., eig­endur Árni Hauks­son og Hall­björn Karls­son, 5.02%
  • Charlotta María Hauks­dóttir og Úlfar Erlings­son, 7.50%
  • Birgir Þór Harð­ar­son, 1.91%
  • Jónas Reynir Gunn­ars­son, 1.91%
  • Fanney Birna Jóns­dótt­ir, 0.75%
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár