Beið í yfir þrettán mínútur eftir björgun úr eldhafinu

Miklar annir í sjúkra­flutn­ingum hjá slökkvi­liði höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins urðu til þess að tæpar 12 mín­útur liðu frá því að til­kynn­ing um elds­voða á Bræðra­borg­ar­stíg barst og þar til vett­vang­ur­inn var full­mann­aður með 5 slökkvi­liðs­mönnum og tveimur dælu­bílum.

Þegar útkall vegna elds í húsi á Bræðra­borg­ar­stíg barst Neyð­ar­línu síð­degis þann 25. júní lá strax fyrir að fólk væri í neyð í hús­inu og kæm­ist ekki út af sjálfs­dáðum. Tiltækir slökkvi­liðs­menn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu voru sam­tals ell­efu en á sama tíma voru tvö alvar­leg for­gangsút­köll sjúkra­bíla í gangi sem kröfð­ust mik­ils mann­afla auk ann­arra minni verk­efna. Þetta varð til þess að þó að fyrstu við­bragðs­að­ilar hefðu verið fljótir á vett­vang var hann ekki full­mann­aður fyrr en tæpum tólf mín­útum eftir útkallið.

Þegar brun­inn átti sér stað voru sex mann­eskjur á efstu hæð húss­ins. Þrjár þeirra lét­ust í brun­anum. Ein kona, 26 ára, lést vegna höf­uð­á­verka við fall úr glugga á ris­hæð. Einn karl­maður, 25 ára og ein kona, 22 ára lét­ust úr reyk­eitrun.

„Ákjós­an­leg­ast hefði verið ef vett­vang­ur­inn hefði verið full mann­aður innan 10 mín­útna frá boðun slökkvi­liðs,“ segir í nýút­kominni skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar um rann­sókn á brun­anum. Vegna fyrr­greinds álags höfðu slökkvi­liðs­menn verið teknir af slökkvi­vakt til að sinna útköllum á sjúkra­bílum. Slíkt er heim­ilt sam­kvæmt bruna­á­ætlun og aðstæður sem þessar koma aðeins upp stöku sinnum, segir í skýrslu HMS. Það skýrir hversu langur tími leið þar til að síð­asta mann­inum var bjargað af ris­hæð húss­ins, rúmum 13 mín­útum frá því að hringt var í Neyð­ar­línu.

Þessi maður var Vasile Tibor Andor. Rúmeni sem búið hefur á Íslandi í mörg ár og hafði líkt og aðrir leigt eitt af her­bergjum húss­ins að Bræðra­borg­ar­stíg 1. Hann hafði verið á morg­un­vakt á veit­inga­stað á Lauga­vegi sem hann vinnur á og komið heim á Bræðra­borg­ar­stíg um klukkan 15. Hann var inni í her­bergi sínu á ris­hæð­inni er hann heyrði hróp fram af gangi og í kjöl­farið brot­hljóð. Hann opn­aði fram, heyrði að nágranni hans var í neyð, og þá mætti honum þykkt reyk­ský. Hann sá eld. Og nágranna­konu sína falla í gólfið, hreyf­ing­ar­lausa. Hann náði ekki til hennar. „Þetta gerð­ist allt svo hratt,“ sagði hann í við­tali við Kjarnann í nóv­em­ber. „Ég hugsa stundum hvort að ég hefði getað leikið ofur­hetju en ég veit innst inni að ég hefði ekki getað bjargað neinum. Það var of seint.“

Elds­voð­inn að Bræðra­borg­ar­stíg var mjög flókið verk­efni og afar krefj­andi fyrir við­bragðs­að­ila í alla staði, segir í skýrslu HMS sem hefur m.a. það hlut­verk að rann­saka starf slökkvi­liðs á vett­vangi þar sem mann­tjón verður. „Sá mikli hraði sem var á eldút­breiðsl­unni og sú stað­reynd að fólk var fast inni í hús­inu gerði slökkvi­lið­inu erfitt fyrir. Þá voru á vett­vangi lífs­hættu­lega slasað fólk, slasað fólk og margir sjón­ar­vottar í miklu upp­námi,“ stendur enn­fremur í skýrsl­unni.

Klukkan 15:15:44 barst fyrsta sím­talið Neyð­ar­lín­unni þar sem til­kynnt var um elds­voð­ann. Sjúkra­bíll sem staddur var við Landakot var fyrstur á stað­inn rúm­lega þremur mín­útum eftir að sím­talið barst. Sjúkra­flutn­inga­menn­irnir á honum voru mennt­aðir sem slökkvi­liðs­menn og fóru í að sinna slös­uðum á vett­vangi. En hvorki sjúkra­flutn­inga­menn né lög­reglu­menn sem einnig voru komnir á stað­inn gátu sinnt störfum slökkvi­liðs­manna þar sem slík störf krefj­ast við­eig­andi hlífð­ar­fatn­aðar, tækja­bún­aðar, mennt­unar og reynslu.

Það liðu 6 mín­útur og 10 sek­úndur frá fyrstu til­kynn­ingu um eld­inn þar til fyrsti dælu­bíll­inn kom á vett­vang en 11 mín­útur og 50 sek­úndur þar til annar dælu­bíll kom og vett­vang­ur­inn þar með full mann­aður.

Afar ólíklegt að hægt hefði verið að bjarga þeim sem létust

Það er mat HMS að slökkvi­starfið hafi gengið vel upp frá því og að þær „hörmu­legu afleið­ingar elds­voð­ans, að þrír ein­stak­lingar lét­ust, dæm­ist á húsið, mögu­lega íkveikju og skipu­lag og ástand húss­ins.“

HMS telur „afar ólík­legt“ að hægt hefði verið að bjarga þeim sem lét­ust í elds­voð­anum. „Þannig hefði engu breytt þó svo að tveir eða fleiri full mann­aðir dælu­bílar hefðu komið á vett­vang 7 mín­útum eftir að sím­tal til Neyð­ar­línu barst. Það hefði að öllum lík­indum verið of seint í þessu til­felli.“

Tibor kominn á sjúkrabörur fyrir utan húsið. Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri, (t.v. á mynd) mætti á vettvang og stjórnaði aðgerðum.
Tibor kom­inn á sjúkra­börur fyrir utan húsið. Jón Viðar Matth­í­as­son slökkvi­liðs­stjóri, (t.v. á mynd) mætti á vett­vang og stjórn­aði aðgerðum.

„Það virðist sem kraftar hans hafi þrotið“

Það sem vó þyngst og gerði slökkvi­starf­inu erfitt fyrir, var húsið sjálft og hvernig það var byggt, segir í rann­sókn­ar­skýrsl­unni. Húsið á Bræðra­borg­ar­stíg var timb­ur­hús með litla sem enga bruna­hólfun sem gerði það m.a. að verkum að ekki var hægt að stunda slökkvi­starf inn­an­húss.

Í skýrsl­unni er vakin athygli á því að þar sem of fáir slökkvi­liðs­menn voru á staðnum í upp­hafi þurfti varð­stjóri að fara sjálfur inn í brenn­andi húsið í reykköfun í stað þess að sinna stjórnun á vett­vangi. Þessu lýsti slökkvi­liðs­mað­ur­inn sem ók fyrsta dælu­bílnum á vett­vang ítar­lega í við­tali við Kjarnann í nóv­em­ber. „Þegar við komum að hús­inu þá er einn íbú­inn nýbú­inn að stökkva út um glugga,“ sagði Valur Mart­eins­son, sem verið hefur í slökkvi­lið­inu í um þrjá ára­tugi. Varð­stjór­inn og annar félagi hans höfðu und­ir­búið sig fyrir reykköfun á leið á vett­vang og fóru þegar í stað inn í húsið og upp á aðra hæð­ina þar sem eld­ur­inn var mestur. „Það log­aði út um glugga á fram­hlið­inni. Og við sáum fólk í glugg­unum,“ lýsir Valur. Félagar hans reyndu að kom­ast til fólks­ins á þriðju hæð­inni en stig­inn þangað upp var þá þegar orð­inn alelda að sögn Vals.

Í rann­sókn­ar­skýrslu HMS segir um þetta að svo virð­ist sem flótta­leiðin um stiga­húsið milli hæð­anna hafi verið orðin teppt allt frá því að fyrsti sjúkra­bíll kom á vett­vang og því var líf­björgun ein­ungis mögu­leg um glugga á ris­hæð­inni.

Sjón­ar­vottar urðu varir við fólk í fjórum aðskildum her­bergjum í ris­inu. Þannig var vart við fólk í kvisther­bergi sem snýr út að Bræðra­borg­ar­stíg, eins í suð­ur­glugga sem snéri út í portið og að lokum í norð­ur­gluggum tveggja aðskildra her­bergja sem snúa út að Vest­ur­götu. Í öðru þeirra var Tibor. 

Myndir af vett­vangi sem HMS afl­aði við rann­sókn sýna gefa til kynna að þrjú þess­ara her­bergja hafi verið orðin reyk­fyllt að miklu leyti. „Þó svo að reyk­þétt­leiki her­bergj­anna hafi verið lít­ill má gera ráð fyrir því að fólkið hafi opnað fram á gang og reynt að yfir­gefa her­bergi sín með þeim afleið­ingum að þau fyllt­ust skjótt og fólkið hafi hörfað til baka.“

Kona í ris­her­bergi sem vís­aði í suður tróð sér út um lítið opn­an­legt fag í glugg­anum og stökk niður „með þeim afleið­ingum að hún lét lífið eftir fallið,“ segir í skýrslu HMS. „Maðurinn sem var með henni í her­berg­inu náði ekki að brjóta glugg­ann, en það virð­ist sem kraftar hans hafi þrotið og hann logn­ast út af sökum reyks í rým­inu.“

Þessi maður var unnusti kon­unnar sem stökk. Þau voru bæði á þrí­tugs­aldri.

Önnur ung kona var í kvisther­berg­inu sem snéri út að Bræðra­borg­ar­stíg og lýstu sjón­ar­vottar því að hún hafi gert vart við sig á þessum fyrstu mín­útum brun­ans með því að veifa í glugg­anum. En það voru engin ummerki um lífs­mark eftir að dælu­bíll kom á stað­inn. Konan fannst látin í rúst­unum.

Líkt og fram kom í frétta­skýr­ingu sem Kjarninn birti í gær voru björg­un­arop ekki til staðar á ris­hæð­inni líkt og reglur segja til og líkt og sýnd höfðu verið á sam­þykktum teikn­ingum af hús­næð­inu. Björg­un­arop getur t.d. verið opn­an­legur gluggi sem mann­eskja á auð­velt með að kom­ast út um. Aðeins ein flótta­leið var af ris­hæð­inni; stig­inn sem stóð í ljósum logum.

Tvö her­bergi norð­an­megin á ris­hæð voru lengra frá elds­upp­tök­unum. HMS segir að gera megi ráð fyrir að þar hafi aðstæður verið betri enda lifðu tveir karl­menn sem þar voru elds­voð­ann af. Annar þeirra stökk út. Hann sagði í við­tali við Kjarnann í nóv­em­ber að reykur hafi komið inn í her­bergi hans úr öllum áttum; út úr veggjum, upp um gólf og með­fram hurð­inni. Tibor, vinur hans sem bjó í næsta her­bergi, hafði talað við hann í gegnum þunnan vegg­inn og ráð­lagt honum að bíða. Slökkvi­liðið væri á leið­inni. „En ég gat ekki beðið. Ég vissi að ég myndi bráð­lega missa með­vit­und ef ég kæm­ist ekki út. Sá mögu­leiki að bíða í ein­hvern tíma var ekki í boði á þessum tíma­punkti“.

Hin her­bergin tvö á hæð­inni þar sem fólk lést „hafa að öllum lík­indum fengið reyk­streymi upp í gegnum gólfið þar sem eldur var log­andi undir þessum her­bergjum og gólfið langt frá því að vera reyk­þétt,“ segir í skýrslu HMS. „Það er nán­ast hægt að full­yrða að fólkið sem lést í þessum bruna hafi verið látið þegar slökkvi­lið kom á stað­inn. Dælubíll og til­heyr­andi mann­skapur var þó kom­inn eftir aðeins um 7 mín­útur frá sím­tali til Neyð­ar­línu og á að giska tæp­lega 9 mín­útum frá því að eld­ur­inn kvikn­aði.“

Reykka­f­ar­arnir sem fóru upp á aðra hæð húss­ins um leið og þeir komu á vett­vang náðu að slá veru­lega a brun­ann og þekja veggi með froðu til að loka þeim. Þessi aðgerð tryggði að mati HMS að Tibor hafði lengri tíma til að bíða eftir björgun í her­bergi sínu á ris­hæð­inni. Í her­bergi sínu beið hann, með starfs­mann Neyð­ar­lín­unnar í sím­anum, í rúmar þrettán mín­útur frá því að fyrst var hringt í Neyð­ar­línu og til­kynnt um eld­inn og þar til honum var bjargað út um glugg­ann.

Slökkvi­liðið hafði að mati HMS stjórn á aðstæðum en lítið hefði mátt út af bregða til að eldur hefði komið út um glugga á gang­inum og þannig gert björgun Tibors erf­iða. „En biðin var aug­ljós­lega löng fyrir þann sem þarf að bíða svo lengi eftir björgun.“

Í rann­sókn­ar­skýrslu HMS segir að eftir að Tibor var bjargað hafi legið fyrir að fleira fólki yrði ekki bjargað úr hús­inu þar sem hita­stig var of hátt og eitr­aður reykur búinn að vera í rýmunum í nokkrar mín­útur. „Magn kolmónoxíðs í svona lítið loft­uðum bruna er jafnan það hátt að fólk lifir aðeins í nokkrar sek­úndur,“ segir um þetta í skýrsl­unni.

37 slökkviliðsmenn komu að björgunar- og slökkvistarfinu að Bræðraborgastíg.
37 slökkvi­liðs­menn komu að björg­unar- og slökkvi­starf­inu að Bræðra­borga­stíg.

Heild­ar­fjöldi þeirra sem komu að verk­efn­inu fyrir hönd Slökkvi­liðs höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins (SHS) voru 37 slökkvi­liðs­menn þar af 13 sem tóku þátt í reykköfun, 13 sem sinntu sjúkra­flutn­ingum og tveir stjórn­endur.

Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun vekur í skýrslu sinni athygli á því að álag vegna sjúkra­flutn­inga hjá SHS sé almennt mikið og því sé vert að skoða mögu­leika á efl­ingu mann­afla liðs­ins. Þetta þurfi að gera sam­hliða árlegri end­ur­skoðun á mann­afla­þörf í bruna­varna­á­ætlun SHS.

Í nóv­em­ber birti Kjarninn yfir fimmtán við­töl og frétta­skýr­ingar um brun­ann á Bræðra­borg­ar­stíg. Inn­gangs­grein að þeirri umfjöllun, með tenglum á aðrar greinar í greina­flokknum, má nálg­ast hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bræðraborgarstígur

Mest lesið undanfarið ár