Kosið til þings í Danmörku 1. nóvember – Frederiksen vill mynda breiða ríkisstjórn

Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur til­kynnti á blaða­manna­fundi í morgun að þing­kosn­ingar yrðu haldnar í land­inu 1. nóv­em­ber, eða eftir tæpar fjórar vikur.

Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur og formaður Sósíaldemókrataflokksins.
Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur og for­maður Sós­í­alde­mókra­ta­flokks­ins. Mynd: EPA

Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur hefur boðað að þing­kosn­ingar í land­inu fari fram þriðju­dag­inn 1. nóv­em­ber, eða eftir tæpar fjórar vikur.

Þetta kunn­gjörði Frederik­sen á blaða­manna­fundi í morgun, en segja má að hún hafi verið þvinguð til þess að boða til kosn­inga fyrr en hún ef til vill hefði kosið.

Einn þeirra flokka sem styðja minni­hluta­stjórn Sós­í­alde­mókrata, Radikale Venstre, var nefni­lega búinn að gefa það út að ef ekki yrði boðað til kosn­inga fyrir morg­un­dag­inn myndi flokk­ur­inn velta stjórn­inni úr sessi.

Vill mynda ríkisstjórn yfir miðjuna

Frederik­sen sagði á blaða­manna­fund­inum, sam­kvæmt frétt danska rík­is­út­varps­ins DR, að flokkur hennar myndi fara til kosn­inga með það í huga að mynda breiða rík­is­stjórn, rík­is­stjórn yfir miðj­una á danska stjórn­mála­svið­inu og ekki eins flokks minni­hluta­stjórn eins og flokk­ur­inn situr í nú.

For­sæt­is­ráð­herr­ann sagði að þeir erf­iðu tímar sem nú væru uppi köll­uðu á aukna sam­vinnu. Nú væri tím­inn til þess að „prófa nýtt rík­is­stjórn­ar­form í Danmörku“.

Samkvæmt frétt DR var það að heyra á Frederik­sen að henni þætti þetta ekki ákjós­an­legur tími til þess að ganga til kosn­inga, en hún sagði að á sama tíma og alþjóð­legar krísur á sviði varn­ar­mála, orku­mála og efna­hags­mála væru við að etja væri „sér­kenni­legt“ að vera að hefja kosn­inga­bar­áttu.

Fylgi dreifist víða

Fjöldi flokka verður í fram­boði í kosn­ing­unum sem fyr­ir­hug­aðar eru. Sós­í­alde­mókratar eru langstærsti flokk­ur­inn sam­kvæmt nýlegum skoð­ana­könn­unum og eru að mæl­ast með hátt í 25 pró­senta fylgi í flestum skoð­ana­könn­unum upp á síðkastið.

Einungis tveir til þrír flokkar til við­bótar eru að mæl­ast með yfir tíu pró­senta fylgi í skoð­ana­könn­unum, en það eru hægri­flokk­ur­inn Venstre, sem mæld­ist með 11,9 pró­sent fylgi í síð­ustu könnun Gallup, og Íhalds­flokk­ur­inn sem mæld­ist með 12,3 pró­sent í sömu könnun.

Þá hafa Dan­merk­ur­demókratar, nýlega stofn­aður flokkur Inger Støjberg, verið að mæl­ast með um og yfir tíu pró­senta fylgi. Í nýj­ustu könnun Gallup var flokk­ur­inn með 9,8 pró­senta fylgi.

Í Danmörku þurfa flokkar ein­ungis að fá tvö pró­sent atkvæða á lands­vísu til þess að hljóta þing­menn kjörna.

Tíu flokkar mæl­ast yfir þeim þrös­k­uldi í nýj­ustu könnun Gallup, jafn­margir og eiga sæti á þingi í dag.

Sá ell­efti stærsti sam­kvæmt könnun Gallup, Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn, mælist með 1,9 pró­sent fylgi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár