May og Trump ætla að hittast í vor

Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, setti sig í sam­band við Donald Trump eftir að ljóst var að hann hefði sigrað í kosn­ing­unum 8. nóv­em­ber.

Th­eresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, mun eiga fund með Don­ald Trump, verð­andi for­seta Banda­ríkj­anna, í vor. Þetta kem­ur fram í frétta­til­kynn­ingu frá breska for­sæt­is­ráðu­neyt­inu í dag.

Trump tek­ur form­lega við emb­ætti síðar í þessu mán­uði, en hann hefur lagt mikið upp úr því að mynda sterk tengsl við Bretland, ekki síst Brexit-hreyf­ing­una svoköll­uðu. Nigel Farage, sem var einn helsti tals­maður Brexit, aðstoð­aði Trump í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum og hélt meðal ann­ars ræðu á bar­áttufundi hans.

Starfs­manna­stjór­ar May, þau Nick Timot­hy og Fiona Hill, fóru til Banda­ríkj­anna í des­em­ber til þess að hitta sam­starfs­menn Trump. Heim­sókn­in var hluti af und­ir­bún­ingn­um fyr­ir fund May og Trumps.

Trump liggur nú undir ámæli fyrir að gera lítið úr leyni­þjón­ustu­stofn­unum Banda­ríkj­anna, sem hafa sagt skýrar sann­anir liggja fyrir um tölvu­árásir Rússa í aðdrag­anda kosn­ing­anna 8. nóv­em­ber í fyrra. Búist er við því að skýrsla um árás­irnar verði birt í næstu viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár