Vinnuslys á Norðurstíg – Einn fluttur á sjúkrahús

Smágrafa valt á hliðina við gatna­framkvæmdir. Sá sem slasaðist er ekki alvarlega meiddur.

Einn slasaðist
Einn slas­að­ist Einn slas­að­ist þegar smá­grafa valt á Norð­ur­stíg í mið­borg­inni í morgun. Mynd: Davíð Þór

Vinnuslys varð í morgun á Norður­stíg í miðborg Reykja­víkur þegar að smágrafa valt þar á hliðina. Einn var í gröfunni og slasaðist sá á fæti. Var hann fluttur á bráða­móttöku með sjúkrabíl en að sögn lögreglu á staðnum var líðan hans stöðug.

Lokað var fyrir umferð um Geirsgötu til austurs um tíma meðan sjúkra­flutninga­menn og lögregla athöfnuðu sig. Vinnu­eftirlitið hefur verið kallað til og mun fara yfir vettvang slyssins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár