Ísland veitir litla ríkisaðstoð miðað við önnur Evrópuríki

Evrópu­ríki verja að meðaltali helmingi hærra hlutfalli lands­framleiðslu til ríkis­aðstoðar en Ísland.

Íslenska ríkið setur mun minna fjármagn en önnur Evrópu­lönd að meðaltali í ríkis­aðstoð. 

Aðeins 0,4 prósent lands­framleiðslu Íslands rennur til ríkis­aðstoðar, samkvæmt nýrri skýrslu Eftirlits­stofnunar EFTA en sama hlutfall er 2,2 prósent í Lettlandi, 1,23 prósent í Grikk­landi og 1,2 prósent í Þýska­landi. Meðaltal Evrópu­ríkja er 0,6 prósent lands­framleiðslu í ríkis­aðstoð.

Evrópu­lönd leggja að meðaltali 0,37 prósent lands­framleiðslu í viðskipta­lega ríkis­aðstoð vegna umhverfis­verndar og orku­sparnaðar, en Ísland leggur ekkert fé í þann málaflokk samkvæmt skilgreiningu skýrslunnar.

Rík­is­að­stoð Evr­ópu­ríkjaGrafið sýnir rík­is­að­stoð sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu.

Hins vegar leggur Ísland meira en meðalevrópulandið í rann­sóknir og þróun. Um 0,21 prósent af lands­framleiðslu Íslands rennur í rann­sóknir og þróun, en aðeins um 0,07 prósent að meðaltali í Evrópu­ríkjum.

Í skýrslunni segir að útgjöld til ríkis­aðstoðar á Íslandi hafi aukist um 10,5% á árinu 2015. Helst fólst aukningin í verkefnum á sviði rannsókna, þróunar og nýsköpunar, í gegnum Rannsóknar­sjóð og Tæknisjóð Rannís.

Eftirlits­stofnun EFTA fram­fylgir reglum EES-samningsins um ríkis­aðstoð. Í skýrslu nefndarinnar er tekið fram að hún sé almennt bönnuð.„Ríkis­aðstoð felst í opinberum stuðningi við viðskipta­starfsemi. Hún getur verið í formi fjár­styrkja, skattaívilnana, hagstæðra lána, ábyrgða eða fjár­festinga sem ekki eru á markaðs­kjörum. Jöfn samkeppnis­staða fyrir­tækja í Evrópu er eitt grundvallar­atriði EES-samningsins. Til að koma í veg fyrir að opinberir fjármunir séu notaðir til að viðhalda verndar­stefnu er megin­reglan sú að ríkis­aðstoð er óheimil,“ segir í kynningu á skýrslunni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár