Trump viðurkennir Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels

Þjóðar­leiðtogar og forystu­menn í ríkis­stjórnum í mörgum ríkjum heimsins óttast að þetta geti hleypt illu blóði í friðar­viðræður og jafnvel leitt til stríðs­átaka.

Don­ald J. Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, viður­kenndi í dag Jerúsalem sem höfuðborg Ísra­els. Þetta gerði hann í beinni útsendingu í ávarpi, en það var meðal annars sent út á Facebook síðu Hvíta hússins.

Ákvörðunin felur í sér breyt­ingu á þeirri ut­an­rík­is­stefnu sem Banda­rík­in hafa fylgt und­an­farna ára­tugi allt frá stofn­un Ísra­els­rík­is.

Trump sagði í ávarpi sínu að hann teldi rétt að viðurkenn Jerúsalem sem höfuð­borgina, og vitnaði meðal annars til þess að fyrri forsetar Banda­ríkjanna hefðu talað fyrir þessu en síðan ákveðið að falla frá því eftir að þeir komust til valda.

Andstaðan er sérstak­lega mikil hjá múslima­ríkjum og hafa leiðtogar Palestínu lýst þessum sem „kossi dauðans“ sem geti leitt til átaka og komið í veg fyrir möguleika á friði.

Erdogan Tyrklands­forseti hefur mótmælt ákvörðuninni harðlega og sagt hana ólíðandi og óásættanlega.

Samhliða ákvörðun sinni þá ákvað Trump að setja strax af stað vinnu við að færa banda­ríska sendi­ráðið í Ísra­el frá borg­inni Tel Aviv til Jerúsalem.

Leiðtogar margra ríkja í Evrópu hafa varað við þessu skrefi hjá Trump og hringdi Emmanuel Macron, Frakk­lands­forseta, sérstak­lega í Trump til að reyna að fá hann ofan af ákvörðuninni. Boris Johnson, utan­ríkis­ráðherra Bretlands, hefur einnig varað við þessu, og talað fyrir því að friðar­umleitanir geti farið út um þúfur með yfir­lýsingu sem þessari þar sem Palestína og Ísrael gera tilkall til borgarinnar.

Jerúsalem er helg borg kristinna, gyðinga og múslima og hefur nær alla tíð verið bitbein þessara trúarhópa. Vestur­bakkinn umlykur borgina, meirihluti íbúa eru gyðingar en þar búa rúmlega þrjú hundruð þúsund Palestínu­menn. Ísraelar hernámu austur­hluta Jerúsalem, þar sem Palestínu­menn búa, í sex daga stríðinu 1967.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár