Eftirlitsaðilar fái heimildir til að skoða leiguhúsnæði

„Það sem maður situr svo­lítið eftir með í kjöl­far brun­ans á Bræðra­borg­ar­stíg er að þar sem um íbúð­ar­hús­næði var að ræða er ábyrgðin [á eld­vörnum] sam­kvæmt lögum og reglu­gerðum fyrst og fremst eig­and­ans,“ segir Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur.
Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri Reykja­víkur. Mynd: Bára Huld Beck

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri Reykja­víkur segir að end­ur­skoða þurfi lagaum­hverfi leigu­mark­að­ar­ins hér á landi. Miklar breyt­ingar hafi verið gerðar á lög­gjöf um skamm­tíma­leigu, s.s. Airbnb, en tryggja þurfi öryggi leigj­enda sem leigja hús­næði til lengri tíma. Það sé m.a. hægt að gera með því að auka heim­ildir eft­ir­lits­að­ila til að skoða leigu­hús­næði með til­liti til eld­varna og ann­ars aðbún­aðar.

Dagur, sem einnig er stjórn­ar­for­maður slökkvi­liðs höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, segir að átak hafi verið gert í eld­varna­eft­ir­liti í atvinnu­hús­næði þar sem vitað er að fólk býr. Heim­ildir slökkvi­liðs til slíks eft­ir­lits og þving­unar­úr­ræða ef úrbætur eru ekki gerðar, eru skýrar í lögum.

[links] „En það sem maður situr svo­lítið eftir með í kjöl­far brun­ans á Bræðra­borg­ar­stíg, þar sem margt svip­aði til þeirra aðstæðna sem er að finna í óleyf­is­hús­næði og búsetu í atvinnu­hús­næði, er að þar sem um íbúð­ar­hús­næði var að ræða er ábyrgðin sam­kvæmt lögum og reglu­gerðum fyrst og fremst eig­and­ans,“ segir Dagur í ítar­legu við­tali við Kjarnann um elds­voð­ann og það sem hann afhjúpaði í aðstæðum erlends verka­fólks hér á landi. „Lög­gjaf­inn nán­ast ætl­ast ekki til aðkomu eld­varna­eft­ir­lits og slökkvi­liðs þegar íbúð­ar­hús­næði er ann­ars vegar nema þegar sótt er um að gera breyt­ingar á eldra hús­næði.“

Eft­ir­lits­að­ilar séu algjör­lega háðir sam­starfi við eig­endur íbúð­ar­húsa, jafn­vel þótt að þar fari fram umfangs­mikil leigu­starf­semi og að eig­and­inn búi ein­hvers staðar allt ann­ars staðar eins og raunin var á Bræðra­borg­ar­stíg 1.

[adspot]

Dagur segir að í húsa­leigu­lögum sé nán­ast gert ráð fyrir því að fólk leigi frá sér eitt her­bergi í íbúð­inni sinni eða eina hæð í hús­inu sínu og að eig­and­inn búi sjálfur á staðnum. „Það má segja að ekki sé gert ráð fyrir því að ein­hver stundi þá atvinnu­starf­semi að leigja út til mjög margra í lang­tíma­leigu eða að koma hópi fólks fyrir í íbúð­ar­hús­næði, til dæmis erlendum verka­mönnum, án þess að eig­and­inn búi þar sjálfur.“

Á Bræðra­borg­ar­stíg 1 bjó fjöldi erlendra verka­manna sem hver leigði sitt her­bergi. Í ítar­legri úttekt Kjarnans á elds­voð­anum kom fram að eld­vörnum í hús­inu, sem eru á ábyrgð eig­anda, var ábóta­vant.

Leigjendur geti kallað eftir eldvarnaskoðun

Að mati borg­ar­stjóra hljóta sömu sjón­ar­mið að mörgu leyti að eiga við um skamm­tíma- og lang­tímagist­ingu, sér­stak­lega ef um útleigu á íbúð­ar­hús­næði er að ræða þar sem eig­and­inn býr ekki sjálfur. „Mér finnst mjög brýnt, að þegar nið­ur­staða rann­sóknar Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar á brun­anum á Bræðra­borg­ar­stíg liggur fyrir, hafi sú stofnun for­ystu í því að fara yfir þetta reglu­verk með það að meg­in­mark­miði að tryggja öryggi leigj­enda,“ segir Dagur. „Ég vil að þú eigir að geta treyst því þegar þú tekur her­bergi eða íbúð á lang­tíma­leigu að þar sé búið að huga að eld­vörnum og öryggi, eða þú eigir að geta með auð­veldum hætti kallað eftir eld­varn­ar­skoðun, á kostnað leigu­sala, þér að kostn­að­ar­lausu.“

Þessi staða, bæði þeirra sem leigja í íbúð­ar­hús­næði og í óleyf­is­hús­næði, hefur þró­ast mjög hratt á und­an­förnum árum. „Þetta til­tekna mál, brun­inn á Bræðra­borg­ar­stíg, sýnir að lög­gjöfin og reglu­verkið hefur ekki náð að taka utan um þennan veru­leika. Athyglin hefur verið á atvinnu­hús­næð­inu og óleyf­is­bú­setu þar en síður á íbúð­ar­hús­næði og það er eitt af því sem þetta mál verður að vekja alla til umhugs­unar um.“

Um sjö­tíu manns voru skráðir til heim­ilis að Bræðra­borg­ar­stíg 1 er brun­inn varð. Þessi ranga lög­heim­il­is­skrán­ing flækti m.a. við­brögð vel­ferð­ar­þjón­ust­unnar við eft­ir­lif­endur brun­ans. Ekki tókst að hafa uppi á öllum sem raun­veru­lega bjuggu í hús­inu.

Í fram­haldi af fundi sem borg­ar­stjóri boð­aði full­trúa slökkvi­liðs, bygg­inga­full­trúa, heil­brigð­is­eft­ir­lits og fleiri á í haust var ákveðið að beina erindum til eig­enda húsa í borg­inni þar sem annað hvort margir voru skráðir til heim­ilis eða borist hafa margar ábend­ingar um Í þessum erindum var óskað eftir sam­vinnu við eig­endur, meðal ann­ars um að fá að fara í eft­ir­lits­ferðir. „Við viljum láta á sam­vinnu við eig­endur reyna og auð­vitað standa vonir okkar til þess að þessir eig­endur séu búnir að átta sig á því eld­varn­ar­eft­ir­lit getur leið­beint og bent á mjög mik­il­væga hluti. En þetta er líka hluti af ákveð­inni gagna­öflun hjá okkur til að eiga í fram­hald­inu sam­tal við lög­gjafann. Ef það kemur nú í ljós í ein­hverjum til­teknum til­vikum að ekki fæst sam­vinna, sem er ekki full­reynt á þess­ari stundu, verður auð­vitað sú spurn­ing áleitn­ari hvað eigi þá til bragðs að taka.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bræðraborgarstígur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár