Borgarstjórinn vísaði Eyþóri Arnalds af fundi í Höfða

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, bauð Eyþóri Arnalds á fund þingmanna með borgar­stjórn Reykja­víkur, þótt Eyþór væri ekki borgar­fulltrúi og ekki þingmaður. Dagur B. Eggertsson vísaði honum af fundinum.

Eyþór Arnalds
Eyþór Arnalds Oddviti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík mætti á fund í boði Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra. Mynd: Heiða Helgadóttir

Eyþóri Arnalds, oddvita Sjálfstæðis­flokksins fyrir komandi borgar­stjórnar­kosningar, var vísað af fundi í Höfða í gær. Sá sem vísaði honum af fundinum var Dagur B. Eggertsson, borgar­stjóri Reykja­víkur.

Samkvæmt frétt Frétta­blaðsins var Eyþór mættur á fund sem ætlaður var borgar­fulltrúum og þing­mönnum kjör­dæmisins. Borgar­stjórn Reykja­víkur hafði boðað til fundarins. Eyþór Arnalds er hvorki þingmaður né borgar­fulltrúi, en sem oddviti Sjálfstæðis­manna í Reykjavík verður hann væntanlega borgar­fulltrúi eftir kosningarnar í lok maí. Hann segir í samtali við Frétta­blaðið að Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, hafi sérstak­lega boðið sér með á fundinn.

„Guðlaugur Þór utan­ríkis­ráðherra biður mig að mæta með sér klukkan hálf þrjú að hitta borgar­stjórn. Ég er nýr oddviti í þeim flokki sem er stærstur og þigg það strax,“ segir Eyþór í samtali við Frétta­blaðið. „En þá bar svo við að Dagur vildi ekki þiggja þess aðstoð og sagði þetta ekki fram­bjóðenda­fund.“ Eyþór undrast að hann hafi ekki fengið að sitja fundinn. „Þetta er mjög óvenjulegt því alls staðar sem ég kem þá taka forstöðu­menn stofnana taka þeir vel á móti mér.“ 

Dagur B. Eggertsson, sem er núverandi borgar­stjóri, er oddviti Samfylkingarinnar í borginni. Borgar­stjórnar­kosningarnar verða haldnar 26. maí næst­komandi. Í samtali við Vísi.is sagði Dagur að Eyþór hafi mætt á fundinn fyrir „einhvers konar mistök“.

Vigdís Hauks­dóttir, oddviti Miðflokksins, sem er ekki heldur borgar­fulltrúi, hafi fengið boð frá þingmanni eða borgar­fulltrúa um að sitja fundinn. „Fram­bjóðendum var alls ekki boðið. Ég er viss um að Vigdís Hauks­dóttir hefði líka verið til í að koma. Það verður bara að halda sérfund fyrir þau. Við gerum það bara ef áhugi er fyrir hendi,“ segir Dagur við Vísi.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2018

FréttirKosningar 2018

Vildi ekki verða „húsþræll“ í vinstri- og miðju­samstarfi en myndaði atkvæða­blokk með Sjálfstæðis­flokknum

Sanna Magdalena Mörtu­dóttir, borgar­fulltrúi Sósíalista­flokksins, sætir harðri gagnrýni fyrir að hafa stillt sér upp með Sjálfstæðis­flokknum og Miðflokknum af praktískum ástæðum. „Framkvæmdar­stjóri borgar­stjórnar­flokks Sjálfstæðis­flokksins sendi fyrir hönd allrar stjórnar­andstöðunnar skipan okkar í nefndir,“ sagði Hildur Björns­dóttir, borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins, í dag.
ÚttektKosningar 2018

Laun íslenskra bæjar­stjóra hærri en í erlendum stór­borgum

Árslaun bæjar­stjóra Garða­bæjar og Kópavogs eru hærri en borgar­stjóra New York og London. Báðir bæjar­stjórar eru á hærri launum en forsætis­ráðherra. Laun bæjar­stjóra Kópavogs hækkuðu um tæp 58% á kjör­tímabilinu og laun bæjar­stjóra Reykja­nesbæjar um 36%. „Allt óréttlæti mun kalla á meiri óánægju,“ segir formaður stéttar­félagsins BSRB.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár