Ríkisstjórn Ernu Solberg heldur velli

Verkmanna­flokkurinn í Noregi fékk sína verstu útkomu í þing­kosningum í sextán ár.

Ríkis­stjórn Ernu Solberg, forsætis­ráðherra Noregs, fékk 89 þingmenn kjörna í þing­kosningunum í Noregi en minni­hlutinn 80 miðað stöðuna þegar 95 prósent atkvæða hvað verið talin, samkvæmt vef norska ríkis­útvarpsins NRK. Mikil spenna var í aðdrag­anda kosninga enda sýndu kannanir að mjótt var á munum.

Kjör­tímabilið í Noregi er fjögur ár og eru kosnir 169 fulltrúar til að sitja á norska Stór­þinginu.

Átta flokkar eiga fulltrúa á fráfar­andi þingi. Minnihluta­stjórn Hægri-flokksins og Framfara­flokksins hefur setið í Noregi undan­farin fjögur ár, með stuðningi Kristilega þjóðar­flokksins og miðju­flokksins Venstre.

Erna Solberg, leiðtogi Hægri flokksins, hefur gegnt embætti forsætis­ráðherra.

Niður­staðan þykir mikið áfall fyrir Jonas Gahr Støre, formann Verkamanna­flokksins, og eru þegar farnar að heyrast raddir um að hans pólitíski ferill sé á leiðar­enda kominn, að því er fram kemur á vef NRK.

Verkamanna­flokkurinn fékk 27,4 prósent atkvæða, en það er lækkun um 3,4 prósentur frá síðustu kosningum. Samtals missir flokkurinn sex þingmenn, frá síðustu kosningum. Þrátt fyrir að vera enn stærsti flokkur Noregs þá er útkoman áfall fyrir flokkinn, og vinstri væng norskra stjórn­mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár