Einn reykskynjari en án rafhlöðu fannst í rústum hússins

Við rann­sókn Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar á bruna­rúst­unum að Bræðra­borg­ar­stíg fannst einn reyk­skynj­ari. Engin björg­un­arop voru á ris­hæð líkt og áttu að vera sam­kvæmt teikn­ingu. „Björg­un­arop hefðu mögu­lega getað bjargað manns­lífum í þessu til­felli.“

Karlmaður hangir út um glugga á rishæðinni. Hann stökk út þar sem reykur hafði fyllt herbergi hans.
Karl­maður hangir út um glugga á ris­hæð­inni. Hann stökk út þar sem reykur hafði fyllt her­bergi hans. Mynd: Úr skýrslu HMS

Þegar elds­voð­inn varð á Bræðra­borg­ar­stíg 1 í sumar var her­bergja­skipan í hús­inu allt önnur en á þeim teikn­ingum sem bygg­inga­full­trúi Reykja­víkur sam­þykkti án athuga­semda árið 2000. Í atvinnu­hús­næði á jarð­hæð­inni var búið að útbúa her­bergi óleyfi og í stað tveggja íbúða á efri hæð­unum tveimur höfðu ýmsar breyt­ingar verið gerðar til að leigja út fleiri her­bergi en voru á teikn­ing­unum. Loka­út­tekt bygg­ing­ar­full­trúa vegna þess­ara breyt­inga um alda­mótin náði aðeins til fyrstu hæðar húss­ins. Efri hæðir þess voru ekki skoð­aðar. Þá var ekki kallað eftir sér­stakri bruna­hönnun eins og hefði átt að gera en slíkt hefði að öllum lík­indum leitt til breyt­inga á fyr­ir­komu­lagi á annarri hæð og ris­hæð húss­ins.

Við ítar­lega rann­sókn Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) á elds­voð­anum sem varð í júní kom fjöl­margt athuga­vert í ljós og ein helsta nið­ur­staðan er sú að bruna­vörnum hafi verið veru­lega ábóta­vant og þær ekki í sam­ræmi við lög. Bruna­varnir eru á ábyrgð eig­anda húss­ins og eiga að vera í sam­ræmi við þá notkun sem í því er.

[adspot]

Engin björg­un­arop voru til staðar líkt og fram hafði komið á teikn­ingum og þá var hús­næð­inu nær ekk­ert skipt niður í bruna­hólf sem tak­marka útbreiðslu elds milli rýma. HMS segir óvíst að þær bruna­varnir sem sýndar eru á nýj­ustu sam­þykktu teikn­ingum af hús­næð­inu hafi yfir höfuð nokkurn tím­ann verið til staðar.

[links]Þrír lét­ust í elds­voð­anum og tveir slös­uð­ust alvar­lega. Yfir 20 manns bjuggu í hús­inu í fjöl­mörgum her­bergjum sem þar voru leigð út, aðal­lega til erlendra verka­manna. Hópur fólks varð hús­næð­is­laus í kjöl­far elds­voð­ans og þar sem lög­heim­il­is­skrán­ing var í engum takti við raun­veru­lega búsetu í hús­inu náð­ist ekki að hafa uppi á þeim öllum til að bjóða þá aðstoð sem þeir eiga rétt á. Þá undrað­ist einn eft­ir­lif­enda í við­tali við Kjarnann hversu lítil aðstoðin var og sagði hana hafa verið til­vilj­ana­kennda. Fólkið hafði margt hvert tak­markað tengsla­net hér á landi og vissi ekki hvert það ætti að leita.

HMS telur að um íkveikju hafi verið að ræða en að margir aðrir þættir hefðu svo orðið til þess að elds­voð­inn varð jafn mann­skæður og raun bar vitni.

Brunahólfun aldrei uppfærð

Síðustu sam­þykktu teikn­ingar af hús­inu á horni Bræðra­borg­ar­stígs og Vest­ur­götu eru frá árinu 2000 er versl­un­ar­rými á jarð­hæð var breytt í leik­skóla. Húsið var þá skil­greint sem nokkur bruna­hólf sam­kvæmt sam­þykktum teikn­ingum en það virð­ist sem bruna­hólfun á milli hæða hafi aldrei verið upp­færð til sam­ræmis við bygg­ing­ar­reglu­gerð, að minnsta kosti ekki milli 2. hæðar og ris­hæðar, segir í rann­sókn­ar­skýrslu HMS sem kom út á föstu­dag, tæp­lega hálfu ári eftir að elds­voð­inn varð.

Þegar talað er um bruna­hólf er átt við: Lokað rými í bygg­ingu sem er aðskilið frá öðrum rýmum með bruna­hólfandi bygg­ing­ar­ein­ingum sem hafa við­un­andi bruna­mót­stöðu í til­skil­inn tíma og varna því að eldur, hiti og reykur breið­ist út frá rým­inu eða til þess frá öðrum nær­liggj­andi rýmum. Ekki liggur fyrir hvernig skipu­lagið var á 2. og ris­hæð eftir að teikn­ing­arnar voru sam­þykktar þar sem engin loka­út­tekt fór fram á þessum hæðum.

Engin rafhlaða til staðar

Skoðun á staðnum eftir brun­ann sýndi að bruna­við­vör­un­ar­kerfi var á 1. hæð húss­ins en upp­lýs­ingar um virkni þess liggja ekki fyrir. Á 2. hæð fannst einn reyk­skynj­ari á gangi þó HMS segi ekki hægt að úti­loka að fleiri skynjarar hafi verið í hús­inu. „Engin raf­hlaða var til staðar,“ segir um þennan eina reyk­skynjara sem fannst.

Fólk sem flúði brenn­andi húsið varð ekki vart við hljóð frá reyk­skynj­urum líkt og fram kom í við­tölum við eft­ir­lif­endur í greina­flokki Kjarnans um brun­ann á Bræðra­borg­ar­stíg. Tveir karl­menn sem bjuggu í ris­inu átt­uðu sig ekki á því að kviknað væri í fyrr en þeir heyrðu hróp nágranna sinna utan af gangi.

Engin slökkvitæki

Þá fund­ust engin hand­slökkvi­tæki við skoðun HMS á 2. hæð, þeirri hæð þar sem eld­ur­inn kom upp. Bruna­hólfun að stiga­húsi sem sýnd er á nýj­ustu sam­þykktu teikn­ingum var heldur ekki til staðar, hvorki bruna­hólfandi veggir né bruna­hólfandi hurðir. Þar að auki var ekki annar inn­gangur upp á 2. hæð eins og sýnt var á teikn­ingu frá 2000 heldur búið að koma þar upp bað­her­bergi. Þá þykir HMS það sér­kenni­legt að á sam­þykktri teikn­ingu af 1. hæð frá árinu 2000 hafi bíslag verið merkt sem geymsla en á sömu teikn­ingu sem upp­ganga í íbúð­ina á efri hæð. HMS segir ekki hægt að segja til um hvort að þær bruna­varnir sem sýndar eru á sam­þykktum teikn­ingum hafi nokkurn tím­ann verið til staðar. „Það er hins vegar hægt að full­yrða að bíslagið hefur verið inn­gangur á 2. hæð­ina á ein­hverjum tíma­punkti og því hefur verið lokað með nei­kvæðum afleið­ingum, þar sem flótta­leið frá hæð­inni var nú aðeins ein í stað tveggja,“ segir í skýrslu HMS.

Engin björgunarop

Enn­fremur sýna sam­þykktar teikn­ingar björg­un­arop á her­bergjum og á nokkrum stöðum. Í flestum til­fellum voru hins vegar ekki nein björg­un­arop til staðar, ein­ungis lítil opn­an­leg fög í gluggum. „Það eitt og sér hafði mjög nei­kvæð áhrif óháð því að ekki hafi verið felli­stigar, svalir eða annar bún­aður til björg­unar,“ segir í rann­sókn­ar­skýrsl­unni. „Björg­un­arop hefðu mögu­lega getað bjargað manns­lífum í þessu til­felli.“

Á 1. hæð þar sem áður var atvinnu­starf­semi (leik­skóli) var búið að koma fyrir her­bergjum til útleigu og því um óleyf­is­bú­setu að ræða þar sem ekki var til staðar leyfi til að breyta atvinnu­hús­næði í íbúð­ar­hús­næði eða gisti­heim­ili.

Ekkert eftirlit

Samkvæmt ákvæðum laga um bruna­varnir er það hlut­verk slökkvi­liða að hafa eft­ir­lit með því að fram­fylgt sé ákvæðum laga og reglna um bruna­varnir. Ekki er áskilið í lögum að fram­kvæma eld­varn­ar­eft­ir­lit í íbúð­ar­hús­næði og því átti Slökkvi­lið höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins ein­ungis að sinna eld­varna­eft­ir­liti á 1. hæð húss­ins þar sem skil­greind var atvinnu­starf­semi. Slík skoðun var hins vegar aldrei gerð en að því er fram kemur í skýrslu HMS reyndu eld­varna­eft­ir­lits­menn í þrí­gang að fram­kvæma eft­ir­lit en komu alltaf að læstum dyrum.

Íbúar í nágrenni Bræðra­borg­ar­stígs 1 höfðu oft kvartað undan ástandi þess og umgengni við það við borg­ar­yf­ir­völd í gegnum árin. Þeir höfðu m.a. vakið athygli á því að þeir teldu hús­inu hafa verið breytt í gisti­heim­ili í óleyfi og bentu á að þar byggi hópur erlendra verka­manna. Þó að sumum kvört­unum nágranna hafi verið fylgt eftir á síð­ustu árum, m.a. vegna umgengni á lóð­inni, var ekk­ert aðhafst hvað varðar ábend­ingar um mögu­lega breytta notkun húss­ins.

Reyndist vera brunagildra

„Það er óásætt­an­legt fyrir okkar sam­fé­lag að aðstæður íbúa húss­ins skuli hafa verið þeim hætti sem lýst er í skýrsl­unni,“ segir Hermann Jónasson, for­stjóri Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar. Hann segir bruna­varnir á Bræðra­borg­ar­stíg 1 ekki hafa verið í sam­ræmi við lög. Erlent verka­fólk er hópur sem lengi hafi verið vitað að væri í einna verstu stöð­unni á hús­næð­is­mark­aði á Íslandi. „Þessi skýrsla þarf að verða upp­haf­s­punktur úrbóta og til þess þurfa margir ólíkir aðilar að koma að borð­inu. [...] Nú liggur þessi skýrsla fyrir og birtir okkur veru­leika fólks sem býr í ósam­þykktu leigu­hús­næði en sem reyn­ist svo vera bruna­gildra. Við skuldum bæði þeim sem lét­ust og þeim sem búa í óvið­un­andi hús­næði í dag að bregð­ast við.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bræðraborgarstígur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár