Jón Páll sagði starfslok sín „hafa bara ekkert með þetta mál að gera“

Leik­hússtjóranum Jóni Páli var gert að víkja tafar­laust frá störfum í gær þar sem ekki ríkti lengur traust um störf hans hjá Leik­félagi Akureyrar vegna máls sem kom upp í tenglsum við #metoo byltinguna.

„Starfslok mín hafa bara ekkert með þetta mál að gera.“ Þetta sagði Jón Páll Eyjólfsson, fráfar­andi leik­hússtjóri Leik­félags Akureyrar, þegar Stundin spurði hann í lok desember hvort starfslok hans hefðu eitthvað með alvarlegar ásakanir að gera, í anda þess sem fjallað hefur verið um undir formerkjum #MeToo. Þá hafði Jón Páll birt yfir­lýsingu á Facebook um að hann hygðist segja starfi sínu lausu sem leik­hússtjóri frá og með 1. janúar 2018. Sagði hann ástæðurnar tengjast rekstri og fjár­framlögum til leik­hússins. 

Í dag var svo greint frá því að Jóni Páli hefði verið gert að víkja tafar­laust frá störfum í gær þar sem ekki ríkti lengur traust um störf hans hjá leik­félaginu. „Stjórn og framkvæmda­stjóri Menningar­félags Akureyrar hafa tekið ákvörðun um að Jón Páll Eyjólfsson leik­hússtjóri Leik­félags Akureyrar starfi ekki út uppsagnar­frest sinn heldur ljúki störfum nú þegar. Byggist sú ákvörðun á því að ekki ríkir lengur traust um hans störf hjá félaginu,“ segir í yfir­lýsingu frá Menningar­félagi Akureyrar. 

Í yfir­lýsingu sem Jón Páll sendi RÚV nú laust eftir hádegi segir hann að málið snúist um atburð sem gerðist fyrir áratug og ekki innan leik­hússins. „Fyrir 5 árum hófst samtal við þolandann að hans frumkvæði og í kjölfarið höfum við átt í samskiptum og stefnt að sátt,” skrifar Jón Páll. „Þegar Metoo vakningin fór af stað gerði ég framkvæmda­stjóra MAK strax grein fyrir málinu og stöðunni.” Um svipað leyti tilkynnti hann um starfslok sín hjá leik­félaginu. 

Þegar Stundin ræddi við Jón Pál þann 29. desember tók hann hins vegar skýrt fram að starfslok hans hefðu ekkert með ásakanir um kynferðis­brot að gera. „Ég skrifaði mjög langt bréf á Facebook og þetta var ekki auðveld ákvörðun taka þennan gambít. Ég kláraði að gera hér það sem ég ætlaði að gera, fullviss um að fylgt yrði eftir stefnu­málunum. Svo sit ég uppi með að það kemur ekki leikhópur hérna,“ sagði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár