Bandaríkin bjóða „vinaríkjum“ til veislu 3. janúar

Sendi­herra Banda­ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum hefur sent þeim þjóðum, sem ekki kusu gegn Banda­ríkjunum í atkvæða­greiðslu hjá Sameinuðu þjóðunum, til veislu.

Nikki R. Haley, sendi­herra Banda­ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, hefur boðið fulltrúum þeirra ríkja sem ekki kusu gegn Banda­ríkjunum í atkvæða­greiðslu í allsherjar­þingi Sameinuðu þjóðanna í gær, til veislu hinn 3. janúar.

Frá þessi greinir Reuters.

Eins og greint var frá fyrr í gær, þá greiddi yfir­gnæf­andi meiri­hluti aðild­ar­ríkja Sam­ein­uðu þjóð­anna gegn ákvörðun Banda­ríkj­anna um að viðurkenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels, en ályktun þess efn­is, sem borin var upp af frum­kvæði Egypta, var sam­þykkt.

Sam­tals greiddu 128 ríki með henni, 9 stóðu með Banda­ríkj­un­um, að þeim með­töld­um, og 35 voru hlut­laus og 21 þjóð tók ekki þátt í kosn­ing­unn­i. Samtals voru því 64 þjóðir sem ekki studdu tillöguna gegn Banda­ríkjunum, en af þeim voru 35 hlut­lausar og 21 þjóð kaus ekki.

Ísland kaus gegn ákvörðun Banda­ríkjanna, og sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, utan­ríkis­ráðherra, að ekkert annað hefði komið til greina.

Þær níu þjóðir sem studdu Banda­ríkin voru Gvatemala, Hondúras, Ísra­el, Mars­hall-eyj­ar, Míkró­nesía, Nárú, Palá og Tógó.

Haley sagði í ræðu sinni á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna í dag, eftir að niður­staðan lá fyrir, að „þessi dagur myndi ekki gleymast“.

Hún sagði Banda­ríkin ekki ætla að end­ur­skoða ákvörðun sína um að við­ur­kenna Jer­úsalem sem höf­uð­borg Ísra­els og að færa þangað sendi­ráð Banda­ríkj­anna. En það myndi koma í ljós hvernig þær þjóðir, sem ekki styddu ákvörðun Banda­ríkjanna, myndu finna fyrir því að hafa kosið gegn Banda­ríkjunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár