Mynd: Aðsend

Kjarninn vann Blaðamannaverðlaunin fyrir umfjöllun um brunann á Bræðraborgarstíg

Rit­stjórn Kjarnans vann Blaða­manna­verð­laun árs­ins 2020 fyrir umfjöllun sína um brun­ann á Bræðra­borg­ar­stíg og marg­hátt­aðar afleið­ingar hans. Hér er hægt að lesa umfjöll­un­ina.

Rit­stjórn Kjarnans hlaut í dag Blaða­manna­verð­laun Blaða­manna­fé­lags Íslands fyrir umfjöllun árs­ins 2020 fyrir umfjöllun um brun­ann á Bræðra­borg­ar­stíg 1 í fyrra­sumar. Um var að ræða átt­undu til­nefn­ingu blaða­manna Kjarnans frá því að hann var stofn­aður 2013, en þeir hafa hlotið til­nefn­ingu á hverju ári á tæp­lega átta ára líf­tíma mið­ils­ins. Blaða­menn Kjarnans hafa nú þrí­vegis hlotið verð­launin. Þeir blaða­menn sem verð­launin hlutu eru Sunna Ósk Loga­dóttir, Bára Huld Beck, Arnar Þór Ing­ólfs­son, Jónas Atli Gunn­ars­son og Þórður Snær Júl­í­us­son.

Í umsögn dóm­nefndar sagði: „Í umfangs­mik­illi umfjöllun er fjallað af næmni og dýpt um mann­skæðan hús­bruna á Bræðra­borg­ar­stíg 1 í Reykja­vík í fyrra­sumar. Blaða­menn­irnir nálg­ast atburð­inn frá ótal hliðum, frá þeim mann­lega harm­leik sem átti sér stað, yfir í kerf­is­læga jað­ar­setn­ingu og oft á tíðum óboð­legan aðbúnað erlends verka­fólks á Íslandi.“

Aðrir verð­launa­hafar voru Orri Páll Orm­ars­son á Morg­un­blað­inu, fyrir við­tal árs­ins við Ingva Hrafn Jónsson, og Nadine Guðrún Yaghi, Frétta­stofu Stöðvar tvö, Bylgj­unnar og Vísis, fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku árs­ins vegna umfjöll­unar um umfangs­mikil og afdrifa­rík mis­tök sem gerð voru við grein­ingar á leg­háls­sýnum hjá Leit­ar­stöð Krabba­meins­fé­lags­ins. Þá hlaut Þór­hildur Þor­kels­dóttir, RÚV, Blaða­manna­verð­laun árs­ins fyrir frétta­flutn­ing og við­töl í tengslum við erfið og oft við­kvæm mál.

Sá mannskæðasti í borginni

Bruninn, sem var í hjarta Reykja­víkur, er sá mann­skæð­asti sem orðið hefur í höf­uð­borg­inni. Þrjár ungar mann­eskjur fór­ust, fólk sem hafði komið til Íslands frá heima­land­inu Póllandi til að vinna. Það hafði séð hér tæki­færi til að bæta hag sinn til fram­tíðar.

Í ítar­legri umfjöllun Kjarnans um brun­ann á Bræðra­borg­ar­stíg var fjallað um húsið sjálft, eig­endur þess og sögu og við­brögð opin­berra stofn­anna og ann­arra við atburði sem á sér enga hlið­stæðu á síð­ari tímum. Varpað var ljósi á fram­lag erlends verka­fólks í auk­inni hag­sæld íslensku þjóð­ar­innar, á kjör þess og þær aðstæður sem það er látið búa við og hvernig þær aðstæður gátu skap­ast.

Fjallað var um sam­fé­lagið í Gamla Vest­ur­bænum sem stóð þétt saman og reyndi eftir fremsta megni að rétta fórn­ar­lömbunum, sem mörg hver hafa lítið tengsla­net hér á landi, hjálp­ar­hönd og sagðar sögur þeirra sem komu fyrst á vett­vang brun­ans.

Þunga­miðja umfjöll­un­ar­innar voru frá­sagnir þeirra sem lifðu af. Fólks sem kom til Íslands í leit að betra lífi en glímir nú við afleið­ingar áfalls­ins sem á eftir að fylgja því alla ævi.

Græðgi æðri mennsku

Um er að ræða umfangs­mesta rann­sókn­ar­verk­efni sem rit­stjórn Kjarnans hefur ráð­ist í. Kjarninn vildi kafa ofan í málið frá öllum hliðum og upp­runa­lega umfjöll­unin, sem birt var um miðjan nóv­em­ber 2020, inni­hélt alls 15 frétta­skýr­ingar og við­töl, tæp 31 þús­und orð. Henni var svo fylgt eftir með ítar­legum hætti út síð­asta ár.

Umfjöll­unin snertir alla fleti máls­ins. Hún lýsir mann­legum harm­leik, kerf­is­legri jað­ar­setn­ingu erlendra verka­manna á Íslandi og því hvernig við sem sam­fé­lag sam­þykkjum að græðgi sé æðri mennsku og reisn allra.

Kjarninn taldi mik­il­vægt að birta þessa umfjöllun og varpa með því ljósi á stöðu jað­ar­settra hópa sem oft búa við óboð­legar aðstæður.

Allar myndir sem fylgdu með umfjöll­un­inni, og eru sýni­legar hér, eru teknar af Golla og Báru Huld Beck. Mynd­bandið sem sést efst í þess­ari umfjöllun er gert af Golla.

Hér að neðan er hægt að lesa þau efni sem mynd­uðu umfjöllun Kjarnans um brun­ann á Bræðra­borg­ar­stíg 1 á árinu 2020:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bræðraborgarstígur

Mest lesið undanfarið ár