Skerðing til bræðslna: Bilanir, byggðalína og brölt undan veirukreppu

Aflskortur vegna bil­ana og við­halds véla í virkj­unum ásamt flutn­ings­tak­mörk­unum á byggða­lín­unni valda því að ekki er hægt að full­nægja allri eft­ir­spurn á raf­magni í augna­blik­inu. Við getum líka kennt veðr­inu um.

Bilanir í vélum í virkj­unum hafa sett strik í orku­reikn­ing lands­ins að und­an­förnu. Þannig er afl­geta til raf­magns­fram­leiðslu minni en hún gæti verið ef allt væri í topp­standi. Orku­vinnslan á sunn­an­verðu land­inu hefur einnig verið undir með­al­lagi sem skýrist af þáttum sem ekki er hægt að ráða við: Veðri. Vatns­árið, þ.e. hversu mikið vatn safn­að­ist í uppi­stöðu­lón virkj­an­anna, var lélegt í lands­hlut­anum. Það var betra á Norður- og Aust­ur­landi en þaðan er ekki hægt að flytja nægi­lega orku suður yfir heiðar til að mæta eft­ir­spurn­inni. Hún rann því í formi vatns við­stöðu­laust yfir stíflur Hálslóns. Hundruð MW hafa streymt fram­hjá Kára­hnjúka­virkjun. Það er vegna þess að byggða­línan, flutn­ings­kerfið sem færir orku og afl lands­hluta á milli, ræður ekki við verk­efnið. Nið­ur­staðan er sú að skerða hefur þurft afhend­ingu raf­magns til verk­smiðja sem þannig hafa samið við orku­fyr­ir­tækin.

Skortur á forgangsröðun?

Orkumál hafa verið fyr­ir­ferð­ar­mikil í sam­fé­lags­um­ræð­unni síð­ustu daga í kjöl­far þess að Lands­virkjun þurfti að grípa til þess að skerða afhend­ingu á raf­orku til fiski­mjöls­verk­smiðja sem nú eru starf­ræktar myrkr­anna á milli í upp­hafi mik­illar loðnu­ver­tíðar. Brenna þarf olíu til að fram­leiða það raf­magn sem upp á mun vanta til bræðsl­unnar og það þykir engum fýsi­legt í landi þar sem end­ur­nýj­an­leg orku­fram­leiðsla er með því mesta sem þekk­ist í heim­inum miðað við mann­fjölda. Orðið „orku­skortur“ hefur verið notað sem einnig þykir skjóta skökku við í landi vatns og íss. Ein­hverjir vilja meina að fleiri virkj­anir þurfi til að mæta „orku­skort­inum“ og að hann eigi aðeins eftir að aukast sam­hliða fjölgun raf­bíla. Aðrir segja ekki hægt að tala um „skort“ í þessu sam­bandi. For­gangs­röðun sé lyk­ill­inn að jafn­vægis­p­unkti.

En hvað er raun­veru­lega að valda því að skerða hefur þurft afhend­ingu á raf­magni til fiski­mjöls­verk­smiðja? Er ein­fald­lega ekki verið að fram­leiða nóg af því eða býr eitt­hvað allt annað að baki? Og hvað er eig­in­lega átt við með „orku­skorti“ í þessu sam­bandi?

Við skulum byrja á ein­faldri útskýr­ingu á raf­orku­kerfi Íslands í boði upp­lýs­inga­full­trúa Lands­nets, Stein­unnar Þor­steins­dóttur:

Hægt er að skipta afkasta­getu orku­fram­leiðslu­kerf­is­ins í tvo meg­in­þætti. Það er afl­geta (MW) og orku­vinnslu­geta (GWst). Aflgeta virkj­ana fer eftir því hvað margar afl­vélar eru upp­settar í kerf­inu og eru starf­hæfar og eins hvað hægt er að fæða þær af miklu vatni eða jarð­gufu.

Orku­vinnslu­getan er hins vegar háð inn­rennsli í uppi­stöðu­lón sem hægt er að nýta á árs­grund­velli og gufu­öflun.

Og þarna erum við komin að því babbi sem komið er í bát­inn.

„Orku­vinnslu­getan á þessu ári er með minna móti þar sem að vatns­árið á suð­ur­hluta lands­ins var lélegt og undir með­al­ári,“ útskýrir Steinun. Betra vatnsár var á Norður- og Aust­ur­landi, en ekki var mögu­legt að jafna inn­rennsli í lón að fullu vegna tak­mark­ana á byggða­lín­unni. Því er heild­ar­vatns­árið lægra en í með­al­lagi.

Með öðrum orðum: Of lítið vatn í lónum á Suð­ur­landi. Meira en nóg af vatni í lónum á Norður- og Aust­ur­landi. En ekki hægt að flytja alla ork­una milli lands­svæða og þangað sem eft­ir­spurnin er mest vegna þess að streng­ur­inn – byggða­línan – ræður ekki við það. Í þessu sam­bandi skal minnt á að orku er aðeins hægt að geyma sem vatn í uppi­stöðu­lónum. Henni er ekki hægt að safna, að minnsta kosti ekki ennþá, og nota svo þegar þörfin er mest. Rafmagn sem er notað er fram­leitt jafn­óðum.

Aflgeta er geta virkj­ana til að fram­leiða það afl sem nauð­syn­legt er til að mæta álagi kerf­is­ins hverju sinni. Það sem hefur áhrif á afl­getu eru bil­anir og við­hald afl­véla, stað­setn­ing virkj­ana miðað við álag og flutn­ings­tak­mark­anir í flutn­ings­kerf­inu.

„Vanda­málið núna bygg­ist bæði á aflskorti og orku­skorti,“ segir Steinunn. Þrjár vélar eru úti vegna bil­ana og við­halds á Suður- og Suð­vest­ur­landi: Ein í Búrfelli, ein á Nesja­völlum og ein í Svarts­engi sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem Kjarninn hefur fengið frá orku­fyr­ir­tækj­unum. Tak­markar þetta það afl sem hægt er að nýta til fram­leiðslu á því svæði.

Þórisvatn fóðrar virkjanakerfið á Þjórsár- og Tungnársvæðinu. Þar er Landsvirkjun með virkjanakerfi sem nú vantar vatn í.
Þór­is­vatn fóðrar virkj­ana­kerfið á Þjórsár- og Tungnár­svæð­inu. Þar er Lands­virkjun með virkj­ana­kerfi sem nú vantar vatn í.

Sam­an­lagt afl þess­ara þriggja bil­uðu véla er 82 MW. Til sam­an­burðar má geta þess að upp­sett afl Vatns­fells­virkj­unar er 90 MW. „Til að bæta upp þennan aflskort þarf því að flytja aflið frá virkj­ana­svæð­inu á Norður- og Aust­ur­landi, en tak­markað er hvað hægt er að flytja milli lands­hluta vegna flösku­hálsa á byggða­lín­unni,“ segir Steinunn.

Hvað varðar orku­vinnslu­getu, þá hefur hið „lélega vatnsár“ áhrif á það hve lengi er hægt að keyra vatns­afls­virkj­anir í fullum afköstum. „Því er ekki víst að það vatns­magn sem er í uppi­stöðu­lónum og mun renna í þau í vetur, muni duga til að anna eft­ir­spurn eftir raf­orku á tíma­bil­inu,“ útskýrir Steinunn.

Meira ál, meiri kísilmálmur

Lögmálið gamla góða um fram­boð og eft­ir­spurn og jafn­vægi þar á milli á hér við. Nú þegar hag­kerfi heims­ins eru að rétta úr kútnum eftir heims­far­ald­ur­inn er eft­ir­spurn eftir fram­leiðslu­vörum, m.a. áli og kís­il­málmi, meiri en í fyrra þegar hún dróst saman. Þær verk­smiðjur sem þessi hrá­efni fram­leiða hér á landi vilja því auka afköst sín. Til þess þarf meiri orku. Þær hafa tryggt sér ákveðið magn af for­gangsorku með samn­ingum við orku­fyr­ir­tækin en að auki gera þær sumar hverjar samn­inga til við­bótar um skerð­an­lega orku, samn­inga sem gera bein­línis ráð fyrir því að ef fram­boðið er ekki nægj­an­legt sé afhend­ingin skert.

Slíka samn­inga gera fiski­mjöls­verk­smiðj­urnar, sem eðli máls­ins sam­kvæmt eru aðeins reknar hluta úr ári, einnig. Verðið sem greitt er fyrir raf­magnið er lægra í slíkum skerð­an­legum samn­ingum en að sama skapi þá er þetta „ótryggt“ – það er alls ekki full­víst að við­skipta­vin­ur­inn fái það afhent ef þannig aðstæður skap­ast.

Það vill þannig til að þegar fiski­mjöls­verk­smiðj­urnar þurfa mest af raf­orku er eft­ir­spurnin mest. Að vetri til. Í kulda. Í árferði þar sem vilji er til að keyra vélar verk­smiðja á borð við ál- og kís­il­ver á fullu afli. Og í árferði þar sem vatns­bú­skap­ur­inn er undir með­al­lagi. Úrkoman var ekki næg. Jökl­arnir gáfu ekki nógu mikið af sér. Uppi­stöðu­lónin fyllt­ust ekki. Orkan sem þau geyma í vatn­inu því minni.

Loðnuvertíðin er hafin. Tonnin hrúgast um borð í skipin sem flytja þau í bræðslurnar. Mynd: Hafrannsóknarstofnun
Loðnu­ver­tíðin er hafin. Tonnin hrúg­ast um borð í skipin sem flytja þau í bræðsl­urnar. Mynd: Haf­rann­sókn­ar­stofnun

Flösku­hálsar á byggða­lín­unni gera það að verkum að erfitt er að flytja afl frá Norður- og Aust­ur­landi á svæði sem inni­heldur Blöndu­virkjun, Kröflu, Þeista­reykja­virkjun og Fljóts­dals­virkjun til Suður- og Suð­vest­ur­lands. Og öfugt ef svo ber undir. Flutn­ingur frá norðri og austri til suð­vest­urs fer um flösku­háls í byggða­línu­kerf­inu sem tak­markast við flutn­ing um Blöndulínu 1, í vestur frá Blöndu­virkjun og Fljóts­dals­línu 2 og í austur frá Fljóts­dals­stöð sem í dag­legu tali er kölluð Kára­hnjúka­virkjun.

Langtíma- og skammtímaáhrif

„Þessar flutn­ings­tak­mark­anir valda ýmis­konar vanda­málum,“ segir Steinunn. „Lang­tíma­á­hrifin eru þau að ekki er hægt að full­nýta virkj­anir sem nú þegar eru til staðar í land­inu. Einnig valda þær því að á þeim tíma árs­ins þegar mest inn­rennsli er í uppi­stöðu­lón vatns­virkj­ana, á sumrin og haustin, koma þær í veg fyrir að hægt sé að jafna inn­rennsli í lón eftir lands­hlutum, en það er gert með því að draga úr afli virkj­ana öðrum megin á land­inu á meðan aðrar virkj­anir eru keyrðar á mesta álagi á meðan á þessu tíma­bili stendur.“

Skamm­tíma­á­hrifin eru hins vegar þau að erfitt er að full­nægja þörf fyrir hámarks­á­lag eins og staðan virð­ist vera í dag. Land­virkjun hefur gefið út að fram­leiðslu­getan á Þjórs­ár­svæði sé tak­mörkuð vegna bágrar vatns­stöðu og afl­vélar í Búrfelli sem er ekki í rekstri. Þjórs­ár­svæðið er „vestan“ við áður­nefndan flösku­háls í flutn­ings­kerf­inu. Það er hins vegar ekki skert fram­leiðslu­geta í virkj­unum Lands­virkj­unar innan svæð­is­ins.

Hin nýja Kröflulína 3 við hlið eldri línu, Kröflulínu 2.
Hin nýja Kröflu­lína 3 við hlið eldri línu, Kröflu­línu 2.

Kára­hnjúka­virkjun er langstærsta virkjun lands­ins og upp­sett afl hennar er 690 MW. Hún er á Aust­ur­landi. Fiski­mjöls­verk­smiðj­urnar eru það einnig. Hvernig má það vera að skerða þurfi afhend­ingu á raf­magni til þeirra fyrst nóg er af vatn­inu til að keyra virkj­un­ina?

„Þrátt fyrir að á Aust­ur­landi sé öfl­ugt kerfi til að fæða fiski­mjöls­verk­smiðj­urnar þá er tengi­punktur flutn­ings­kerf­is­ins á Aust­ur­landi í Skriðdal sem er utan við þetta virkj­ana­svæði,“ svarar Steinunn. Því eru fiski­mjöls­verk­smiðj­urnar á Aust­fjörðum sömu megin við flösku­háls­inn á byggða­lín­unni og Þjórs­ár­svæðið. Afl­flutn­ingur þangað hefur því áhrif á það hve mikið er hægt að flytja af svæð­inu og til ann­arra við­skipta­vina fyrir utan þetta svæði.“

Fyrirsjáanlegur vandi

Hún segir að „svo virð­ist sem aflskortur vegna bil­ana og við­halds afl­véla, ásamt flutn­ings­tak­mörk­unum á byggða­lín­unni valdi því að ekki sé hægt að full­nægja allri raf­orku­þörf í augna­blik­inu“. Nauð­syn­legt sé að hafa ákveðið „bil“ á milli fram­leiðslu­getu og orku­notk­unar til þess að bregð­ast við óvæntum aðstæðum sem geta mynd­ast í kerf­inu. „Þetta bil hefur verið að minnka tals­vert síð­ustu árin sem þýðir að svig­rúmið sem þarf að vera til staðar er orðið of lítið eins og sýnir sig núna og kerfið ræður þannig ekki við að mæta þessum atvikum.“

Landsnet hefur haft vax­andi áhyggjur af þessu og í skýrslu sem fyr­ir­tækið gaf út árið 2019 var því lýst að þessi staða væri yfir­vof­andi. Nið­ur­staða skýrsl­unnar var sú að líkur á aflskorti færu yfir við­mið­un­ar­mörk Lands­nets árið 2022 ef ekki kæmi til ný orku­vinnsla fyrir þann tíma. „Nú virð­ist sem sú spá sé að ræt­ast,“ segir Steinunn.

Flutningskerfi raforku og tengingar þess við virkjanir.
Flutn­ings­kerfi raf­orku og teng­ingar þess við virkj­anir.

En er það lausnin – að reisa nýjar virkj­anir?

„Ekki er nóg að byggja nýja vatns­afls­virkjun eða reisa vind­myllur til að koma í veg fyrir skerð­ingu á raf­magni eða að olía sé notuð í fiski­mjöls­verk­smiðjum,“ skrif­aði Bjarni Bjarna­son, for­stjóri Orku­veitu Reykja­víkur, í grein á Vísi. „Raf­magns­vinnsla úr vatni eða vindi er sveiflu­kennd. Meðan við stýrum ekki veðr­inu verða sveiflur í afköstum vatns­afls­virkj­ana og vind­myllna.“

Stór­iðjan, sem nýtir um 80 pró­sent af því raf­magni sem fram­leitt er í land­inu, veit að hún getur ekki fram­leitt á fullum afköstum þegar illa árar í vatns­bú­skapnum. „Við færum illa með fé og illa með land og nátt­úru ef við virkj­uðum stór­fellt til þess að stór­iðjan þyrfti ekki að sæta skerð­ingu, sem hún hefur vel að merkja sjálf samið um af fúsum og frjálsum vilja við raf­orku­fram­leið­end­ur.“ Það sama væri hægt að segja um bygg­ingu virkj­ana til að koma alfarið í veg fyrir að skerða gæti þurft raf­magn til fiski­mjöls­verk­smiðja í fram­tíð­inni.

Nú þegar hag­kerfi heims­ins eru að rétta úr kútnum eftir heims­far­ald­ur­inn er meiri eft­ir­spurn eftir raf­orku hér á landi, „en að halda því fram að virkja þurfi ósköpin öll og virkja strax til að við eigum raf­magn á bíl­ana okkar var jafn rangt þá og það er nú,“ skrifar Bjarni.

Brestur, ekla, fátækt, harð­rétti, hörgull, mis­brestur, nauð(ir), neyð, svelta, van­bún­aður, van­efni, vöntun, þurrð, þörf, örbirgð; líða skort búa við skort.

Þannig er merk­ingu orðs­ins „skortur” lýst í Íslenskri sam­heita­orða­bók.

Skortur verður þegar eitt­hvað vantar. Þegar eft­ir­spurn er meiri en fram­boðið. En er hægt að tala um „orku­skort“ í því ástandi sem nú er komið upp?

Það fer eftir því hvaða skiln­ing fólk setur í það að „skorta“ eitt­hvað. Ef eft­ir­spurn eftir raf­orku, saman hvaðan hún kemur, myndi ein verða til þess að „orku­skortur“ væri í land­inu, væri sá skortur við­var­andi og allt að því eilífur. Nóg er af eft­ir­spurn­inni, t.d. núna síð­ustu vikur og mán­uði frá fyr­ir­tækjum sem grafa eftir raf­mynt (bitcoin og fleiri teg­undum) eftir að slík starf­semi var bönnuð í Kína. Lands­virkjun hefur hafnað fleiri slíkum við­skipta­vinum sem og óskum um aukna raf­orku til þessa námu­graftrar hjá núver­andi við­skipta­vinum.

Bjarni skrifar í grein sinni að stutta svarið við því hvort að „raf­magns­skortur“ sé á Ísland­i sé já. Ann­ars þyrfti ekki að skerða afhend­ingu á raf­magni til stórnot­enda. „Ástæðan er ekki sú að það vanti fleiri og stærri virkj­anir heldur fyrst og fremst skortur á vatni til að keyra þær“. Ofan á það bæt­ist svo veik­leikar í flutn­ings­kerf­inu.

Forðast skal að nýta þá stöðu sem upp er komin í orku­málum sem afsökun til að virkja meira, sagði for­maður Land­verndar, Auður Önnu og Magn­ús­dóttir, í við­tali á mbl.is. Frekar þurfi að finna lausnir til að geyma orku þegar vel árar. Umræðan þurfi að vera yfir­veguð og „ekki með þeim upp­hróp­unum sem hafa verið núna og full­yrð­ingum um að vanda­málið sé almennur skortur á raf­orku­fram­leiðslu þegar þetta er til­fallandi og líka skýrt af flutn­ings­kerf­inu“.

For­stjóri Orku­veit­unnar tók í svip­aðan streng í grein sinni. „Það verða byggðar fleiri virkj­anir á Íslandi en það er mik­il­vægt að hvat­inn til bygg­ingar þeirra sé skýr og gegn­sær og að umræða sé tekin um orku­kost­ina á þeim grunn­i,“ skrifar hann. Fara skuli að engu óðs­lega í orku­málum. „Þjóðin á að ráða hversu langt við göngum og hve hratt í að virkja þær orku­lindir sem nú eru óbeisl­að­ar. Ramma­á­ætlun hefur ekki dugað sem verk­færi til að leiða okkur á rétta slóð. Þar megum við gera bet­ur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið undanfarið ár