Leita lausna svo nota þurfi sem „allra minnst“ af olíu á vertíðinni

Notkun olíu sem varaafl til raforku­framleiðslu gengur þvert á bæði aðgerðar­áætlun stjórn­valda í loftslags­málum sem og aðgerðar­áætlun orku­stefnu Íslands, segir umhverfis-, orku- og loftslags­ráðherra.

Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Umhverfis-, orku- og loftslags­ráðherra hefur fundað með Lands­virkjun um skerðingu fyrir­tækisins á raforku­afhendingu til fiskimjöls­verksmiðja og fleiri stór­notenda. Á næstunni verða skoðaðar mögulegar lausnir í samráði við aðila, svo grípa þurfi sem allra minnst til olíu­notkunar á loðnu­vertíðinni framundan.

Þetta var meðal þess sem ráðherra mála­flokksins, Guðlaugur Þór Þórðarson, greindi frá á ríkis­stjórnar­fundi um stöðu orkumála á föstudag. Í minnis­blaði sem lagt var fyrir fundinn og Guðlaugur fór yfir kom m.a. fram að notkun olíu sem varaafl til raforku­framleiðslu gengur þvert á bæði aðgerðar­áætlun stjórn­valda í loftslags­málum sem og aðgerðar­áætlun orku­stefnu Íslands. Stefna stjórn­valda hafi verið að draga eftir fremsta megni úr notkun olíu sem vara­aflgjafa hjá fiskimjöls­fram­leiðendum sem og öðrum raforku­notendum og hefur þróunin verið í rétta átt undan­farin ár. Var í minnis­blaðinu, sem Kjarninn fékk afhenta helstu punkta úr, tekið fram að raforku­samningar væru á milli orkusala og kaupanda og um frjálsa samninga á samkeppnis­markaði að ræða, sem stjórn­völd hafi ekki heimildir til að grípa inn í með beinum hætti.

Á síðustu fimmtán árum hefur í einstaka tilvikum komið til skerðinga á afhendingu raforku sem rekja má til óhag­stæðra vatnsára og mikillar eftir­spurnar umfram framboð raforku. Í frétta­skýringu sem Kjarninn birti nýverið var rýnt í ástæður skerðinga Lands­virkjunar nú sem m.a. eiga sér skýringar í bilunum í vélum virkjana og flösku­hálsum í byggða­línunni sem flytur orku um landið.

Stefna stjórn­valda um uppbyggingu flutnings­kerfis raforku liggur m.a. fyrir í þings­ályktun þess efnis. Styður sú stefna, að því er segir í punktum úr minnis­blaði ráðherra, við að nýta flutnings­kerfið sem best til að hámarka nýtingu á þeirri orku sem fer inn á kerfið og hafa sveigjanleika til að mæta álags­punktum. „Landsnet vinnur samkvæmt stefnunni en stærri framkvæmdir, m.a. varðandi flutning á raforku á milli lands­hluta, hafa tafist vegna ýmissa þátta.“

Skammtímalausna leitað

Til skamms tíma þarf að mati ráðuneytisins að skoða hvaða leiðir eru færar til að mæta núverandi stöðu á sem bestan hátt. Leitað verður eftir nánari upplýsingum frá Landsneti varðandi hvaða úrbætur á flutnings­kerfi raforku eru í forgangi til að draga úr flösku­hálsum í kerfinu, sem standa í vegi fyrir að unnt sé að flytja orku á milli lands­hluta til að mæta tíma­bundnum álags­punktum eins og nú þegar loðnu­vertíð stendur sem hæst. Einnig verður leitað eftir nánari upplýsingum frá Samtökum fyrir­tækja í sjávar­útvegi varðandi stöðu mála í rafvæðingu fiskimjöl­bræðslna og til hvaða úrbóta sé hægt að grípa til skemmri tíma til að draga eins og kostur er úr notkun olíu sem varaafl.

Jafnframt verður leitað eftir nánari upplýsingum frá Lands­virkjun varðandi áform fyrir­tækisins til skemmri tíma um viðbótar raforku­framleiðslu.

Þá nefndi ráðherrann á ríkis­stjórnar­fundinum að Orku­stofnun kanni möguleika á notkun vistvænna orkugjafa sem geti komið í stað jarðefna­eldsneytis þegar grípa þarf til annarra úrræða en raforku frá vatnsafli eða jarðvarma­virkjunum. Þá séu til fleiri umhverfis­vænni orku­kostir, svo sem varma­dælur sem draga úr raforku­notkun til húshitunar, líkt og gert hefur verið í Vestmanna­eyjum.

Kortleggja nauðsynlegar umbætur í flutningskerfi

Í minnis­blaði Guðlaugs Þórs kom fram að mikilvægt væri að gera úttekt á stöðu orkumála og orkuþörf, m.a. í ljósi þeirra áskorana sem nú eru uppi. Orku­stofnun, Umhverfis­stofnun og fleiri aðilar þurfi að koma að því verkefni og fá þurfi fram sem bestar tölulegar upplýsingar og greiningar. Einnig þurfi að skoða og kort­leggja nauðsynlegar umbætur í flutnings­kerfinu og möguleika til að flytja orku á milli lands­hluta til að mæta álags­punktum á ólíkum stöðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár