Njósnarar brutust inn á Facebook reikninga starfsfólks Gemalto

Óljóst hvernig þeir komust yfir dulkóðunar­lykla Nova á Íslandi - Samstarfs­aðili Nova í sigtinu

Útlaginn
Útlaginn Edward Snowden hefur komið upp um marg­vís­lega njósn­a­starf­semi Banda­ríkj­anna með upp­ljóstr­unum sínum. Hann heldur nú til í Rúss­landi enda eft­ir­lýstur af banda­rískum yfir­völdum. Mynd: AFP

Bandarískir og breskir njósnarar brutust inn á tölvu­pósta og Facebook-reikninga verk­fræðinga og annarra starfs­manna hollenska fyri­tækisins Gemalto, í þeim tilgangi að komast yfir upplýsingar sem gætu fært þeim aðgang að dulkóðunar­lyklum fyrir­tækisins. Njósn­ararnir skoðuðu bæði vinnu­pósthólf starfs­mannana, sem og einka­pósta hjá fyrir­tækjum á borð við Yahoo og Gmail. Með þessu vildu þeir finna út hvaða starfs­menn bæru ábyrgð á að senda dulkóðunar­lykla á milli sín. Dulkóðunar­lyklana er hægt að nota til þess að komast inn á símkort og hlera síma­samskipti. 

Þetta kemur fram í ítarlegri umfjöllun blaða­mannanna Jeremy Scahill og Josh Begley á fréttavef Intercept sem byggir á gögnum frá uppljóstraranum Edward Snowden, fyrrum starfs­manns Þjóðar­öryggis­stofnunar Banda­ríkjanna. Þar er greint frá því að bandarískir og breskir njósnarar hafi hakkað sig inn á tölvu­kerfi þessa stærsta fram­leiðanda símkorta í heiminum og stolið þaðan dulkóðunar­lyklum sem leiddi til þess að leyni­þjónustur Banda­ríkjanna og Bretlands höfðu óheftan aðgang að símtölum og gögnum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár