Holtaþokunni frá aflandseyjunum er ögn farið að létta. Við grillum nú í sannleikann þótt hann eigi eftir að enn betur í ljós, er ég hræddur um. Lítill hópur hinna forríku ræður ríkjum og arðrænir alþýðuna; gróðinn er fluttur í skattaskjól. Dyggir stjórnmálamenn gæta hagsmuna yfirstéttarinnar - og nú er komið í ljós að stjórnmálamenn kalla óspillta fjölmiðlamenn á sinn fund til að reyna að ógna þeim til að fjalla jákvætt um þá sjálfa.
Við slík stjórnvöld höfum við búið - en við slík stjórnvöld þurfum við að losna.
Valdsherrarnir þráast við, fara undan í flæmingi, geta ekki einu sinni séð sóma sinn í að ákveða kosningadag. Ástæðan er einföld. Þeir vonast til að geta þumbast við og sleppt kosningunum sem þeir geti notað veturinn annars vegar til þess að koma sér í mjúkinn hjá kjósendum.
Hins vegar með því að útvega eigendum sínum eignir okkar allra á spottprís.
Fólkið í þessu landi þarf að gera valdsherrunum ljóst að það vill ekki slík undanbrögð.
Fundur er á Austurvelli klukkan tvö eftir hádegi.
Kröfur fundarins eru tvær:
Spillt og trausti rúin ríkisstjórn fari frá.
Boðað verði til kosninga nú þegar.
Allir sem taka undir þessar kröfur ættu að mæta á Austurvöll. Burt með spillinguna og skattaskjólin.
Athugasemdir