Skýrsla um tölvuárásir Rússa gerð opinber í næstu viku

Mikill titr­ingur er sagður í röðum bæði Demókrata og Repúblik­ana vegna upp­lýs­inga sem CIA seg­ist búa yfir um tölvu­árásir Rússa í aðdrag­anda kosn­ing­anna 8. nóv­em­ber.

James Clapper, yfir­maður leyni­þjón­ustu­mála í Banda­ríkj­unum, segir að brátt muni koma fram fram upp­lýs­ingar sem varpi ljósi á það hvers vegna rúss­neskir tölvu­hakk­arar stóðu fyrir árásum í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna 8. nóv­em­ber í fyrra, en þá sigr­aði Donald J. Trump, sem full­trúi Repúblik­ana, Hillary Clinton, full­trúa Demókrata.

Í yfir­heyrslu í Banda­ríkja­þingi í dag, sagði hann meðal ann­ars, að það væru und­ir­ligg­andi nokkrar ástæður fyrir því að Rússar hefðu staðið fyrir árás­unum. „Ég held að við höfum aldrei staðið frammi fyrir öðrum eins inn­gripum eða árásum í fram­kvæmd kosn­inga í Banda­ríkj­unum,“ sagði Clapper, og lagði áhersla á að það væri mat helstu leyni­þjón­ustu­sér­fræð­inga Banda­ríkj­anna að gögnin sýndu ótví­rætt að Rússar hefðu haft afskipti af kosn­ing­unum, meðal ann­ars með því að leka gögnum um tölvu­pósta Hillary Clinton og fleiri aðgerðum.

Gögnin hafa hins vegar ekki verið birt, og hefur Donald Trump sagt að engar beinar sann­anir væru til fyrir þessum ásök­unum. Clapper segir að gögnin muni tala sínu máli, og varpa ljósi á það sem gerð­ist og einnig hvers vegna. Reiknað er með því að gögnin verði gerð opin­ber, í það minnsta að hluta, í næstu viku, sam­kvæmt fréttum Wall Street Journal.

Donald J. Trump sver sig í emb­ætti for­seta síðar í mán­uð­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár