Dómstjóri synjar beiðni um lokað þinghald í manndrápsmálinu á Bræðraborgarstíg

Dóm­stjóri Hér­aðs­dóms Reykja­víkur hefur synjað beiðni um lokað þing­hald í máli manns­ins sem er ákærður fyrir brennu og mann­dráp á Bræðra­borg­ar­stíg 1 í sumar. Þrír fór­ust í elds­voð­anum og tveir slös­uð­ust alvar­lega.

Húsarústirnar standa enn.
Húsa­rúst­irnar standa enn. Mynd: Golli

Dóm­stjóri Hér­aðs­dóms Reykja­víkur hefur kveðið upp úrskurð um að synja beiðni um lokun þing­halds í máli Mareks Moszczynski sem var í haust ákærður fyrir brennu, mann­dráp og til­raun til mann­dráps á Bræðra­borg­ar­stíg 1. Þrír fór­ust í elds­voð­anum og tveir slös­uð­ust alvar­lega. Fjöldi fólks missti heim­ili sitt og aleig­una.

Úrskurður dóm­stjór­ans hefur verið kærður og beðið er nið­ur­stöðu Lands­réttar.

Verjandi Mareks fór fram á það í haust að þing­haldið yrði lokað á þeim for­sendum að lýs­ingar sem í því kynnu að koma fram gætu reynst mikil þol­raun og ættu ekki erindi við almenn­ing. Kolbrún Bene­dikts­dóttir vara­hér­aðs­sak­sókn­ari var því ósam­mála.

Marek neitar sök og nið­ur­staða geð­mats í haust var sú að hann hefði verið ósak­hæfur á verkn­að­ar­stundu. Farið var fram á yfir­mat, sem tveir geð­læknar fram­kvæma, og er enn beðið nið­ur­stöðu þess. Því hefur dag­setn­ing aðal­með­ferðar í mál­inu ekki verið ákveðin.

Marek sem verður 63 ára í des­em­ber, bjó sjálfur í hús­inu að Bræðra­borg­ar­stíg. Í því voru leigð út fjöl­mörg her­bergi, aðal­lega til erlendra verka­manna. Hann er ákærður fyrir að hafa 25. júní kveikt eld á gólfi í her­bergi sínu á annarri hæð húss­ins og undir stiga sem lá upp á þriðju hæð­ina. Allir sem lét­ust, tvær konur og einn karl­maður, bjuggu á þriðju hæð­inni. Tvö þeirra urðu inn­lyksa í eld­haf­inu en önnur konan greip til þess örþrifa­ráðs að stökkva út um glugga. Hún lést skömmu síðar. Þau sem lét­ust voru Pól­verjar og á aldr­inum 21-24 ára.

[links]Kjarninn fjall­aði nýverið ítar­lega um brun­ann á Bræðra­borg­ar­stíg í fjölda greina. Þar kom m.a. fram að fjórtán íbúar voru heima er eld­ur­inn kom upp. Heims­far­aldur kór­ónu­veirunnar hafði sitt að segja um þann fjölda. Að minnsta kosti fjórir höfðu misst vinn­una og tveir voru heima í fjar­námi þar sem stað­nám hafði tíma­bundið verið lagt til hliðar. Aðrir voru í vakta­vinnu; höfðu ýmist lokið morg­un­vakt eða voru í vakta­fríi.

Tveir karl­menn sem einnig voru inn­lyksa á ris­hæð­inni en komust lífs af sögðu sögu sína í við­tölum við Kjarnann. Öðrum þeirra var bjargað út um glugga á síð­ustu stundu en hinn stökk út um glugga her­bergis síns. Hann slas­að­ist alvar­lega en er á bata­vegi. Þeir sem og fleiri eft­ir­lif­endur sem Kjarninn ræddi við glíma við sál­ræn eft­ir­köst elds­voð­ans.

Maður sem var í her­bergi sínu á annarri hæð húss­ins er eld­ur­inn kvikn­aði hlaut alvar­leg bruna­sár á stórum hluta lík­am­ans og hefur geng­ist undir húð­á­græðslur og fleiri aðgerðir síðan.

Rústirnar standa enn

Bruna­rúst­irnar standa enn á horni Bræðra­borg­ar­stígs og Vest­ur­götu. Bygg­ing­ar­full­trúi Reykja­víkur sendi eig­and­anum bréf í lok októ­ber þar sem honum var gert að sækja um nið­ur­rif og fjar­lægja það sem eftir stæði af hús­inu innan þrjá­tíu daga. Var honum gef­inn fimmtán daga frestur til að gera athuga­semd við ákvörð­un­ina.

Hún barst bygg­ing­ar­full­trúa um miðjan nóv­em­ber. Í henni kemur fram að eig­and­inn vilji ekki að húsið verði rifið strax. Það sé sönn­un­ar­gagn í vátrygg­inga­máli sem geti dreg­ist í marga mán­uði, jafn­vel ár. Ákveði yfir­völd engu að síður að rífa það verði farið í mál og þau krafin bóta. Lög­fræð­ingur bygg­ing­ar­full­trúa er enn að fara yfir málið og ákvörðun um næstu skref verður tekin í fram­hald­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bræðraborgarstígur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár