Hefði verið gott að „átta sig fyrr á því að þessi bruni væri öðruvísi en aðrir“

Dagur B. Egg­erts­son segir að borg­ar­yf­ir­völd verði að taka til sín þá gagn­rýni sem eft­ir­lif­endur brun­ans á Bræðra­borg­ar­stíg hafa sett fram á þann stuðn­ing og aðstoð sem þeir fengu.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur.
Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri Reykja­víkur. Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Það er auð­vitað góð spurn­ing,“ svarar Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri spurður um hvort nóg hafi verið að gert í við­brögðum borg­ar­innar gagn­vart eft­ir­lif­endum brun­ans á Bræðra­borg­ar­stíg. Í úttekt Kjarnans á elds­voð­anum kom fram að sumum þeirra sem lifðu af hafi þótt við­brögðin til­vilj­ana­kennd og þeir upp­lifað von­brigði með að fá ekki meiri aðstoð og stuðn­ing. Flestir sem bjuggu í hús­inu sem brann voru útlend­ingar sem margir hverjir áttu lítið stuðn­ings­net hér á landi.

„Rauði kross­inn veitir fyrstu hjálp og hefur verið í frá­bæru sam­starfi við slökkvi­liðið í mörgum brunum árum saman,“ segir borg­ar­stjóri m.a. í við­tali við Kjarnann um elds­voð­ann. „Þeir hafa þó allir verið minni og ekki eins afdrifa­ríkir. Það sem ger­ist yfir­leitt í elds­voðum á Íslandi er að eftir fyrstu hjálp í sól­ar­hring eða tvo er fólk gripið af sínu félags­lega neti í sam­fé­lag­inu. En í þessu til­viki var því ekki til að dreifa. Þannig að Þjón­ustu­mið­stöð mið­borgar steig inn á virk­ari hátt en í öðrum brunum og veitti meiri aðstoð, til dæmis hús­næð­is­stuðn­ing í tvær vikur, og reyndi að kom­ast í sam­band við alla. Það hefði verið mjög gott að gera það strax í upp­hafi og átta sig fyrr á því að þessi bruni væri öðru­vísi en aðrir. En ég fann mjög sterkt fyrir því að þjón­ustu­mið­stöðin var að reyna að gera sitt allra besta.“

[adspot]

Dagur hefur hins vegar átt fund með eft­ir­lif­endum úr brun­anum sem fannst þetta ekki við­brögðin ekki nógu skipu­lögð og hefðu viljað finna fyrir þétt­ari stuðn­ingi og meira sam­tali strax frá upp­hafi. „Og það er eitt­hvað sem við verðum að taka til okkar. Við verðum að tryggja að aðstæður séu metnar hverju sinni og koma inn með þann stuðn­ing sem þarf að teknu til­liti til aðstæðna þeirra sem í hlut eiga.“

Þjón­ustu­mið­stöðin bauð þeim íbúum húss­ins sem hún náði í gist­ingu á gisti­heim­ili í tvær vikur eða and­virði slíkrar gist­ingar. Þá var einnig veitt neyð­ar­að­stoð varð­andi lyfja­kaup og aðrar nauð­synjar. Sú upp­hæð nam um 20 þús­und krónum. Í úttekt Kjarnans er m.a. gagn­rýnt að þjón­usta borg­ar­innar hafi ekki tekið við um leið og neyð­ar­að­stoð Rauða kross­ins sleppti. Töldu við­mæl­endur Kjarnans það m.a. helg­ast af því að brun­inn varð á fimmtu­degi og þjón­ustu­mið­stöðin lokuð um helgar. Þá er ljóst að starfs­menn þjón­ustu­mið­stöðv­ar­innar náðu ekki í alla sem bjuggu í hús­inu, m.a. vegna þess að lög­heim­il­is­skrán­ing í því var mjög vill­andi. 

[links]„Það sem við verðum líka að hafa í huga,“ segir borg­ar­stjóri, „er að flestir sem bjuggu á Bræðra­borg­ar­stíg 1 voru vinn­andi fólk sem er ekki vant því að leita sér aðstoðar eða stuðn­ings frá hinu opin­bera og vita jafn­vel ekki hvert það á að snúa sér. Eitthvað sem við gerum kannski of mikið ráð fyrir að allir viti í íslensku sam­fé­lagi. Þá þurfum við að vera fljót á vett­vang og kynna okkar stuðn­ings­kerfi.“

Spurður hvort að hann telji ástæðu til að fara yfir við­brögð borg­ar­innar gagn­vart eft­ir­lif­endum og jafn­vel veita þeim ein­hverja frek­ari aðstoð segir Dagur að það hafi einmitt verið ákveðið að gera á fundi ýmissa við­bragðs­að­ila í haust sem hald­inn var í kjöl­far fundar hans með einum eft­ir­lif­enda. „Þjón­ustu­mið­stöð mið­borgar fór strax í það mál. Við erum með­vituð um það að sumt fólkið þarf aðstoð. Sumt hefur fengið stuðn­ing frá sínum stétt­ar­fé­lögum sem ég er mjög ánægður með. Annað, eins og sál­fræði­þjón­ustu, er hægt að sækja í gegnum heilsu­gæsl­una. Það sem ég held að við verðum að velta fyrir okkur er hvernig við tryggjum að við atburði sem þessa þá komum við mark­visst upp­lýs­ingum til fólks sem ekki er vant að þurfa á þjón­ustu að halda. Við sem sam­fé­lag þurfum í mínum huga að passa upp á að fólk sem á ekki stuðn­ings­net hér eða þekkir ekki hefð­bundnar leiðir eða sinn rétt á auknum stuðn­ingi fái upp­lýs­ingar um hann.“

Hér má nálg­ast við­talið við borg­ar­stjór­ann í heild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bræðraborgarstígur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár